Rannsókn kjörbréfa
Þriðjudaginn 14. maí 1991


     Frsm. 2. kjördeildar (Jón Kristjánsson) :
    Herra forseti. 2. kjördeild hefur komið saman til fundar og farið yfir kjörbréf alþingismanna úr 1. kjördeild. Einnig voru lögð fram til kynningar í kjördeildinni bréf frá Heimastjórnarsamtökunum, dags. 10. maí 1991, bréf frá dómsmrn. til skrifstofustjóra Alþingis, dags. 8. maí 1991, bréf til dómsmrn. frá yfirkjörstjórn Reykjaneskjördæmis, dags. 24. apríl 1991, og endurrit úr gerðabók yfirkjörstjórnar í Reykjaneskjördæmi um úrslit alþingiskosninganna sem fram fóru hinn 20. apríl 1991 svo og tvö innsigluð umslög með ágreiningsseðlum og endurrit úr gerðabók yfirkjörstjórnar sem varðar ágreininginn sérstaklega.
    Varðandi tvö ágreiningsatkvæði komu fram þær ábendingar í kjördeildinni frá einstökum kjördeildarmönnum að atkvæði greitt T - lista væri gilt atkvæði. Þó telur kjördeildin ekki ástæðu til frekari aðgerða varðandi það mál og leggur til að eftirtalin kjörbréf aðalþingmanna og varaþingmanna verði samþykkt:

    1. Kjörbréf Önnu Ólafsdóttur Björnsson, 9. þm. Reykn., og kjörbréf Kristínar Sigurðardóttur, 1. varamanns Samtaka um kvennalista í Reykjaneskjördæmi.
    2. Kjörbréf Árna M. Mathiesens, 3. þm. Reykn., og kjörbréf Viktors B. Kjartanssonar, 3. varamanns Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi.
    3. Kjörbréf Eggerts Haukdals, 6. þm. Suðurl., og kjörbréf Arnars Sigurmundssonar, 3. varamanns Sjálfstfl. í Suðurlandskjördæmi.
    4. Kjörbréf Einars Kr. Guðfinnssonar, 3. þm. Vestf., og kjörbréf Jörgínu Jónsdóttur, 2. varamanns Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi.
    5. Kjörbréf Friðriks Sophussonar, 2. þm. Reykv., og kjörbréf Guðmundar H. Garðarssonar, 2. varamanns Sjálfstfl. í Reykjavíkurkjördæmi.
    6. Kjörbréf Guðmundar Bjarnasonar, 1. þm. Norðurl. e., og kjörbréf Guðmundar Stefánssonar, 1. varamanns Framsfl. í Norðurlandskjördæmi eystra.
    7. Kjörbréf Guðrúnar Helgadóttur, 14. þm. Reykv., og kjörbréf Guðmundar Þ Jónssonar, 2. varamanns Alþb. í Reykjavík.
    8. Kjörbréf Halldórs Blöndals, 2. þm. Norðurl. e., og kjörbréf Svanhildar Árnadóttur, 1. varamanns Sjálfstfl. í Norðurlandskjördæmi eystra.
    9. Kjörbréf Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, 10. þm. Reykv., og kjörbréf Guðrúnar J. Halldórsdóttur, 1. varamanns Samtaka um kvennalista í Reykjavíkurkjördæmi.
 10. Kjörbréf Jóhönnu Sigurðardóttur, 12. þm. Reykv., og kjörbréf Valgerðar Gunnarsdóttur, 2. varamanns Alþfl. í Reykjavíkurkjördæmi.
 11. Kjörbréf Jóns Helgasonar, 2. þm. Suðurl., og kjörbréf Þuríðar Bernódusdóttur, 1. varamanns Framsfl. í Suðurlandskjördæmi.
 12. Kjörbréf Jónu Valgerðar Kristjánsdóttur, 6. þm. Vestf., og kjörbréf Ágústu Gísladóttur, 1. varamanns Samtaka um kvennalista í Vestfjarðakjördæmi.
 13. Kjörbréf Kristínar Ástgeirsdóttur, 18. þm. Reykv., og kjörbréf Þórhildar Þorleifsdóttur, 3. varamanns

Samtaka um kvennalista í Reykjavík.
 14. Kjörbréf Margrétar Frímannsdóttur, 4. þm. Suðurl., og kjörbréf Ragnars Óskarssonar, 1. varamanns Alþb. í Suðurlandskjördæmi.
 15. Kjörbréf Ólafs Ragnars Grímssonar, 8. þm. Reykn., og kjörbréf Sigríðar Jóhannesdóttur, 1. varamanns Alþb. í Reykjaneskjördæmi.
 16. Kjörbréf Pálma Jónssonar, 2. þm. Norðurl. v., og kjörbréf Hjálmars Jónssonar, 1. varamanns Sjálfstfl. í Norðurlandskjördæmi vestra.
 17. Kjörbréf Salome Þorkelsdóttur, 2. þm. Reykn., og kjörbréf Gunnars I. Birgissonar, 2. varamanns Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi.
 18. Kjörbréf Sigríðar A. Þórðardóttur, 10. þm. Reykn., og kjörbréf Lovísu Christiansen, 5. varamanns Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi.
 19. Kjörbréf Steingríms Hermannssonar, 7. þm. Reykn., og kjörbréf Jóhanns Einvarðssonar, 1. varamanns Framsfl. í Reykjaneskjördæmi.
 20. Kjörbréf Svavars Gestssonar, 9. þm. Reykv., og kjörbréf Auðar Sveinsdóttur, 1. varamanns Alþb. í Reykjavíkurkjördæmi.
 21. Kjörbréf Vilhjálms Egilssonar, 5. þm. Norðurl. v., og kjörbréf Runólfs Birgissonar, 2. varamanns Sjálfstfl. í Norðurlandskjördæmi vestra.

    2. kjördeild leggur til, samhljóða, að þessi kjörbréf sem ég hef nú lesið upp verði samþykkt.