Drengskaparheit unnin
Þriðjudaginn 14. maí 1991


     Aldursforseti (Matthías Bjarnason) :
    Samkvæmt 2. gr. þingskapa ber þeim alþingismönnum, sem nú taka sæti á Alþingi í fyrsta sinn, að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni. Ég vil biðja skrifstofustjóra að færa eftirtöldum þingmönnum heitstafinn til undirritunar, en þeir eru:
    Árni R. Árnason, Árni M. Mathiesen, Björn Bjarnason, Davíð Oddsson, Guðjón Guðmundsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Ingibjörg Pálmadóttir, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, Kristinn H. Gunnarsson, Lára Margrét Ragnarsdóttir, Sigríður A. Þórðardóttir, Tómas Ingi Olrich og Össur Skarphéðinsson.