Ferill 459. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 459 . mál.


Nd.

1054. Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á þjóðminjalögum, nr. 88/1989.

Frá menntamálanefnd.



     Við 1. gr. Greinin orðist svo:
                   Eftirfarandi breytingar verði á 3. gr. laganna:
         
    
     Í stað orðanna „deildarstjóri fornleifadeildar“ í síðasta málslið 2. mgr. komi: fornminjavörður.
         
    
     Í stað orðanna „deildarstjóra fornleifadeildar“ í síðasta málslið 5. mgr. komi: fornminjavarðar.
     Við 2. gr.
         
    
     Í stað orðanna „3. málsl.“ í upphafi a-liðar komi: 4. málsl.
         
    
     Í stað orðanna „4. málsl.“ í b-lið komi: 5. málsl.
         
    
     Í stað orðsins „fornleifafræðingar“ í b-lið komi: fornleifaverðir.
     Við 5. gr. Í stað orðsins „fornleifafræðings“ komi: fornleifavarðar.
     Á eftir 6. gr. komi ný grein er orðist svo:
                   Lög þessi öðlast gildi 1. september 1991.