Ferill 174. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 174 . mál.


Ed.

1096. Breytingartillögur



við frv. til l. um grunnskóla.

Frá menntamálanefnd.



     Við 3. gr. 2. mgr. orðist svo:
                   Stefnt skal að því að hver grunnskóli sé einsetinn.
     Við 9. gr. 3. mgr. orðist svo:
                   Ráðið skal skipað 12 fulltrúum: Tveimur fulltrúum kennarasamtaka, einum fulltrúa skólastjórnenda, tveimur fulltrúum foreldrafélaga eða samtaka þeirra og skal annar þeirra vera fulltrúi foreldrafélaga í dreifbýli, einum fulltrúa Kennaraháskóla Íslands, einum fulltrúa Háskóla Íslands, einum fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga, einum fulltrúa Námsgagnastofnunar auk þriggja fulltrúa menntamálaráðuneytisins og skal einn þeirra vera fræðslustjóri og einn skólastjóri á framhaldsskólastigi.
     Við 13. gr. Í stað orðsins „skólaráð“ í 5. mgr. komi: samstarfsráð.
     Við 16. gr. Í stað orðanna „Að fengnu samþykki menntamálaráðuneytisins er fræðslustjóra“ í upphafi 4. mgr. komi: Fræðslustjóra er.
     Við 17. gr. Greinin orðist svo:
                   Skólahverfi er sú eining sem stendur að einum grunnskóla eða fleiri. Sveitarfélög geta sameinast um rekstur grunnskóla og mynda þá eitt skólahverfi. Sveitarfélag, sem rekur tvo eða fleiri grunnskóla, telst eitt skólahverfi. Sveitarfélag getur átt aðild að fleiri en einu skólahverfi ef börn og unglingar á skólaskyldualdri úr því sveitarfélagi eiga skólasókn til tveggja eða fleiri skólahverfa.
     Á eftir 19. gr. komi ný grein er orðist svo:
                   Við hvern grunnskóla skal starfa skólaráð sem er stjórn skólans til ráðuneytis um innri mál hans, svo sem kennsluskipan, starfsáætlanir, skólatíma, slysavarnir og félagslíf í skólanum og fleira sem varðar daglega starfsemi skólans.
                   Skólaráð skal skipað þremur mönnum. Einn tilnefndur af kennurum og öðrum starfsmönnum skólans, einn tilnefndur af foreldrum (foreldrafélagi ef það er til) og einn tilnefndur af nemendum (nemendaráði ef það er til). Fulltrúar í skólaráði skulu valdir við upphaf skólaárs til eins árs í senn. Skólaráð skal koma saman til fundar eigi sjaldnar en þrisvar á ári. Skólastjóri eða staðgengill hans situr fundi skólaráðs. Skylt er fulltrúa skólanefndar, fræðslustjóra, fulltrúa hans eða fulltrúa fræðsluráðs að mæta á fundi skólaráðs ef ráðið óskar þess.
                   Menntamálaráðherra setur reglugerð um störf og starfshætti skólaráðs og setur skólaráði erindisbréf.
                   Heimilt er skóla að sækja um með rökstuddri greinargerð undanþágu frá ákvæði greinar þessarar til menntamálaráðuneytisins. Gildar ástæður þurfa að liggja fyrir undanþágu, svo sem ef skóli er mjög fámennur.
     Við 45. gr.
         
    
     G – j - liðir 1. mgr. orðist svo:
                        g.  í 7. bekk 1440 mínútur,
                        h.  í 8. bekk 1440 mínútur,
                        i.       í 9. bekk 1480 mínútur,
                        j.       í 10. bekk 1480 mínútur,
         
    
     Við bætist ný málsgrein er orðist svo:
                        Komið skal á fót skólaathvörfum við hvern grunnskóla, þar sem þörf er á, þar sem nemendur geta dvalist utan kennslustunda. Til að standa straum af viðbótarkostnaði er heimilt að taka gjald fyrir dvöl nemenda í skólaathvörfum og skal upphæð gjaldsins ákveðin af skólastjóra í samráði við fræðslustjóra.
     Við 50. gr. Orðin „hvaða námsgögn eru látin í té og“ í 2. mgr. falli brott.
     Við 72. gr. Síðasta málsgrein falli brott.
     Við 74. gr. Síðari málsgrein orðist svo:
                   Við ákvörðun fjölda kennslustunda, sem ríkissjóður greiðir í hverjum skóla, skal miða við að í 2. – 3. bekk séu nemendur í einstökum bekkjardeildum ekki fleiri en 22 og í 4. – 10. bekk ekki fleiri en 28. Í 1. bekk séu nemendur í einstökum bekkjardeildum ekki fleiri en 18.
     Við 85. gr. Í stað orðanna „Lög þessi öðlast þegar gildi“ komi: Lög þessi öðlast gildi 1. ágúst 1991.
     Við ákvæði til bráðabirgða. 2. málsl. 4. mgr. orðist svo: Jafnframt verði á því árabili jafnt og þétt aukið við kennslutíma grunnskólanemenda þannig að við lok tímabilsins verði vikulegur stundafjöldi í samræmi við það sem segir í 45. gr., skóladagur samfelldur og nemendur eigi kost á skólamáltíðum.