Ferill 88. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


113. löggjafarþing 1990–1991.
Nr. 16/113.

Þskj. 713  —  88. mál.


Þingsályktun

um eflingu heimilisiðnaðar.


    Alþingi ályktar að fela forsætisráðherra að kanna, í samráði við fræðsluyfirvöld, samtök listamanna og Heimilisiðnaðarfélag Íslands, hvernig efla megi heimilisiðnað hér á landi. Helstu markmið verði eftirfarandi:
     1.      Að kanna stöðu heimilisiðnaðar og minjagripagerðar á landsbyggðinni.
     2.      Að leita uppi gamlan fróðleik um gerð ýmissa þjóðlegra muna með það að markmiði að þjóðleg handíð varðveitist og þróist áfram.
     3.      Að kanna hvernig veita megi faglega ráðgjöf með því að efna til námskeiða þar sem kunnáttufólk leiðbeini um rétt vinnubrögð og handtök við gamla heimilisiðnaðinn og mikilvægi þess að nota hráefni sem er sérstakt fyrir Ísland.
     4.      Að leggja sérstaka áherslu á vinnslu íslensku ullarinnar, t.d. með því að standa fyrir tóvinnunámskeiðum.
     5.      Að sækja aðstoð til hönnuða og hugmyndasmiða í leit að nýsköpun í heimilisiðnaði.
     6.      Að aðstoða fólk við fjármögnun og markaðssetningu.
     7.      Að hafa samstarf við atvinnumálaráðgjafa þar sem þeir eru starfandi.

Samþykkt á Alþingi 25. febrúar 1991.