Ferill 103. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 103 . mál.


Sþ.

860. Nefndarálit



um till. til þál. um úrbætur á aðstæðum ungmenna sem flosna upp úr skóla.

Frá félagsmálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um tillöguna og fengið um hana umsagnir frá lögreglustjóranum í Reykjavík, Hagstofu Íslands, foreldrasamtökunum Vímulaus æska, Unglingaheimili ríkisins, landlækni, útideild Félagsmálastofnunar Reykjavíkur og Krýsuvíkursamtökunum. Þá fékk nefndin á sinn fund Þórð Skúlason, framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga, Ómar Smára Ármannsson, aðstoðaryfirlögregluþjón í forvarnadeild lögreglunnar í Reykjavík, og Harald Finnsson, deildarsérfræðing í menntamálaráðuneytinu.
    Nefndin mælir með samþykkt tillögunnar með breytingu sem flutt er tillaga um á sérstöku þingskjali. Nefndin leggur áherslu á að samstarfshópur sá, sem tillagan gerir ráð fyrir að komið verði á fót, hafi samráð um verkefni sitt við fulltrúa barnaverndarnefnda eða barnaverndarráðs, aðila vinnumarkaðarins, útideildir félagsmálastofnana sveitarfélaga, fulltrúa foreldra hlutaðeigandi barna og framkvæmdahóp um málefni miðborgarinnar í Reykjavík sem komið var á fót í ársbyrjun 1990 að frumkvæði lögreglunnar í Reykjavík. Félagsmálanefnd er kunnugt um að áðurgreindur miðborgarhópur hefur rætt hugmyndir um skipan samstarfsnefndar um málefni barna og unglinga á höfuðborgarsvæðinu, en nefndin telur hins vegar að þar sem vandamál ungmenna, sem flosna upp úr skóla, eru ekki bara bundin við höfuðborgarsvæðið, sé eðlilegast að koma á fót samstarfshópi er fjalli um vandamálið fyrir landið í heild.

Alþingi, 5. mars 1991.



Ásgeir Hannes Eiríksson,


varaform.

Rannveig Guðmundsdóttir,


fundaskr., frsm.

Sólveig Pétursdóttir.


Alexander Stefánsson.

Kristinn Pétursson.

Anna Ólafsdóttir Björnsson.


Björn Grétar Sveinsson.