Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1108, 113. löggjafarþing 459. mál: þjóðminjalög (fornminjavörður).
Lög nr. 43 27. mars 1991.
Þingskjal 1108, 113. löggjafarþing 459. mál: þjóðminjalög (fornminjavörður).
Lög nr. 43 27. mars 1991.
Lög um breyting á þjóðminjalögum, nr. 88/1989.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verði á 3. gr. laganna:- Í stað orðsins „deildarstjóri fornleifadeildar“ í síðasta málsl. 2. mgr. komi: fornminjavörður.
- Í stað orðsins „deildarstjóra fornleifadeildar“ í síðasta málsl. 5. mgr. komi: fornminjavarðar.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verði á 5. gr. laganna:- 4. málsl. 3. mgr. orðist svo: Auk þess fornleifasvið sem skipta má í deildir eins og þurfa þykir og lýtur stjórn fornleifanefndar, sbr. 3. gr.
- Í stað orðanna „Deildarstjóri fornleifadeildar og fornleifaverðir“ í upphafi 5. málsl. 3. mgr. komi: Fornminjavörður og fornleifaverðir.
3. gr.
Í stað orðanna „Fornleifadeild lætur, eftir föngum,“ í upphafi 1. mgr. 17. gr. laganna komi: Fornminjavörður lætur.4. gr.
Í stað orðsins „Fornleifadeild“ í upphafi síðari málsliðar 19. gr. laganna komi: Fornminjavörður.5. gr.
4. málsl. 22. gr. laganna orðist svo: Rannsóknir útlendinga skulu vera undir yfirumsjón fornminjavarðar og fornleifavarðar viðkomandi svæðis.6. gr.
Í stað orðanna „Fornleifadeild eða“ í upphafi 23. gr. laganna komi: Fornminjavörður og.7. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. september 1991.Samþykkt á Alþingi 19. mars 1991.