Forseti (Karl Steinar Guðnason) :
Það hafði verið samkomulag um það að halda þingflokksfundi kl. 4. Það eru þrír hv. þm. á mælendaskrá nú. Ég hef komið ósk á framfæri til þingflokksformanna um að fresta þingflokksfundi til 4.30. Þá ætti að vera unnt að klára þessa umræðu ef þeir þrír þingmenn sem eftir eru verða mjög stuttorðir.