Ferill 370. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 370 . mál.
Ed.
763. Nefndarálit
um frv. til l. um ráðstafanir vegna aflabrests í loðnuveiðum.
Frá 1. minni hl. sjávarútvegsnefndar.
Fyrsti minni hl. nefndarinnar telur að eftirtalin atriði mæli gegn því að frumvarp þetta verði samþykkt:
1. Engin efni standa til þess að úthluta bolfisksaflaheimildum til annarra skipa en þeirra sem hafa aflað sér þeirra með reynslu. Það er fráleitt að ætla að leysa núverandi vanda loðnuskipa með því að úthluta þeim aflaheimildum úr öðrum fiskstofnum, þorski eða öðrum bolfiski. Gegn þeirri aðgerð mælir og að aflamark af þorski hefur verið skert um tæp 24% frá árinu 1987 og við blasir enn stórkostlegri skerðing, jafnvel 40 – 50%, á næsta og næstu fiskveiðiárum. Í skýrslu Hafrannsóknastofnunar um aflahorfur 1991 segir á bls. 11 þar sem fjallað er um þorskinn:
„Ef veidd verða 350 þús. tonn árin 1991 og 1992 mun veiðistofninn minnka úr 850 þús. tonnum í ársbyrjun 1991 í 630 þús. tonn í ársbyrjun 1993 og hrygningarstofn um 140 þús. tonn. Veiðidánarstuðlar munu fara hækkandi og árgangar endast illa, enda afli 40 – 50% af stofnstærð. Verði aflinn takmarkaður við 300 þús. tonn mun veiðistofn minnka um 100 þús. tonn og hrygningarstofn um 70 þús. tonn. Við 250 þús. tonna afla á ári mun veiðistofn og hrygningarstofn nánast standa í stað næstu tvö árin. Fjórði kosturinn, 200 þús. tonna afli á ári, yrði til þess að veiðistofn og hrygningarstofn stækkuðu allnokkuð næstu árin. Veiðidánarstuðlar yrðu verulega lægri.“
Vandi útgerða, sem stunda þorskveiðar, er því nægur fyrir og á þann vanda er ekki bætandi, hvorki í dag eða á næstu missirum, með því að færa núverandi eða væntanlegar aflaheimildir þeirra til óskyldra útgerða. Þar breytir engu um hvort þeim aflaheimildum verður ráðstafað skv. 9. gr. laga um stjórn fiskveiða eða samkvæmt þeirri aðferð sem lögð er til með þessu frumvarpi, þ.e. að taka svokallaðar aflaheimildir Hagræðingarsjóðs og úthluta þeim í þessum tilgangi. Í báðum tilfellum væri verið að taka væntanlegan afla frá bolfiskveiðiskipum með „flötum niðurskurði“ og færa hann til loðnuskipanna.
2. Takmörkun loðnuveiði í ár hefur valdið erfiðleikum í útgerð loðnuveiðiskipa. Erfiðleikar eru líka hjá sjómönnum á loðnuskipunum og verkafólki, sveitarfélögum, loðnuverksmiðjum, hafnarsjóðum, netaverkstæðum, verslunum og ýmsum þjónustustofnunum í byggðunum þar sem loðna hefur verið tekin til vinnslu.
Mjög óljósar upplýsingar liggja fyrir um hvernig á að leysa vanda þessara aðila, annarra en útgerða loðnuskipa, og sumir alls ekki nefndir á nafn, t.d. hafnarsjóðir, í umfjöllun stjórnvalda. Ef bæta á áfall eins og aflabrest með samfélagslegri aðgerð, eins og lagt er til með þessu frumvarpi, er óeðlilegt og ranglátt að taka þar aðeins einn þátt og bæta þar skaða, en skilja eftir aðra án bóta jafnvel þótt tjón þeirra sé meira.
3. Með 1. gr. frumvarpsins er lagt til að sjávarútvegsráðherra verði heimilt að úthluta allt að 8.000 þorskígildislestum af veiðiheimildum Hagræðingarsjóðs sjávarútvegsins til loðnuveiðiskipa og þar með að gera sjóðinn að aflatryggingarsjóði fyrir útgerð þessara skipa.
Í nefndaráliti Stefáns Guðmundssonar, formanns sjávarútvegsnefndar, og Jóhanns Einvarðssonar um frumvarp til laga um Úreldingarsjóð fiskiskipa, sem þeir félagar lögðu fram í efri deild 30. apríl 1990, segir m.a. um hlutverk Hagræðingarsjóðs:
„Varðandi aukið hlutverk sjóðsins leggur 1. minni hl. til að gerðar verði breytingar á 1. gr. og að bætt verði inn nýrri grein á eftir 7. gr. Gert er ráð fyrir að nafni sjóðsins verði breytt úr „Úreldingarsjóður fiskiskipa“ í „Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins“ og honum fengið það tvíþætta hlutverk að stuðla að fækkun fiskiskipa og koma til aðstoðar í byggðarlögum sem höllum fæti standa vegna sölu fiskiskips eða fiskiskipa þaðan. Skilyrði fyrir aðstoð sjóðsins verði þó bundið við að sala skipa úr byggðarlaginu leiði til fyrirsjáanlegrar fækkunar starfa og að byggðarröskun sé yfirvofandi af þeim sökum. Allt að helming þeirra veiðiheimilda, sem gerð er tillaga um að sjóðurinn fái úthlutað, geti sveitarstjórnir fengið til ráðstöfunar þar sem þær aðstæður hafa skapast sem réttlæta aðstoð af hálfu sjóðsins, enda hafi bæði Byggðastofnun og stjórn Hagræðingarsjóðs samþykkt aðstoðina. Með þessu ákvæði er tryggt að slík aðstoð fái ítarlega umfjöllun. Úthlutun veiðiheimilda í þessu skyni verði bundin við að aflanum verði landað til vinnslu í viðkomandi byggðarlagi. Stjórn Hagræðingarsjóðs skal ákveða verð fyrir slíkar veiðiheimildir er taki mið af gangverði sambærilegra heimilda á hverjum tíma með sama hætti og við á um þann hluta veiðiheimilda sjóðsins sem fiskiskip fá árlega forkaupsrétt á. Nýti sveitarstjórnir ekki slíkan ráðstöfunarrétt verða heimildirnar boðnar út til skipa gegn sömu skilyrðum um ráðstöfun aflans, þ.e. að honum verði landað til vinnslu í því byggðarlagi sem aðstoð hefur verið samþykkt við. Fáist hins vegar ekkert skip til veiðanna er stjórn sjóðsins heimilt að ákveða lægra endurgjald eða fella það niður. Ólíklegt er hins vegar að ætla að slík staða komi upp þar sem fiskiskipaflotinn er það afkastamikill að fremur auðvelt ætti að vera að fá skip til veiðanna.“
Síðastliðið vor settu nokkrir alþingismenn það sem skilyrði fyrir samþykkt sinni á frumvarpinu um stjórn fiskveiða að frumvarp um Hagræðingarsjóðinn yrði að lögum og hlutverk sjóðsins yrði á þann hátt sem fram kemur í áðurnefndu nefndaráliti.
Því var lofað að gengið yrði vel frá því hvernig ráðstafa mætti úr sjóðnum væntanlegum veiðiheimildum, þar sett ýmis skilyrði og enn fremur að stjórn Byggðastofnunar og stjórn Hagræðingarsjóðs skyldu samþykkja ef um aðstoð yrði að ræða.
Með þessu frumvarpi er lagt til að með lagabreytingu eigi nú að ganga yfir öll þessi skilyrði og loforð.
Fyrsti minni hl. leggur því til að frumvarpinu verði breytt og í stað 1. gr. komi ný grein um að stofnaður verði viðlagasjóður loðnuútgerðar. Hans hlutverk verði að bæta afkomu loðnuútgerðar vegna aflabrests o.fl.
Á eftir 1. gr. er lagt til að komi þrjár nýjar greinar sem fjalla um starfsemi viðlagasjóðs loðnuútgerðar.
Þá er tillaga 1. minni hl. sú að á eftir 2. gr. frumvarpsins bætist tvær nýjar greinar: Í fyrsta lagi um að ríkissjóði verði heimilt að ábyrgjast lán sem viðlagasjóður loðnuútgerðar taki til að endurlána útgerðum loðnuveiðiskipa. Upphæð lánsins yrði jafngildi markaðsverðs 8.000 þorskígildislesta. Og í öðru lagi um það að aflaheimildum Hagræðingarsjóðs verði á yfirstandandi fiskveiðiári aðeins varið til eflingar fiskvinnslu í þeim byggðarlögum sem höllum fæti standa.
Síðan er lagt til að fyrirsögn frumvarpsins verði breytt til samræmis við þetta og að sjávarútvegsráðherra leggi fram frumvarp á Alþingi haustið 1991 um viðlagasjóð loðnuútgerðar.
Með þessum breytingartillögum er útgerðum loðnuskipa boðið upp á lausn á þeirra vanda á svipaðan hátt og ríkisstjórnin telur að leysa eigi vanda annarra aðila í þjóðfélaginu, þeirra er orðið hafa fyrir tekjuskerðingu vegna takmarkana á loðnuveiðum.
Ef breytingartillaga 1. minni hl. við 1. gr. frumvarpsins verður felld koma til afgreiðslu tvær aðrar tillögur, breytingartillaga við 1. gr. um að helmingi aflaheimilda samkvæmt greininni skuli skipta milli þeirra sveitarfélaga sem verða fyrir beinum tekjumissi vegna loðnuaflabrestsins og að á eftir 1. gr. komi ný grein um að aflaheimildir skv. 1. gr. verði ekki framseljanlegar nema með samþykki stéttarfélags sjómanna á útgerðarstað loðnuskips.
Þessar tillögur eru því varatillögur og verða kallaðar aftur að samþykktri aðaltillögunni við 1. gr. Þær eru bornar fram til að freista þess að verða við tilmælum flestra viðmælenda nefndarinnar um að reyna að bæta hag annarra aðila sem orðið hafa fyrir tekjutapi vegna loðnubrestsins, annarra en útgerða loðnuskipa. Margrét Frímannsdóttir er meðflutningsmaður undirritaðra að breytingartillögunum. Nefndin hefur fengið í hendur álit margra félaga og samtaka og fulltrúar annarra hafa komið á fund hennar. Margir eru mjög mótfallnir frumvarpinu og þó sérstaklega 1. gr. þess, aðrir mæla með samþykkt þess, en þá mjög skilyrtri í flestum tilfellum.
Með nefndaráliti þessu fylgja sem fylgiskjal nokkrar umsagnanna sem þingmönnum og nefndinni hafa borist um frumvarpið.
Alþingi, 28. febr. 1991.
Skúli Alexandersson,
frsm.
Karvel Pálmason.
Fylgiskjal.
Umsagnir um frumvarpið.
Útvegsmannafélag Snæfellsness:
(16. janúar 1991.)
Útvegsmannafélag Snæfellsness mótmælir harðlega þeim umræðum, sem átt hafa sér stað, um að skerða beri botnfisksaflamark skipa, annarra en loðnubáta, vegna aflabrests á loðnu. Hér á Snæfellsnesi eru til bátar sem eru með aflaheimildir til aðeins eins mánaðar veiði í meðalári. Þess vegna sé það með öllu óskiljanlegt að það sé hægt að skerða þessa báta og aðra meira en gert hefur verið.
Á síðustu loðnuvertíð voru margir aðilar sem töldu að það væri verið að ofveiða loðnustofninn. Einnig að á haustvertíðum hefur verið mikið veitt af smáloðnu. Vilja útvegsmenn á Snæfellsnesi taka fram að ef núverandi kvótakerfi eigi að vera við lýði þá verði útgerðar- og sjómenn að vera ábyrgir fyrir sínum gjörðum. Það sé ekki hægt að ofveiða einn stofn og ætlast til síðan að fá að ganga inn í veiðar á öðrum stofnum sem þegar eru taldir ofveiddir.
Bæjarráð Ólafsvíkurkaupstaðar:
Bæjarráð Ólafsvíkur mótmælir eindregið hugmyndum stjórnvalda um skerðingu á aflakvóta fiskiskipa og tilflutning á honum til loðnuskipa og lýsir sig andvígt öllum umræðum í þá veru.
Ólafsvíkurkaupstaður, sem og önnur sveitarfélög á Snæfellsnesi, hefur mátt búa við það hin síðari ár að aflakvóti fiskiskipa hefur verið skertur ár frá ári. Þetta hefur haft mikil áhrif á atvinnulíf í Ólafsvík, líkt og í öðrum sveitarfélögum, því þorskur hefur verið yfir níutíu af hundraði alls afla sem á land berst í Ólafsvík. Loðnuskipaútgerð er ekki í Ólafsvík né heldur öðrum sveitarfélögum á Snæfellsnesi og einu merkjanlegu áhrif loðnu á atvinnulíf eru loðnugöngur upp að Snæfellsnesi sem draga botnfisk að, en slíkar göngur hafa þó farið mjög svo minnkandi hin síðustu ár.
Bæjarráð Ólafsvíkur telur að með því að færa hluta botnfiskskvóta af fiskiskipum yfir á loðnuskip sé aðeins verið að færa vandann yfir á aðila sem fyrir eigi við ærinn vanda að stríða. Aukin skerðing, til viðbótar þeirri sem þegar er orðin, gæti kippt rekstrargrundvelli undan útgerð mikils hluta fiskiskipa sem aftur kæmi til með að hafa gífurleg áhrif á tilvist Ólafsvíkur og búsetu fólks hér.
Bæjarstjórn Bolungarvíkur, bæjarráð Siglufjarðar, bæjarstjórinn á Akureyri
og hreppsnefndir Raufarhafnar og Þórshafnar:
(25. janúar 1991.)
Vegna umræðna um ástand loðnustofnsins og hugsanlegar aðgerðir stjórnvalda vegna þess vilja bæjarstjórn Bolungarvíkur, bæjarráð Siglufjarðar, bæjarstjórinn á Akureyri og hreppsnefndir Raufarhafnar og Þórshafnar benda á að þau sveitarfélög þar sem loðna hefur verið unnin og íbúar þar verða hvað harðast úti vegna yfirvofandi aflabrests á loðnu. Loðnuverksmiðjur, landverkafólk og sveitasjóðir í viðkomandi byggðarlögum eru því hagsmunaaðilar sem taka þarf fullt tillit til við hugsanlegar aðgerðir ríkisvaldsins vegna þessa máls.
Í mörgum tilfellum mundi tilfærsla botnfiskskvóta til loðnuflotans auka vanda landverkafólks og sveitarfélaga á landsbyggðinni, nema til kæmu skýr ákvæði um löndun aflans í viðkomandi byggðum. Vegna hugmynda um tilfærslu úr Hagræðingarsjóði til loðnuflotans er rétt að ítreka að hlutverk sjóðsins átti að vera að taka á vandamálum sem upp kæmu á einstökum stöðum, m.a. með tilliti til byggðarþróunar. Þetta þarf að hafa í huga við úthlutanir úr sjóðnum og því nauðsynlegt að binda þær skilyrðum um hvar aflinn komi til vinnslu. Þau byggðarlög sem unnið hafa úr loðnunni hljóta að hafa þar forgang.
Við tökum heils hugar undir það að bæta þarf loðnuskipum tjón þeirra eins og unnt er, en jafnframt því verður að leysa vanda hagsmunaaðila í landi. Loðnubrestur er vandamál sem allir landsmenn verða að takast á við sameiginlega. Það er ekki sanngjarnt að reikna með því að botnfiskveiðar og vinnsla taki á sig jafn stóran hluta vandans og fram hefur komið í hugmyndum um kvótatilfærslur.
Í þessu sambandi má minna á að árið 1981, er aðstæður voru svipaðar og nú, var leitast við að aðstoða loðnuverksmiðjur eftir megni til að komast hjá fjöldaatvinnuleysi. Við skorum á stjórnvöld að huga að vanda hagsmunaaðila í landi um leið og leitast er við að létta undir með útgerð og sjómönnum og ítrekum að um er að ræða vandamál sem öll þjóðin verður að leysa í sameiningu.
Hreppsnefnd Neshrepps utan Ennis:
(21. janúar 1991.)
Hreppsnefnd Neshrepps utan Ennis mótmælir harðlega öllum umræðum og hugmyndum um að skerða bolfiskveiðiheimildir fiskiskipa með því að færa hluta af veiðiheimildum þeirra yfir á loðnuskip vegna stöðvunar á loðnuveiðum.
Undanfarin ár hafa bolfiskveiðiheimildir verið skertar og er nú svo komið að fjölmörg fiskiskip skortir hreinlega rekstrargrundvöll vegna þess hve veiðiheimildir þeirra eru orðnar litlar. Þá bendir hreppsnefnd Neshrepps utan Ennis á að vegna breytinga á fiskveiðiári verður skerðing bolfiskveiðiheimildar á þessu svæði meiri á árinu 1991 en réttlátt er sé miðað við undanfarin ár.
Í þeim sveitarfélögum þar sem hefðbundnar fiskveiðar eru uppistaða atvinnulífs, eins og er í Neshreppi, hafa atvinnutekjur íbúa farið lækkandi undanfarin ár og má rekja þá þróun að mestu til skerðingar á veiðiheimildum hinna hefðbundnu vertíðarbáta.
Með þeirri skerðingu, sem nú þegar er orðin á veiðiheimildum fiskiskipa og báta frá Neshreppi, hefur afkoma sveitarfélagsins og íbúa þess versnað verulega. Frekari skerðing mundi leiða af sér verulega röskun búsetu fólks í sveitarfélaginu sem og í öðrum sveitarfélögum sem líkt er ástatt hjá.
Hreppsnefnd Neshrepps utan Ennis varar því stjórnvöld alvarlega við því að sú leið verði farin til bjargar loðnuskipaflotanum að skerða frekar þorskveiðiheimildir hefðbundinna vertíðarbáta. Hreppsnefnd bendir á að atvinna af loðnuveiðum er ekki í Neshreppi né í öðrum sveitarfélögum á Snæfellsnesi og að atvinna byggist alfarið á afla hinna hefðbundnu vertíðarbáta.
Hreppsnefnd Eyrarsveitar og Verkalýðsfélagið Stjarnan, Grundarfirði:
Grundfirðingar mótmæla harðlega þeim hugmyndum, sem fram hafa komið, um að bæta loðnuskipum upp samdrátt í loðnuveiðum með því að færa þeim þorskveiðiheimildir og skora á sjávarútvegsráðherra að láta slíkar hugmyndir að engu verða.
Aflaheimildir Grundarfjarðarbáta hafa verið skertar árlega undanfarin ár og er nú svo komið að aflakvóti margra útgerða getur vart staðið undir rekstri þeirra. Enn frekari skerðing á aflaheimildum nú rýrir verulega afkomumöguleika atvinnufyrirtækja og einstaklinga í Grundarfirði. Með slíkum tilfærslum aflaheimilda, sem hér um ræðir, væri enn einum áfanganum náð í þá veru að afmá byggðir í sjávarþorpum víða umhverfis landið.
Grundfirðingar benda á að engin loðnuskip eru gerð út frá Snæfellsnesi og tilfærslur á þorskveiðiheimildum yfir á loðnuskip gera það að verkum að þorskkvóti væri eingöngu færður burt af svæðinu, við slíkt verður ekki unað.
Þá vara Grundfirðingar við hugmyndum um að Hagræðingarsjóður verði notaður í þessu sambandi, þar sem það er skilningur Grundfirðinga að Hagræðingarsjóður eigi að koma til ef bæta þarf úr vanda einstakra byggðarlaga sökum kvótataps. Í þessu tilviki, sem hér um ræðir, virðist tilgangurinn fyrst og fremst sá að gæta hagsmuna einstakra útgerða loðnuskipa.
Hreppsráð Patrekshrepps og Verkalýðsfélag Patreksfjarðar:
(26. febrúar 1991.)
Hreppsráð Patrekshrepps mótmælir eindregið þeim hugmyndum um að skerða bolfiskveiðiheimildir fiskiskipa með því að færa hluta af veiðiheimildum þeirra yfir á loðnuskip vegna stöðvunar á loðnuveiðum.
Undanfarin ár hafa bolfiskveiðiheimildir fiskiskipa verið skertar svo til á hverju ári. Nú er svo komið að fjölmörg fiskiskip skortir rekstrargrundvöll vegna þess hve veiðiheimildir eru orðnar litlar. Tekjur fólks sem hefur atvinnu af fiskveiðum og úrvinnslu fiskafurða hafa á undanförnum árum dregist saman vegna þeirrar skerðingar sem fiskiskip hafa orðið fyrir. Í sjávarplássum á sunnanverðum Vestfjörðum hefur orðið vart þessarar þróunar, þar sem íbúum á þessu svæði hefur fækkað nær árvisst vegna lækkandi tekna og ótryggs atvinnuástands.
Með þeirri ákvörðun að færa hluta af veiðiheimildum fiskiskipa yfir á loðnuskip er enn verið að rýra kjör þess fólks sem hefur aðalatvinnu af veiðum og vinnslu á bolfiski. Öllum sem stunda fiskveiðar má það ljóst vera að hér er um áhætturekstur að ræða, og verður hver og einn, sem þennan atvinnurekstur stundar, að búa sig undir að geta mætt áföllum í rekstri vegna aflasamdráttar. Patreksfirðingar eru óðum að reisa við atvinnulíf staðarins eftir alvarleg áföll undangenginna ára. Með skerðingu á aflaheimild er ekki annað séð en að verið sé að binda enda á það uppbyggingarstarf sem nú er í gangi.
Hreppsráð Patrekshrepps mótmælir harðlega þeim hugmyndum, sem uppi eru, um að Hagræðingarsjóður verði notaður í þeim tilgangi að flytja þorskveiðiheimildir til loðnuskipa. Hlutverk Hagræðingarsjóðs var frá upphafi að bæta einstökum byggðarlögum upp kvótatap, hér er ekki um slíkt að ræða, heldur er verið að bjarga útgerð einstakra loðnuskipa.
Sjómannasamband Íslands:
Á fundi framkvæmdastjórnar Sjómannasambands Íslands 23. janúar 1991 var eftirfarandi ályktun samþykkt:
„Stjórn Sjómannasambands Íslands gerir þá þröfu að loðnusjómönnum verði bættur tekjumissir vegna aflabrests á loðnu með því að loðnuskipum verði úthlutað veiðiheimildum á öðrum tegundum.
Stjórnin leggur áherslu á að þær aflabætur, sem loðnuskipin kunna að fá vegna þessa, verði ekki síður til að bæta sjómönnum á viðkomandi skipum tekjumissi og koma í veg fyrir atvinnuleysi en að bæta útgerðum tekjutap. Því leggur stjórn Sjómannasambands Íslands áherslu á að komi til aflabóta vegna brests á loðnuveiðum verði útgerð viðkomandi skipa skilyrðislaust óheimilt að selja þær aflabætur frá skipinu.“
Farmanna- og fiskimannasamband Íslands og Sjómannasamband Íslands:
Fundur loðnusjómanna á vegum Farmanna- og fiskimannasambands Íslands og Sjómannasambands Íslands, haldinn 28. janúar 1991 að Borgartúni 18, skorar á sjávarútvegsráðherra að leyfa loðnuveiðar þegar í stað.
Jafnframt mótmælir fundurinn harðlega að fyrirhugaðar aflabætur til loðnuskipa verði framseljanlegar. Þó styður fundurinn að heimilt verði að skipta aflabótum milli tegunda.
Hreppsnefnd Þórshafnarhrepps:
(20. febrúar 1991.)
Hreppsnefnd Þórshafnarhrepps vill koma á framfæri mótmælum við því að í frumvarpi sjávarútvegsráðherra til laga um ráðstafanir vegna aflabrests í loðnuveiðum skuli einungis tekið á vanda loðnuflotans.
Þrátt fyrir fyrirliggjandi upplýsingar um áhrif loðnubrestsins á rekstur loðnuverksmiðja og afkomu einstakra sveitarfélaga og íbúa þeirra verður ekki annað séð en sá skaði megi liggja óbættur samkvæmt frumvarpinu.
Tekjumissir loðnuflotans skal ekki vanmetinn, en sú spurning hlýtur að vakna hvort tekjumissir þeirra sveitarfélaga, sem rétt ættu að eiga í Hagræðingarsjóði, hafi verið metinn, og ef ekki — hvers vegna? Nú er það væntanlega svo að einhver þeirra sveitarfélaga eru þau sömu og nú verða hvað harðast úti vegna loðnubrestsins.
Sú stefnumótun, sem fram kemur í frumvarpinu, um það að taka eigi mið af afla skipa af loðnu á haustvertíðinni við fyrirhugaða úthlutun úr Hagræðingarsjóði verður vart skilin á annan veg en þann að það sé stefnan að draga sem mest úr loðnuveiðum á haustin og færa veiðarnar fram yfir áramót. Sú þróun hefði augljósar afleiðingar í för með sér fyrir loðnuvinnslu norðan lands. Slík stefnumótun gengur einnig í berhögg við hámarksafrakstur loðnustofnsins þar sem loðnan er einna afurðamest á haustin og því skynsamlegt að veiða hana á þeim tíma.
Þótt það sé tekið fram í athugasemdum með frumvarpinu að hér sé einungis um tímabundna ráðstöfun að ræða er það alveg ljóst að hún hefur verulegt fordæmisgildi — fordæmisgildi sem gæti þýtt að í hvert sinn sem áföll verða í sérveiðum af einhverju tagi sé sjálfgefið að ganga í Hagræðingarsjóð sem þá næði væntanlega aldrei að sinna því hlutverki sem löggjafinn ætlaði honum.
Ekki verður séð að það ætti að vera frekari vandkvæðum bundið að leyfisbinda loðnuvinnslu en veiðar eins og látið er að liggja í athugasemdum með frumvarpinu. Það sem þarf er opinber stefnumótun í fiskvinnslumálum í landinu, það er ekki nóg að hafa fiskveiðistefnu eina og sér. Réttur þeirra fyrirtækja, fólks og byggðarlaga, sem hafa lífsviðurværi sitt af vinnslu sjávarafla, hlýtur að vera jafn mikill og þeirra sem draga fiskinn úr sjó.
Um það geta verið skiptar skoðanir hvort framkvæmanlegt sé að skilyrða löndun á þeim afla sem loðnuflotinn fær í bætur vegna loðnubrestsins. Það breytir hins vegar engu um það réttlætismál að þau byggðarlög sem harðast verða úti fái með einhverjum hætti aukna hlutdeild í botnfisksaflanum. Hér skal ekki komið með allsherjarlausn á því með hverjum hætti slíkt mætti framkvæma, en á það bent að eðlilegt væri að stjórnvöld kæmu fram með tillögur í því efni, jafnhliða tillögum um lausn á vanda loðnuflotans.
Tilvísun til þess að heimamenn geti haft veruleg áhrif á það aflamagn, sem kemur til vinnslu á staðnum, með því að draga úr ferksfiskútflutningi, á ekki við nema á fáum þeim stöðum sem um er að ræða. Allra síst á þetta við um minni staðina norðan og austan lands þar sem loðnubresturinn hefur hlutfallslega mest áhrif á efnahagslíf viðkomandi byggðarlaga.
Bæjarráð Neskaupstaðar:
(20. febrúar 1991.)
Á fundi Bæjarráðs Neskaupstaðar, sem haldinn var í dag, var eftirfarandi tillaga samþykkt:
„Bæjarráð Neskaupstaðar mælir eindregið með því að frumvarp sjávarútvegsráðherra til laga um ráðstafanir vegna aflabrests í loðnuveiðum verði samþykkt.
Vandinn, sem við blasir, er margþættur. Hann snýr að eigendum loðnuskipa og verksmiðja, að því starfsfólki sem unnið hefur við þessa grein sjávarútvegsins og að sveitarfélögunum sem byggja að verulegu leyti afkomu sína á veiðum og vinnslu loðnu.
Bæjarráð Neskaupstaðar bendir þó á að þær ráðstafanir, sem frumvarpið gerir ráð fyrir, duga hvergi nærri til að leysa vanda loðnuflotans, hvað þá til að mæta öðrum afleiðingum loðnubrestsins.“
Bæjarráð Eskifjarðar:
(20. febrúar 1991.)
Eftirfarandi bókun var samþykkt í bæjarráði Eskifjarðar 20. febrúar 1991:
„Bæjarráð Eskifjarðar styður frumvarp til laga um ráðstafanir vegna aflabrests í loðnuveiðum, með tilliti til þess vanda sem steðjar að loðnuskipaflotanum.
Bæjarráð bendir á að engu að síður stendur vandi loðnuverksmiðja og sveitarfélaga óleystur að miklu leyti og skorar á stjórnvöld að leysa vanda þeirra sem fyrst.“
Hreppsnefnd Raufarhafnarhrepps:
(20. febrúar 1991.)
Hreppsnefnd Raufarhafnarhrepps vill árétta það sem fram kom á fundi okkar fyrir skömmu um ráðstafanir vegna aflabrests í loðnuveiðum. Því gerum við eftirfarandi athugasemdir við frumvarp til laga um ráðstafanir vegna aflabrests í loðnuveiðum.
Í góðri trú um að sérstöðu Raufarhafnar verði mætt með velvilja og skilningi kveðjum við að sinni.
Bæjarráð Seyðisfjarðar:
(20. febrúar 1991.)
Bæjarráð Seyðisfjarðar getur fallist á að sú ráðstöfun á Hagræðingarsjóði, sem fram kemur í frumvarpinu í ár, sé réttlætanleg við núverandi aðstæður.
Bæjarráð bendir þó á að nýstofnað fiskvinnslufyrirtæki á Seyðisfirði leit á Hagræðingarsjóð sem hugsanlegan bakhjarl vegna bolfiskveiðiheimilda.
Jafnframt bendir bæjarráð á að aðrir hagsmunaaðilar í loðnuveiðum og vinnslu, þ.e. loðnuverksmiðjur, landverkafólk og sveitarfélög, fá ekki úrlausn sinna mála í þessu frumvarpi.
Bæjarráð ætlast til að einnig verði tekið á vanda þessara aðila nú þegar.
Árvakur, Eskifirði:
(25. febrúar 1991.)
Stjórn Vmf. Árvakurs, Eskifirði, skorar á Alþingi að samþykkja frumvarp sjávarútvegsráðherra um ráðstafanir vegna aflabrests í loðnuveiðum.
Stjórnin leggur á það áherslu að tryggt verði að þessi aðstoð skili sér til allra þeirra sjómanna sem fyrir áföllum verða vegna aflabrestsins, en ekki eingöngu til útgerða loðnuskipa og loðnuverksmiðja.
Enn fremur hvetur stjórn Vmf. Árvakurs Alþingi til að gera ráðstafanir til aðstoðar þeim sjómönnum og verkamönnum sem verða fyrir tekjutapi vegna loðnubrestsins og lenda í erfiðleikum vegna afborgana af húsnæðislánum og öðrum fjárskuldbindingum sem byggðu á spá um eðlilega veiði á þessu ári.