Aldursforseti (Matthías Bjarnason) :
Ég leyfi mér að bjóða alla þingmenn velkomna til þingstarfa. Sömuleiðis óska ég starfsfólki þingsins allra heilla í störfum og býð það velkomið til starfa. Ég óska nýskipaðri ríkisstjórn velfarnaðar í störfum og á þá ósk að störf þessa þings verði landi og þjóð til heilla.
Fundi þessum er nú frestað til kl. 14 á morgun. --- [Fundarhlé.]