Ferill 229. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 229 . mál.
Ed.
1127. Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á l. um atvinnuleysistryggingar, nr. 96/1990.
Frá meiri hl. heilbrigðis- og trygginganefndar.
Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk á sinn fund Ásmund Stefánsson frá Alþýðusambandi Íslands og Þórarin V. Þórarinsson frá Vinnuveitendasambandi Íslands.
nefndarinnar telur að frumvarp þetta þurfi frekari skoðunar við. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur nú þegar ákveðið að skipa nefnd sem gerir tillögur um heildarendurskoðun atvinnuleysistrygginga og í trausti þess að slík endurskoðun fari fram leggur meiri hl. nefndarinnar til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
Alþingi, 20. mars 1991.
Valgerður Sverrisdóttir,
form., frsm.
Karl Steinar Guðnason.
Stefán Guðmundsson.
Guðrún J. Halldórsdóttir.
Guðmundur H. Garðarsson.
Margrét Frímannsdóttir.