Ferill 237. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 237 . mál.
Ed.
805. Nefndarálit
um frv. til l. um sjóðshappdrætti til stuðnings flugbjörgunarmálum og skák.
Frá meiri hl. allsherjarnefndar.
Nefndin hefur fjallað um frumvarpið. Á fund hennar komu Sigurður Jónsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, Sigurður Steinar Ketilsson skipherra, Páll Halldórsson yfirflugstjóri, Örlygur Hálfdánarson, forseti Slysavarnafélags Íslands, Einar S. Einarsson, Jón Rögnvaldsson og Árni Emilsson frá Skáksambandi Íslands, Guðmundur Hallvarðsson, Þórhallur Hálfdánarson og Sigurður Ágúst Sigurðsson frá Happdrætti DAS, Gunnar Bragason, formaður Landssambands flugbjörgunarsveita, Arnfinnur Jónsson, varaformaður Landssambands hjálparsveita skáta, Jón Thors og Ólafur W. Stefánsson, skrifstofustjórar í dómsmálaráðuneytinu, Gunnar Bergsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, Ragnar Ingimarsson, Arnljótur Björnsson og Sigmundur Guðbjarnason háskólarektor frá Happdrætti Háskóla Íslands. Flestir fyrrgreindra manna sendu umsagnir eða lögðu fram gögn á fundi með nefndinni, en auk þess sendi Farmanna- og fiskimannasamband Íslands umsögn.
Meiri hl. nefndarinnar leggur til að veruleg breyting verði gerð á frumvarpinu. Í stað þess að fjölmargir aðilar standi að happdrættinu er lagt til að sjóðshappdrættið verði undir þriggja manna stjórn sem dómsmálaráðherra skipar og að allur hagnaður sem verður af happdrættinu renni óskiptur til kaupa á björgunarþyrlu. Stjórn happdrættisins getur falið öðrum aðila að annast framkvæmd happdrættisins en samningur skal staðfestur af dómsmálaráðherra. Lagt er til að heimild til reksturs happdrættisins gildi einungis í fimm ár. Ríkisendurskoðun mun hafa eftirlit með fjárreiðum happdrættisins. Þá er lagt til að heiti frumvarpsins verði breytt.
Í lið 5.40 í 6. gr. fjárlaga yfirstandandi árs er að finna heimild til handa fjármálaráðherra að ganga til samninga um kaup á björgunarþyrlu fyrir Landhelgisgæslu Íslands og taka til þess nauðsynleg lán að því tilskildu að önnur fjármögnun komi til, m.a. af happdrættisfé. Meiri hl. nefndarinnar telur því samþykkt þessa frumvarps vera forsendu fyrir því að þessi heimild fjárlaga verði nýtt og að lántökuheimild verði veitt í lánsfjárlögum. Leggur meiri hl. nefndarinnar til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.
Alþingi, 6. mars 1991.
Guðmundur Ágústsson,
form., frsm.
Jóhann Einvarðsson,
fundaskr.
Skúli Alexandersson.
Valgerður Sverrisdóttir.