Ferill 174. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 174 . mál.


Ed.

1088. Nefndarálit



um frv. til l. um grunnskóla.

Frá meiri hl. menntamálanefndar.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og leggur meiri hl. nefndarinnar til að frumvarpið verði samþykkt eins og neðri deild afgreiddi það. Einstakir nefndarmenn áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja breytingartillögum er fram kunna að koma. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í nefndinni, Salome Þorkelsdóttir og Halldór Blöndal, lögðust ekki gegn því að frumvarpið yrði afgreitt úr nefndinni en munu gera grein fyrir afstöðu sinni við 2. umr. málsins.

Alþingi, 19. mars 1991.



Eiður Guðnason,


form., frsm.

Guðrún J. Halldórsdóttir,


fundaskr., með fyrirvara.

Valgerður Sverrisdóttir.


Skúli Alexandersson.

Jón Helgason.