Ferill 340. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 340 . mál.


Nd.

936. Nefndarálit



um frv. til l. um leikskóla.

Frá 1. minni hl. menntamálanefndar.



    Síðastliðin tvö ár, eða allt frá því að Svavar Gestsson menntamálaráðherra skipaði nefnd til að endurskoða gildandi lög um uppbyggingu og rekstur dagvistarheimila, hefur aðgerða núverandi ríkisstjórnar í þessum málaflokki verið beðið. Sú nefnd, forskólanefndin, skilaði af sér tillögum að nýju frumvarpi til laga um leikskóla ásamt sérstöku frumvarpi til laga um ríkisframlag til sveitarfélaga vegna leikskóla.
    Eftir meðferð þessara frumvarpstillagna í ríkisstjórninni fæddist lítil mús nokkrum vikum fyrir þingslit: Það frumvarp til laga um leikskóla sem nú liggur fyrir Alþingi. Þó að þetta frumvarp geri ráð fyrir að leikskólinn verði sérstakt skólastig fyrir börn frá því að fæðingarorlofi lýkur til 6 ára aldurs og heyri áfram undir menntamálaráðuneytið er réttur allra barna til leikskólavistar ekki tryggður. Þá hefur frumvarpið um ríkisframlag til sveitarfélaga vegna leikskóla ekki verið lagt fram, en það er birt sem fylgiskjal með leikskólafrumvarpinu.
    Nú liggur beint við að spyrja: Hvernig stendur á því að frumvarp ríkisstjórnarinnar er ekki bitastæðara en það er og hvers vegna kemur það svona seint fram? Augljóst er að ekki hefur náðst eining um að leggja fram fjármögnunarfrumvarpið þó að jafnaugljóst sé að ef fullnægja á eftirspurn eftir dagvistun á næstu 5 – 10 árum verður slíkt ríkisframlag að koma til. Samkvæmt lögum um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga frá 1989 á kostnaður við uppbyggingu og rekstur leikskóla alfarið að vera á ábyrgð sveitarfélaga, en miðað við áætlaðar kostnaðartölur, sem fram koma í áðurnefndu fylgiskjali, frumvarpinu um ríkisframlag, misjafnan fjárhag sveitarfélaga og mismikinn pólitískan vilja, verður ekki séð hvernig öllum börnum verður tryggður aðgangur að leikskóla nema með aðstoð ríkisvaldsins.
    En það er fleira varðandi leikskólann sem ekki hefur verið eining um í ríkisstjórninni. Eins og alþjóð veit hafa tveir ráðherrar deilt hart um það hvaða ráðuneyti skuli fara með málefni leikskólans og um leið hvort líta beri á leikskólann sem uppeldisstofnun fyrir öll börn eins og grunnskólann eða hvort skilgreina eigi þjónustu leikskólans sem félagslega þjónustu sveitarfélaga við þá foreldra og börn sem hennar óska. Þó að þessi deila ráðherranna virðist ómerkileg frá sjónarmiði þeirra sem vilja fyrst og fremst fleiri og sveigjanlegri dagvistarstofnanir telur 1. minni hl. að lausn hennar geti skipt afar miklu máli bæði uppeldislega og ekki síður pólitískt.
    Frá uppeldislegu sjónarmiði telur 1. minni hl. ákaflega mikilvægt að leikskólinn sé viðurkenndur sem sérstakt skólastig sem heyri áfram undir menntamálaráðuneytið. Þá eru í fyrirliggjandi frumvarpi merk ákvæði um leikskólarannsóknir og þróunarstarf sem er mjög mikilvægt nýmæli. Einnig er mikilvægt að viðurkennt er að leikskólinn eigi að vera frá þeim tíma að fæðingarorlofi lýkur til 6 ára aldurs, þannig að festa og samfella verði í þeirri uppeldisaðstoð sem foreldrum býðst fyrir börn sín. Þetta yrði auðvitað aðeins valkostur fyrir þá foreldra sem kjósa leikskólavist fyrir börn sín. Pólitískt er það einnig mikilvægt að menntamálaráðuneytið hafi hér yfirstjórn, ekki síst til að réttur allra barna verði jafnmikill, óháð búsetu.
    Fyrsti minni hl. styður þetta frumvarp sem mikilvægt skref í rétta átt þó að harmað sé jafnframt að ekki er gengið lengra. Kvennalistinn mun beita sér fyrir því á næsta þingi að öll börn eigi kost á leikskólavist frá því að fæðingarorlofi lýkur til 6 ára aldurs og að ríkisframlag komi til sveitarfélaga til að tryggja sem hraðasta uppbyggingu leikskóla. Vel mætti einnig hugsa sér leikskólann rekinn með sama hætti og grunnskólann að því leyti að ríkið greiði laun fóstra eins og kennara. Slíkt fyrirkomulag samræmdist best því sjónarmiði að leikskólinn sé sérstakt skólastig fyrir öll börn.

Alþingi, 13. mars 1991.



Guðný Guðbjörnsdóttir.