Ferill 455. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 455 . mál.


Sþ.

859. Tillaga til þingsályktunar



um veiðar á hrefnu og langreyði.

Flm.: Jón Sæmundur Sigurjónsson, Stefán Guðmundsson, Kristinn Pétursson

,

Alexander Stefánsson, Halldór Blöndal, Guðni Ágústsson,


Matthías Bjarnason, Karvel Pálmason, Guðmundur H. Garðarsson,


Jóhann Einvarðsson.



    Alþingi ályktar að veiðar á hrefnu og langreyði verði sem fyrst hafnar á ný enda hafa rannsóknir staðfest að stofnar þessara hvala á íslensku hafsvæði eru vel nýtanlegir.

Greinargerð.


    Tillaga þessi er flutt af meiri hl. sjávarútvegsnefnda beggja deilda. Þess vegna eru formenn nefndanna fyrstu flutningsmenn tillögunnar.
    Hvalveiðar í atvinnuskyni hafa legið niðri frá lokum vertíðar árið 1985, en árið 1986 gekk í gildi tímabundið veiðibann samkvæmt ákvörðun Alþjóðahvalveiðiráðsins og var sú ákvörðun rædd á Alþingi í ársbyrjun 1983. Þörf var talin á verulega auknum rannsóknum til að endurmeta stofnstærðir og veiðiþol hvala hér við land áður en veiðar yrðu leyfðar á ný.
    Hafrannsóknastofnuninni var falið að skipuleggja og annast framkvæmd fjögurra ára rannsóknaáætlunar sem einkum beindist að þeim hvalastofnum sem nýttir hafa verið hér á undanförnum áratugum. Þetta eru stofnar hrefnu, sandreyðar og langreyðar. Úttekt vísindanefndar Alþjóðahvalveiðiráðsins á hrefnustofninum lauk á síðasta ári og úttekt á langreyðarstofninum er nýlokið. Gert er ráð fyrir að úttekt á sandreyðarstofninum ljúki á næsta ári.
    Niðurstöður rannsókna sýna að bæði langreyður og hrefna þola umtalsverða nýtingu hér við land á komandi árum. Hrefnustofninn á svæðinu Austur - Grænland, Ísland, Jan Mayen er samkvæmt nýjustu upplýsingum um 28.000 dýr, þar af 10.000 – 15.000 á íslenska strandsvæðinu. Á fundi vísindanefndar Alþjóðahvalveiðiráðsins á sl. ári var samþykkt að stofninn væri á nýtanlegu stigi. Nefndin tók svo til athugunar talningagögn um langreyðar á fundi sínum í Reykjavík í byrjun mars 1991 og ályktaði að á svæðinu Austur - Grænland, Ísland, Jan Mayen væru að sumarlagi um 15.600 langreyðar, þar af milli Grænlands og Íslands og á svæðinu þar fyrir sunnan um 8.900 hvalir. Ljóst er því að veruleg langreyðargengd er hér við land, hvort sem litið er til þess svæðis, sem veitt hefur verið á undanfarna fjóra áratugi, þ.e. við vestanvert landið, eða við austanvert landið þar sem verulegar veiðar voru stundaðar um síðustu aldamót.
    Í samræmi við ályktun Alþjóðahvalveiðiráðsins og Alþingis um tímabundna veiðistöðvun atvinnuveiða var þess vænst að heildarúttekt ráðsins lyki árið 1990 og unnt yrði að taka þessa ákvörðun þá til endurskoðunar. Nú þegar þessu starfi er að ljúka eru háværar raddir innan ráðsins um að ekki verði efnt til veiða með samþykki ráðsins, nema búið verði að koma á nýju stjórnunarkerfi fyrir hvalveiðar. Fyrir liggur að slík endurskoðun er enn stutt á veg komin og fyrirsjáanlegt er að ekki komi til veiða næstu árin. Því er brýnt að stjórnvöld tryggi að veiðar geti hafist hið fyrsta, en aðgát sé höfð um að ganga ekki um of á endurnýjunargetu stofnanna.