Ferill 161. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 161 . mál.
Nd.
1026. Breytingartillaga
við frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1991.
Frá Ásgeiri Hannesi Eiríkssyni.
Á eftir 15. gr. komi ný grein er orðist svo:
Fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs er heimilt að taka lán að fjárhæð allt að 1.000 millj. kr. til að endurlána Ólafi J. Laufdal í því skyni að hann fái aftur afhent bú sitt, þar með talið Hótel Ísland, og geti lokið smíði þess. Ríkissjóður skal fá allsherjarveð í eignum Ólafs.