Ferill 69. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 69 . mál.


Nd.

877. Breytingartillaga



við frv. til. um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.

Frá meiri hl. félagsmálanefndar (RG, GHelg, JK, GHH, EH).



    1. mgr. 19. gr. orðist svo:
    Félagsmálaráðherra skipar kærunefnd jafnréttismála til þriggja ára í senn og skulu nefndarmenn vera lögfræðingar. Félagsmálaráðherra skipar einn án tilnefningar og Hæstiréttur tilnefnir tvo, þar af annan sem formann nefndarinnar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Þegar um er að ræða mál, sem ætla má að geti haft stefnumarkandi áhrif á vinnumarkaðinn í heild, skal kærunefnd leita umsagnar frá heildarsamtökum launþega og viðsemjendum þeirra.