Ferill 236. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 236 . mál.


Nd.

796. Nefndarálit



um frv. til l. um Héraðsskóga.

Frá landbúnaðarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og kallaði á sinn fund Jón Höskuldsson, deildarstjóra í landbúnaðarráðuneytinu. Nefndin hafði til hliðsjónar umsagnir sem bárust landbúnaðarnefnd efri deildar. Einnig bárust umsagnir frá fjármálaráðuneytinu, Ríkisendurskoðun, landbúnaðarráðuneytinu og Helga Gíslasyni, verkefnisstjóra Héraðsskóga.
    Nefndin kannaði sérstaklega hver væri réttarstaða „Héraðsskóga“. Í 2. mgr. 1. gr. frumvarpsins kemur fram að um sé að ræða sérstakt skógræktarverkefni um ræktun nytjaskóga á jörðum á Fljótsdalshéraði samkvæmt sérstakri áætlun. Landbúnaðarráðuneytið telur að þetta verkefni sé ekki ný ríkisstofnun heldur sjálfstætt verkefni sem heyri beint undir landbúnaðarráðherra og sérstakan fjárlagalið sem færður er beint undir landbúnaðarráðuneytið. Fjármálaráðuneytið og ríkisendurskoðun telja hins vegar að þau ákvæði frumvarpsins sem lúta að skipulagi og stjórn verkefnisins beri einkenni þess að um nýja ríkisstofnun sé að ræða. Nefndin telur ekki að fullu ljóst hver staða Héraðsskóga innan stjórnsýslunnar er og að kveða verði skýrar á um réttarstöðu Héraðsskóga og fastráðinna starfsmanna þeirra í lögum. Slík endurskoðun á stjórnunarþætti Héraðsskóga er óframkvæmanleg á þeim skamma tíma sem er til þinglausna. Jafnframt er mjög brýnt fyrir þá sem hagsmuna eiga að gæta, með því að taka þátt í átakinu, að lög um Héraðsskóga verði samþykkt á þessu þingi, ella kynni því að vera stefnt í hættu. Nefndin leggur því til að við frumvarpið bætist bráðabirgðaákvæði þar sem kveðið er á um endurskoðun á lögum um Héraðsskóga innan tveggja ára. Skal endurskoðunin sérstaklega miða að því að eyða óvissu um eðli og réttarstöðu Héraðsskóga.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.

Alþingi, 5. mars 1991.



Alexander Stefánsson,


form., frsm.

Guðni Ágústsson,


fundaskr.

Eggert Haukdal.


Ragnar Arnalds.

Málmfríður Sigurðardóttir.

Pálmi Jónsson.


Ásgeir Hannes Eiríksson.