Ferill 340. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 340 . mál.
Nd.
900. Nefndarálit
um frv. til l. um leikskóla.
Frá meiri hl. menntamálanefndar.
Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk á sinn fund til viðræðna um það Berg Felixson, framkvæmdastjóra Dagvistar barna í Reykjavík, Selmu Dóru Þorsteinsdóttur, formann Fóstrufélags Íslands, Jónínu Bjartmarz, Odd Sigurðsson og Stefaníu Björnsdóttur frá Samtökum foreldra barna í leikskóla. Þá barst nefndinni kostnaðarumsögn um frumvarpið frá fjármálaráðuneytinu.
Meiri hl. nefndarinnar mælir með samþykkt frumvarpsins með breytingu sem flutt er tillaga um á sérstöku þingskjali.
Alþingi, 12. mars 1991.
Ragnar Arnalds,
form., frsm.
Guðmundur G. Þórarinsson.
Ólafur Þ. Þórðarson.
Árni Gunnarsson.