Ferill 406. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 406 . mál.


Nd.

1097. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um Húsnæðisstofnun ríkisins, nr. 86/1988, sbr. lög nr. 76/1989, 70/1990, 124/1990 og 130/1990.

Frá 3. minni hl. félagsmálanefndar.



    Þriðji minni hl. er samþykkur þeirri breytingu sem frumvarpið gerir ráð fyrir, að hætt verði að taka við umsóknum um húsnæðislán samkvæmt lögum nr. 54/1986. Að því er hins vegar ekki staðið á fullnægjandi hátt með þessari afgreiðslu málsins.
    Í frumvarpinu og í meðförum nefndarinnar hafa ekki fengist fullnægjandi svör við því hvernig ætlunin er að fjármagna þau lán sem afgreidd verða samkvæmt lánakerfinu frá 1986 og afgreidd verða samkvæmt þessu kerfi miðað við ákvæði laganna.
    Nefndinni gafst nær enginn tími til að fjalla um málið, en þó liggur fyrir að mörgum óvissuþáttum verður vísað til næstu ríkisstjórnar.
    Að slíkri afgreiðslu getur 3. minni hl. ekki staðið og mun sitja hjá við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 19. mars 1991.



Anna Ólafsdóttir Björnsson.