Ferill 237. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 237 . mál.


Ed.

806. Breytingartillögur



við frv. til l. um sjóðshappdrætti til stuðnings flugbjörgunarmálum og skák.

Frá meiri hl. allsherjarnefndar (GuðmÁ, JE, SkA, VS).



     Við 1. gr. Greinin orðist svo:
                   Dómsmálaráðherra er með lögum þessum veitt heimild til að setja á stofn happdrætti til að standa að kaupum á björgunarþyrlu fyrir Landhelgisgæslu Íslands.
                   Skal happdrættið vera sjóðshappdrætti eins og nánar er kveðið á um í 3. gr.
                   Heimild þessi skal gilda til ársloka 1996.
     Við 2. gr. Greinin orðist svo:
                   Dómsmálaráðherra skal skipa þriggja manna framkvæmdastjórn er annist fjárreiður happdrættisins, skipulag og framkvæmd þess.
                   Einn stjórnarmaður skal skipaður samkvæmt tilnefningu Landhelgisgæslu Íslands en hinir tveir án tilnefningar og skal annar þeirra vera formaður framkvæmdanefndarinnar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Skipunartími skal vera fjögur ár í senn.
                   Heimilt er framkvæmdastjórn happdrættisins að gera samninga við aðra aðila um að taka að sér einstaka þætti happdrættisins eða framkvæmdina í heild. Skal dómsmálaráðherra staðfesta slíka samninga.
     Við 3. gr. Greinin orðist svo:
                   Sjóðshappdrættið er fólgið í því að þátttakendur greiði tiltekna fjárhæð eða margfeldi hennar í sérstakan sjóð sem safnað er upp um tiltekinn tíma. Vinninga skal síðan draga með tilviljunarkenndum hætti undir eftirliti bæjarfógetaembættisins í Reykjavík.
     Við 4. gr. Greinin orðist svo:
                   Lágmarksgjald fyrir þátttöku í happdrætti skal ákveðið af dómsmálaráðherra að fengnum tillögum frá framkvæmdastjórn happdrættisins.
     Við 5. gr. Greinin orðist svo:
                   Dómsmálaráðherra skal ákveða að fengum tillögum frá framkvæmdastjórn happdrættisins vinningshlutfall af fjárhæð sjóðsins hverju sinni. Vinningar skulu vera í formi ríkisskuldabréfa.
                   Vinningar skulu vera undanþegnir hvers konar opinberum gjöldum, öðrum en eignarskatti, á því ári sem þeir falla til.
     Við 6. gr. Greinin orðist svo:
                   Ágóða af happdrættinu skal varið til kaupa á björgunarþyrlu fyrir Landhelgisgæslu Íslands.
     Við 7. gr. Greinin orðist svo:
                   Ríkisendurskoðun skal hafa eftirlit með fjárreiðum happdrættisins.
     Við 8. gr. Greinin falli brott.
     Fyrirsögn frumvarpsins orðist svo: Frv. til l. um sjóðshappdrætti til stuðnings kaupum á björgunarþyrlu.