Ferill 320. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. –
320
. mál.
Nd.
889. Breytingartillögur
við frv. til l. um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri.
Frá 2. minni hl. fjárhags- og viðskiptanefndar (FrS, MB).
2. tölul. 4. gr. orðist svo: Íslenskir ríkisborgarar, sem eiga lögheimili hérlendis, og lögaðilar, sem eiga heimili hér á landi og eru að öllu leyti í eigu íslenskra ríkisborgara sem eiga lögheimili hérlendis, mega einir eiga og reka fyrirtæki til vinnslu sjáarafurða hér á landi, en með vinnslu sjávarafurða er hér átt við frystingu, söltun og herslu og aðrar vinnsluaðferðir sem verja fisk og aðrar sjávarafurðir skemmdum. Til vinnslu í þessu sambandi telst hins vegar ekki bræðsla og mjölvinnsla, reyking, súrsun, niðursuða og niðurlagning, umpökkun afurða í neytendaumbúðir eða frekari vinnsla afurða til að gera þær hæfari til dreifingar, neyslu eða matreiðslu.
4. tölul. 4. gr. falli brott.
5. tölul. 4. gr. orðist svo: Samanlögð hlutafjáreign erlendra aðila í íslenskum viðskiptabanka, sem rekinn er af hlutafélagi, má á hverjum tíma ekki vera meiri en 25% hlutafjár hlutafélagsbankans. Frá 1. janúar 1992 hækkar framangreint hámark í 50%. Frá 1. janúar 1995 mega erlendir aðilar kaupa hlut í íslenskum hlutafélagsbanka án takmarkana annarra en þeirra sem af lögum þessum leiðir.
Frá 1. janúar 1992 er erlendum hlutafélagsbönkum, sem eru skráðir erlendis og eiga þar varnarþing, heimilt að starfrækja rekstur útibúa hér á landi að fengnu leyfi viðskiptaráðherra.
7. tölul. 4. gr. orðist svo: Fari heildarfjárfesting erlends aðila eða samanlögð fjárfesting fjárhagslega tengdra erlendra aðila í atvinnurekstri hér á landi fram úr 1.000 milljónum króna á einu almanaksári skal fjárfesting umfram fyrrgreind viðmiðunarmörk háð sérstöku leyfi viðskiptaráðherra. Viðmiðunarmörkin miðast við lánskjaravísitölu í júní 1990, 2887 stig, og breytast í samræmi við breytingar sem verða á henni til hækkunar eða lækkunar. Fjárfesting erlends aðila telst eiga sér stað í skilningi þessa töluliðar þegar tilkynningarskylda stofnast, sbr. 5. gr.
10. gr. falli brott.