Frsm. 3. kjördeildar (Ólafur G. Einarsson) :
Herra forseti. 3. kjördeild fékk til athugunar kjörbréf þeirra þingmanna sem sátu í 2. kjördeild. Hún fékk einnig til athugunar endurrit úr gerðabók Reykjaneskjördæmis og þar til athugunar efni sem hefur verið greint frá af frsm. fyrri kjördeilda. Kjördeildin gerir ekki athugasemdir við þessa gerðabók og staðfestir því niðurstöðu yfirkjörstjórnar Reykjaneskjördæmis.
Þá fékk kjördeildin einnig til meðferðar kæru Heimastjórnarsamtakanna og erindi Flokks mannsins. Kjördeildin er sammála um að hafna kærunni og erindinu en leggur til að kjörbréf aðalmanna verði samþykkt, en þau eru:
1. Kjörbréf Árna R. Árnasonar, 5. þm. Reykn.
2. Kjörbréf Björns Bjarnasonar, 3. þm. Reykv.
3. Kjörbréf Egils Jónssonar, 3. þm. Austurl.
4. Kjörbréf Eyjólfs Konráðs Jónssonar, 4. þm. Reykv.
5. Kjörbréf Geirs H. Haarde, 8. þm. Reykv.
6. Kjörbréf Guðmundar Hallvarðssonar, 16. þm. Reykv.
7. Kjörbréf Gunnlaugs Stefánssonar, 5. þm. Austurl.
8. Kjörbréf Hjörleifs Guttormssonar, 4. þm. Austurl.
9. Kjörbréf Ingibjargar Pálmadóttur, 2. þm. Vesturl.
10. Kjörbréf Jóhannesar Geirs Sigurgeirssonar, 6. þm. Norðurl. e.
11. Kjörbréf Jóns Kristjánssonar, 2. þm. Austurl.
12. Kjörbréf Karls Steinars Guðnasonar, 6. þm. Reykn.
13. Kjörbréf Kristínar Einarsdóttur, 15. þm. Reykv.
14. Kjörbréf Matthíasar Bjarnasonar, 1. þm. Vestf.
15. Kjörbréf Ólafs Þ. Þórðarsonar, 2. þm. Vestf.
16. Kjörbréf Ragnars Arnalds, 3. þm. Norðurl. v.
17. Kjörbréf Sigbjörns Gunnarssonar, 7. þm. Norðurl. e.
18. Kjörbréf Sólveigar Pétursdóttur, 6. þm. Reykv.
19. Kjörbréf Steingríms J. Sigfússonar, 4. þm. Norðurl. e.
20. Kjörbréf Tómasar Inga Olrichs, 5. þm. Norðurl. e.
21. Kjörbréf Þorsteins Pálssonar, 1. þm. Suðurl.
Kjördeildin leggur til að kjörbréf þessara þingmanna verði samþykkt.
Þá fékk kjördeildin einnig til athugunar kjörbréf varamanna þeirra þingmanna sem ég hef talið upp og leggur til að þau verði samþykkt. Þessir varamenn eru:
1. Anna Þrúður Þorkelsdóttir, 8. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavíkurkjördæmi.
2. Ásta Möller, 6. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavíkurkjördæmi.
3. Davíð Stefánsson, 7. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavíkurkjördæmi.
4. Drífa Hjartardóttir, 1. varamaður Sjálfstfl. í Suðurlandskjördæmi.
5. Einar Már Sigurðarson, 1. varamaður Alþb. í Austurlandskjördæmi.
6. Guðjón A. Kristjánsson, 1. varamaður Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi.
7. Guðlaug Björnsdóttir, 3. varamaður Framsfl. í Norðurlandskjördæmi eystra.
8. Guðmundur Magnússon, 3. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavíkurkjördæmi.
9. Guðný Guðbjörnsdóttir, 2. varamaður Samtaka um kvennalista í Reykjavíkurkjördæmi.
10. Hermann Níelsson, 1. varamaður Alþfl. í Austurlandskjördæmi.
11. Hrafnkell A. Jónsson, 1. varamaður Sjálfstfl. í Austurlandskjördæmi.
12. Karen Erla Erlingsdóttir, 2. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi.
13. Kolbrún Jónsdóttir, 4. varamaður Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi.
14. Kristján Guðmundsson, 4. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavíkurkjördæmi.
15. Petrína Baldursdóttir, 2. varamaður Alþfl. í Reykjaneskjördæmi.
16. Pétur Bjarnason, 1. varamaður Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi.
17. Sigurður E. Arnórsson, 1. varamaður Alþfl. í Norðurlandskjördæmi eystra.
18. Sigurður B. Björnsson, 2. varamaður Sjálfstfl. í Norðurlandskjördæmi eystra.
19. Sigurður Hlöðversson, 1. varamaður Alþb. í Norðurlandskjördæmi vestra.
20. Sigurður Þórólfsson, 1. varamaður Framsfl. í Vesturlandskjördæmi.
21. Stefanía Traustadóttir, 1. varamaður Alþb. í Norðurlandskjördæmi eystra.
Kjördeildin leggur til að kjörbréf þessara varamanna verði einnig samþykkt.