Ferill 237. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 237 . mál.
Ed.
899. Breytingartillaga
við frv. til l. um sjóðshappdrætti til stuðnings kaupum á björgunarþyrlu.
Frá Skúla Alexanderssyni.
Við bætist ákvæði til bráðabirgða er orðist svo:
Einstaklingar og lögaðilar skulu greiða af almennum eignarskattsstofni, sem greiðist af 1,2% eignarskattur, sbr. 83. og 84. gr. laga um tekjuskatt og eignarskatt, nr. 75/1981, með síðari breytingum, 0,07% í sjóð til kaupa á björgunarþyrlu. Kemur eignarskatturinn til framkvæmda við álagningu gjalda fyrir árin 1991 – 1994.