Ferill 161. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 161 . mál.


Nd.

1004. Nefndarálit



um frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1991.

Frá meiri hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.



    Nefndin hefur haft frumvarpið til athugunar um nokkurt skeið og fékk til fundar við sig Yngva Örn Kristinsson og Bjarna Braga Jónsson frá Seðlabanka Íslands, Halldór Jónatansson, Jóhann Má Maríusson og Örn Marinósson frá Landsvirkjun, Magnús Pétursson, Halldór Árnason og Jón Ragnar Blöndal frá fjármálaráðuneytinu, Sveinbjörn Óskarsson frá fjármálaráðuneytinu vegna Herjólfs hf., Leif Kr. Jóhannesson frá Stofnlánadeild landbúnaðarins, Benedikt Jónsson frá Lífeyrissjóði bænda, Hermann Guðjónsson og Eyþór Elíasson frá Vita- og hafnamálastofnun, Kristínu Halldórsdóttur og Magnús Oddsson frá Ferðamálaráði, Jóhönnu Leópoldsdóttur og Snorra Tómasson frá Ferðamálasjóði, Þorstein Jónsson frá Kvikmyndasjóði, Braga Hannesson frá Iðnlánasjóði, Þorvarð Alfonsson frá Iðnþróunarsjóði, Guðmund Malmquist frá Byggðastofnun, Markús Örn Antonsson og Hörð Vilhjálmsson frá Ríkisútvarpinu, Jóhönnu Ottesen frá Útflutningslánasjóði, Hrafn Pálsson frá Framkvæmdasjóði aldraðra, Gísla Konráðsson frá Stéttarsambandi bænda, Gísla Karlsson frá Framleiðnisjóði, Þórð Friðjónsson frá Þjóðhagsstofnun, Hauk Hafsteinsson frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóði hjúkrunarkvenna, Sturlu Tómasson og Grétu Aðalsteinsdóttur frá Framkvæmdasjóði fatlaðra, Snæbjörn Jónasson frá Vegagerð ríkisins, Hauk Hauksson frá Flugmálastjórn, Árna Þór Sigurðsson og Þórð G. Valdimarsson frá Lánasjóði íslenskra námsmanna, Þórleif Jónsson frá Landssambandi iðnaðarmanna, biskup Íslands, herra Ólaf Skúlason, Kristján Jónasson, Engilbert Ingvarsson og Birgi Ómar Haraldsson frá Djúpbátnum hf., Einar Sigurðsson og Guðmund Hermannsson frá hreppsnefnd Ölfushrepps, Sigurð E. Guðmundsson og Hilmar Þórisson frá Húsnæðisstofnun ríkisins, Halldór Kristjánsson frá samgönguráðuneytinu, Jón Ólafsson frá Félagi fiskmjölsframleiðenda og Þorstein Gíslason frá Síldarverksmiðjum ríkisins.
    Meiri hl. nefndarinnar mælir með samþykkt frumvarpsins með breytingartillögum sem flutt er tillaga um á sérstöku þingskjali. Nefndarmenn úr meiri hl. flytja einnig breytingartillögur á þingskjali 1006 og 1008.
    Í fylgiskjali með áliti þessu er birt yfirlit yfir aukin útgjöld og ábyrgðir ríkissjóðs samkvæmt breytingartillögum á þingskjali 1005 og 1006.

Alþingi, 15. mars 1991.



Páll Pétursson,


form., frsm.

Ólafur Þ. Þórðarson.

Jón Sæmundur Sigurjónsson.


Ragnar Arnalds.




Fylgiskjal.


Frumvarp til lánsfjárlaga 1991.


    Aukin útgjöld og ábyrgðir ríkissjóðs samkvæmt breytingartillögum á þskj. 1005 og 1006 (í millj. kr.).

Aukin rekstrarútgjöld A-hluta, skv. 1. gr.     
1.189

    Framkvæmdasjóður aldraðra     
130

    Framkvæmdasjóður fatlaðra     
35

    Bjargráðasjóður     
65

    Kvikmyndasjóður     
14

    Meðferðarstöðin að Fitjum     
20

    Tjónabætur til ríkisfyrirtækja vegna óveðurs     
350

    Til framkvæmda vegna loðnubrests o.fl.     
100

    Ríkisspítalar — endurnýjun tölvubúnaðar     
50

    Fraktflutningar     
25

    Vaxtagreiðslur ríkissjóðs vegna yfirtöku
              á lánum Byggðastofnunar     
300

    Staðfesting samnings vegna þyrlukaupa .     
100

    
Aukin endurlán ríkissjóðs, skv. 1. gr.     
735

    Fiskveiðasjóður Íslands — úrelding loðnuverksmiðja     
200

    Síldarverksmiðjur ríkisins     
300

    Byggðastofnun — vandi rækjuverksmiðja     
200

    Lánasjóður sveitarfélaga — umhverfisbætandi framkvæmdir     
35

Auknar ríkisábyrgðir, skv. I. kafla (3. – 18. gr.)     
1.445

    Landsvirkjun, lægri gjaldskrárhækkanir     
400

    Landsvirkjun, undirbúningur stóriðju     
800

    Djúpbáturinn     
45

    Skuldbreytingar loðnuverksmiðja     
200

    
Fjárskuldbindingar — yfirtaka lána     
2.900

    Búvörusamningur     
1.700

    Byggðastofnun — yfirtaka lána     
1.200


    Til viðbótar koma liðir sem ekki er hægt, að svo komnu máli, að tilgreina ákveðnar fjárhæðir fyrir. Hér er um að ræða:
     Auknar ríkisábyrgðir:
         
    
     Vatnsleysustrandarhreppur.
         
    
     Rarik. Kaup á orkuveitum.
     Annað:
         
    
     Hitaveita Hjaltadals — yfirtaka lána.
         
    
     Niðurfelling gjalda af flugskýli.
         
    
     Gjafir til björgunarsveita o.fl.