Guðrún Helgadóttir (um þingsköp) :
    Hæstv. forseti. Til þess að tryggja það að þinghald allt megi nú fara fram hér með venjulegum hætti vil ég leyfa mér að benda á að í jómfrúarræðu sinni minntist hæstv. forsrh. á hér áðan að hann mundi bjóða upp á stutta umræðu um utanríkismál. Öllum hinum nýju þingmönnum til upplýsingar og þar með hæstv. forsrh. skal það sagt að hér er það hæstv. forseti þingsins sem ákveður hvernig umræður fara fram og lengd þeirra fer eftir þingsköpum.