Ferill 406. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 406 . mál.


Nd.

1095. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um Húsnæðisstofnun ríkisins, nr. 86/1988, sbr. lög nr. 76/1989, 70/1990, 124/1990 og 130/1990.

Frá 2. minni hl. félagsmálanefndar.



    Annar minni hl. flytur breytingartillögu við frumvarpið en mun að öðru leyti ekki hafa afskipti af afgreiðslu þess. Eðlilegt er að ráðandi meiri hl. á Alþingi beri einn ábyrgð á framgangi þessa máls.
    Breytingartillaga 2. minni hl. lýtur að því að fella brott úr frumvarpinu heimild til að hækka vexti á lánum Byggingarsjóðs ríkisins þegar eigendaskipti verða að íbúð. Á nefndarfundi í félagsmálanefnd kom fram að framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar telur mikla meinbugi á framkvæmd slíkrar heimildar. Annar minni hl. telur eðlilegast að allir lántakendur sitji við sama borð komi til vaxtabreytinga. Má í því sambandi minna á þá hugmynd ráðherranefndar ríkisstjórnarinnar að vextir breytist eftir að ákveðinn fjöldi ára, t.d. 10 ár, er liðinn frá því lán var veitt.

Alþingi, 19. mars 1991.



Geir H. Haarde,


frsm.

Eggert Haukdal.