Ferill 219. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 219 . mál.
Nd.
799. Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á l. nr. 73 28. maí 1969, um Stjórnarráð Íslands, með síðari breytingum.
Frá allsherjarnefnd.
Nefndin hefur fjallað um frumvarpið. Á fund hennar kom Indriði H. Þorláksson, fyrrverandi fjárlaga- og hagsýslustjóri. Umsagnir bárust frá Indriða H. Þorlákssyni og stjórnarráðsnefnd.
Nefndin leggur til að frumvarpið, sem gerir ráð fyrir sameiningu Fjárlaga- og hagsýslustofnunar og fjármálaráðuneytisins, verði samþykkt óbreytt.
Friðjón Þórðarson var fjarstaddur afgreiðslu málsins.
Alþingi, 5. mars 1991.
Jón Kristjánsson,
form., frsm.
Ólafur G. Einarsson,
fundaskr.
Rannveig Guðmundsdóttir.
Hulda Jensdóttir.
Ingi Björn Albertsson.
Guðni Ágústsson.