Aldursforseti (Matthías Bjarnason) :
Framsögumenn kjördeilda hafa hver fyrir hönd sinnar kjördeildar lagt til að kjörbréf sem deildirnar hafa rannsakað verði samþykkt og kosning og kjörgengi þingmanna og jafnmargra varamanna verði tekin gild. Þetta eru samhljóða tillögur og verða því bornar upp í einu lagi ef enginn hreyfir andmælum.