Geir H. Haarde (um þingsköp) :
Virðulegi forseti. Ósk mín um frestun á kjöri í fastanefndir var ótiltekin, þ.e. það var óskað frests í óákveðinn tíma fyrir kjöri í allar þessar hefðbundnu fastanefndir eins og ég hygg að hafi oft komið fyrir hér á árum áður. Sú tillaga stendur að sjálfsögðu óbreytt. Hitt er annað mál að að mínum dómi er sjálfsagt að taka til athugunar hvort kjósa eigi fyrr í eina ákveðna nefnd en hinar ef um það næst samkomulag milli þingflokkanna. En ég tel rétt að bera þessi afbrigði upp í einu lagi eins og óskað hefur verið eftir af minni hálfu.