Ferill 406. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 406 . mál.


Ed.

930. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um Húsnæðisstofnun ríkisins, nr. 86/1988, sbr. lög nr. 76/1989, 70/1990, 124/1990 og 130/1990.

Frá 1. minni hl. félagsmálanefndar.



    Fyrsti minni hl. telur að frumvarp þetta hafi komið of seint fram á þinginu til þess að unnt sé að afgreiða það á fullnægjandi hátt. Þessu til staðfestingar vísast m.a. til álita ýmissa kunnáttumanna um framkvæmd húsnæðismála sem mættu hjá félagsmálanefnd deildarinnar við meðferð málsins.
    Með vísan til þessa telur 1. minni hl. eðlilegt að afgreiðslu málsins verði frestað og að húsnæðismálin verði í heild tekin til gagngerðrar endurskoðunar.
    Fyrsti minni hl. mun sitja hjá við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 13. mars 1991.



Guðmundur H. Garðarsson,


fundaskr.

Salome Þorkelsdóttir,


frsm.