Ferill 237. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 237 . mál.


Ed.

816. Nefndarálit



um frv. til l. um sjóðshappdrætti til stuðnings flugbjörgunarmálum og skák.

Frá 2. minni hl. allsherjarnefndar.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið en varð ekki sammála um afgreiðslu málsins. Annar minni hl. nefndarinnar telur það vera skyldu stjórnvalda að sjá Landhelgisgæslu Íslands fyrir nauðsynlegum tækjum til björgunarstarfa. Þörfin fyrir kaup á öflugri björgunarþyrlu er mjög brýn og þolir enga bið.
    Öll meðferð málsins hefur verið með eindæmum í meðförum þingsins. Upphaflega frumvarpið er ekki lengur til þegar málið er afgreitt úr nefndinni þar sem frjáls félagasamtök, sem höfðu frumkvæði að því að fá leyfi til reksturs sjóðshappdrættis, þ.e. Flugbjörgunarsveitin og Skáksamband Íslands, eða önnur þau slysavarna- og björgunarsamtök sem komin voru inn í frumvarpið í drögum að breytingum á því sem ráðherra sendi nefndinni til umfjöllunar, eru þar ekki lengur samkvæmt þeim breytingartillögum sem meiri hl. nefndarinnar leggur fram. Nú eru þær í þá veru að hér er í raun um nýtt frumvarp um ríkisrekið happdrætti að ræða til kaupa á þyrlu. Engan veginn er hægt að gera sér grein fyrir hvaða tekjur slíkt happdrætti mun gefa af sér.
    Annar minni hl. er á móti því að Alþingi sé að skjóta sér á bak við happdrætti til að leysa þetta brýna nauðsynjamál en vill leggja sitt af mörkum til þess að hægt verði að ganga strax til samninga um kaup á stórri björgunarþyrlu með því að veita heimild í lánsfjárlögum til lántöku í því skyni. Annar minni hl. hefur nú þegar tryggt það að slík tillaga verði flutt við frumvarp til lánsfjárlaga sem nú er til meðferðar í neðri deild og á eftir að koma til efri deildar og treystir því að samstaða geti orðið um slíka lausn á þessu brýna máli.
    Annar minni hl. mun greiða fyrir því að málið gangi til 3. umr. en sitja hjá við afgreiðslu á breytingartillögum meiri hl. nefndarinnar.

Alþingi, 6. mars 1991.



Salome Þorkelsdóttir,


frsm.

Ey. Kon. Jónsson.