Ferill 133. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 133 . mál.


Ed.

765. Nefndarálit



um frv. til l. um einkaleyfi.

Frá iðnaðarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk á sinn fund til viðræðna um málið Gunnar Guttormsson, forstöðumann vörumerkja- og einkaleyfadeildar iðnaðarráðuneytisins, Ómar Grétar Ingvarsson, verkfræðing í sömu deild, og Árna Vilhjálmsson, formann Samtaka áhugamanna um vernd eignarréttar á sviði iðnaðar.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt eins og það var afgreitt frá neðri deild.
    Guðrún J. Halldórsdóttir var fjarverandi afgreiðslu málsins.

Alþingi, 1. mars. 1991.



Karl Steinar Guðnason,


form., frsm.

Jón Helgason.

Ey. Kon. Jónsson.


Stefán Guðmundsson.

Margrét Frímannsdóttir.

Þorv. Garðar Kristjánsson.