Geir H. Haarde (um þingsköp) :
Virðulegi forseti. Rétt til áréttingar og skýringar vil ég taka það fram að á sameiginlegum fundum sem haldnir hafa verið á vegum formanna flokka og þingflokka hefur ekki verið minnst sérstaklega á það að taka utanrmn. út úr þeirri frestun sem rætt hefur verið um. Það er nýtt og kemur hér fram í fyrsta sinn í dag. Það er hins vegar ekki þar með sagt að það sé óeðlilegt að gera það. Tillaga mín um frestun er til lengri eða skemmri tíma eftir atvikum og það má vel vera að það sé skynsamlegt að flýta kjöri í þessa tilteknu nefnd miðað við hinar. Hins vegar tel ég óhjákvæmilegt að afbrigðin séu afgreidd í einu lagi og það komi ekki til greina að skipta þeim upp í annars vegar það sem fresta á til lengri tíma og hins vegar til eitthvað skemmri tíma eins og hv. 8. þm. Reykn. orðaði það. Það ber samkvæmt þingsköpum að kjósa þessar fastanefndir á 2. fundi í Sþ. og ef það er ekki gert, þá þarf að samþykkja afbrigði fyrir frestun. Það er sú tillaga sem liggur fyrir. Ég mælist til þess að hún verði samþykkt og að í ljósi þess verði það skoðað milli þingflokka hvort sú hugmynd sem hér er fram komin um að kjósa utanrmn. við fyrsta tækifæri nái fram að ganga og sé samkomulagsgrundvöllur milli flokkanna.