Ferill 229. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 229 . mál.


Nd.

836. Nefndarálit



um frv. til l. um atvinnuleysistryggingar, nr. 96/1990.

Frá minni hl. heilbrigðis- og trygginganefndar.



    Nefndin fékk á sinn fund fulltrúa VSÍ, Vinnumálasambands samvinnufélaga og ASÍ, eins og nánar er gerð grein fyrir í áliti meiri hl. nefndarinnar. Fulltrúar Alþýðusambands Íslands lögðu áherslu á að þörf væri á að skoða löggjöf um atvinnuleysistryggingar heildstætt og þá í samráði og í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins, enda hafa málefni atvinnuleysistrygginga löngum tilheyrt efnisþáttum kjarasamninga. Fulltrúar ASÍ töldu því eðlilegast að taka öll mál varðandi atvinnuleysistryggingar til meðferðar í einu. Ríkisstjórnin hefur heitið því að tekið verði á þessum málum í sambandi við upptöku tryggingagjalds þar sem allir launþegar greiða sinn hluta til atvinnuleysistrygginga og ættu þar af leiðandi að fá rétt til þeirra. Í meðferð ríkisstjórnarinnar á máli þessu ætti einnig að taka sérstakt tillit til stöðu einyrkja atvinnurekenda þannig að þeir fengju rétt til atvinnuleysistrygginga enda greiði þeir sinn hlut til þeirra. Með tilliti til þessa leggur minni hl. nefndarinnar til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.

Alþingi, 7. mars 1991.



Jón Sæmundur Sigurjónsson,


form., frsm.

Geir Gunnarsson.