Þingsköp Alþingis
Miðvikudaginn 15. maí 1991


     Flm. (Páll Pétursson) :
    Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um þingsköp Alþingis á þskj. 2. Frv. þetta er til breytinga á þingsköpum Alþingis og er flutt í tengslum við frv. til stjórnarskipunarlaga um breytingu á stjórnarskránni sem nú liggur fyrir efri deild. Frv. er upphaflega samið af nefnd sem skipuð var formönnum þingflokka og komið var á fót á síðasta þingi að beiðni forseta Alþingis til að vinna að endurskoðun stjórnarskrárinnar og samhliða því nauðsynlegum breytingum á þingsköpum Alþingis.
    Á undanförnum þingum hafa verið uppi hugmyndir um breytingar á þingsköpum Alþingis. Í þessu sambandi má minna á að á 111. löggjafarþingi var flutt frv. til stjórnarskipunarlaga um breytingu á stjórnarskrá þar sem tekið var á öllum þeim þáttum stjórnarskrárinnar er lúta að Alþingi og jafnframt fylgdu því drög að frv. til nýrra þingskapalaga. Þetta frv. fluttu Páll Pétursson, Guðrún Helgadóttir, Kjartan Jóhannsson, Kristín Einarsdóttir, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Sighvatur Björgvinsson og Hjörleifur Guttormsson. Frv. var endurflutt á 112. þingi og voru flutningsmenn þeir sömu nema að í stað Kjartans Jóhannssonar, er sagt hafði af sér þingmennsku, kom Árni Gunnarsson, þáv. forseti neðri deildar.
    Þegar nefnd sú, er forsetar komu á fót á síðasta þingi, 113. þingi, lagði fram frv. til stjórnarskipunarlaga um breytingu á stjórnarskránni fylgdu því sem fylgiskjal drög að frv. til laga um þingsköp Alþingis. Um þau drög fjölluðu fulltrúar þingflokkanna frekar að loknum þingkosningum nú í apríl og sendu síðan öllum þingmönnum bréf þar sem tiltekin voru ýmis álitamál varðandi endurskoðun þingskapalaganna. Núverandi og fráfarandi þingflokksformenn ásamt öðrum fulltrúum þingflokkanna unnu síðan að lokafrágangi frv. í samráði við þingflokkana. Þeir eru: Ólafur G. Einarsson og Geir H. Haarde frá Sjálfstæðisflokknum, Páll Pétursson frá Framsóknarflokki, Eiður Guðnason og Össur Skarphéðinsson frá Alþýðuflokki, Margrét Frímannsdóttir og Svavar Gestsson frá Alþýðubandalagi og Anna Ólafsdóttir Björnsson og Kristín Einarsdóttir frá Kvennalista.
    Samkomulag hefur orðið um að flytja frv. í þeim búningi sem það nú liggur fyrir í og standa fulltrúar allra þingflokka að málinu. Þær breytingar, sem Alþingi samþykkti á stjórnarskránni á síðasta þingi (113. þingi) og fólu m.a. í sér brottfall deildaskiptingar þingsins og að þingið sitji að formi til allt árið, kalla á verulegar breytingar á þingsköpum Alþingis. Það var jafnframt mat þeirra er unnu að endurskoðun þingskapalaganna að heppilegt væri að gera samhliða þessari endurskoðun nokkrar aðrar tímabærar breytingar á þingsköpunum, m.a. að setja ítarlegri ákvæði um fastanefndir en verið hafa.
    Ég tel að það sé mikilvægt að í þeirri umræðu sem hér á eftir að verða í deildinni um frv. takmarki menn sig við breytingarnar á þingsköpum Alþingis en eyði ekki tíma deildarinnar í að ræða þær stjórnarskrárbreytingar er þar liggja til grundvallar og hef ég þá

helst í huga afnám deildaskiptingarinnar. Ég lít svo á að um þær breytingar hafi skapast góð samstaða og því sé ekki þörf á því að taka það mál upp aftur í þessari umræðu.
    Ég vil þá víkja að þeim meginbreytingum sem felast í frv. og þá fyrst um stjórn þingsins:
    1. Kveðið er skýrt á um að forseti fari með æðstu stjórn þingsins í þeim málum er lúta að rekstri þess og stjórnsýslu. Forseti verður kjörinn samkvæmt tilnefningu en ekki óbundinni kosningu eins og verið hefur.
    2. Varaforsetar verða fjórir, kosnir listakosningu, og mynda ásamt aðalforseta forsætisnefnd þingsins. Varaforsetar verða kjörnir listakosningu. Er sú skipan talin heppilegri en gildandi fyrirkomulag því hún er einfaldari. Með þessu skipulagi er svigrúm fyrir þingflokkana að semja um skiptingu varaforseta á milli sín, t.d. með því að skila einum lista. Eðlilegt er að halda þeirri hefð sem verið hefur allt frá 1971 að fyrsti varaforseti sé úr röðum stjórnarandstæðinga og jafnframt þykir æskilegt að sem flestir flokkar eigi aðild að forsætisnefnd.
    3. Um forsætisnefnd er það að segja að verkefni hennar verður að gera starfsáætlun fyrir fram fyrir hvert þing og skipuleggja störf þingsins nánar, t.d. með vikuáætlunum, í samráði við formenn þingflokka. Þá er forseta ætlað að bera undir forsætisnefndina þau mál er hann telur ástæðu til að hún fjalli um, svo sem um rekstur þingsins, málefni þeirra stofnana sem undir Alþingi heyra og það alþjóðasamstarf sem Alþingi sem heild á þátt í. Jafnframt mun forsætisnefnd fjalla um þau málefni er varaforsetar óska að þar séu rædd. Loks er forsætisnefnd falið að fara með þau verkefni sem forsetum Alþingis hafa verið falin í öðrum lögum, svo sem að ráða ríkisendurskoðanda.
    4. Kveðið er á um samráð forseta og þingflokksformanna um skipulag þingstarfa. Um langt skeið hefur það verið venja að forsetar hafi haft samráð við þingflokksformenn um skipulag þingstarfa. Rétt þykir að þetta samráð sé formlega bundið í þingskapalögum. Um þetta samstarf er kveðið á í nýjum kafla í þingsköpum um þingflokka.
    5. Tekin eru upp ákvæði um þingflokka og skilgreiningu þeirra. Þótt þingflokkar hafi í marga áratugi gegnt veigamiklu hlutverki í störfum Alþingis hafa ekki verið bein fyrirmæli um þá í þingsköpum að undanskilinni einni grein í kaflanum um útvarp umræðu.
    6. Mörkuð eru skýrari skil milli yfirstjórnar forseta og hinnar daglegu framkvæmdastjórnar sem verður á hendi skrifstofustjóra í umboði forseta.
    Þá vil ég víkja nokkuð að nefndum þingsins. Það eru viðamiklar breytingar á þingsköpum er varða nefndir þingsins. Ástæðan til þess er þríþætt. Í fyrsta lagi verða óhjákvæmilega verulegar breytingar á nefndaskipuninni samhliða afnámi deildaskiptingar og mikilvægi nefndanna í þingstörfum mun aukast við þá breytingu. Í öðru lagi hefur nefndakafli þingskapa verið afar stuttur og ekki verið tekið í honum á ýmsum

atriðum sem þörf þykir að hafa skýr ákvæði um. Í þriðja lagi hafa flestöll ákvæði um nefndir verið í einni mjög langri lagagrein sem heppilegra þykir að skipta upp eftir efnisþáttum.
    Vík ég þá næst að þeim helstu breytingum er varða nefndir þingsins.
    1. Fjöldi nefnda. Samkvæmt frv. verða fastanefndirnar tólf og er gert ráð fyrir að verkaskipting þeirra verði í megindráttum hin sama og er í Stjórnarráðinu. Fastanefndum mun því fækka úr 23 í 12. Af þessum 12 fastanefndum hafa 11 starfað áður en ein er ný, þ.e. umhverfisnefnd. Þá er heiti tveggja eldri nefnda breytt. Heiti fjárveitinganefndar verður fjárlaganefnd og fjárhags- og viðskiptanefnd verður efnahags- og viðskiptanefnd.
    2. Fjöldi nefndarmanna. Lagt er til að í öllum nefndum sitji níu þingmenn í stað sjö áður. Þar sem mikilvægi nefndarstarfsins mun aukast frá því sem áður var þykir rétt að fjölga í nefndunum og tryggja þar með að þingflokkar eigi fulltrúa í sem flestum nefndum þingsins. Ekki er gert ráð fyrir föstum varamönnum í nefndum nema í utanríkismálanefnd. Vegna sérstöðu utanríkismálanefndar, sem ráðgjafa fyrir ríkisstjórn um meiri háttar utanríkismál, er lagt til að nefndin hafi kjörna varamenn, jafnmarga og aðalmenn eru, líkt og verið hefur.
    3. Aðild fastanefnda að fjárlagavinnunni. Samkvæmt frv. er lagt til það nýmæli að fjárlaganefnd skuli að jafnaði vísa til fastanefnda þeim þáttum fjárlagafrumvarpsins sem fjalla um málefnasvið þeirra. Til að taka af öll tvímæli er sérstaklega kveðið á um að til efnahags- og viðskiptanefndar vísi fjárlaganefndin þeim köflum lánsfjárlagafrumvarpsins er fjalla um skatta- og efnahagsmál og tekjuhlið fjárlagafrumvarpsins. Gert er ráð fyrir að fastanefndirnar geti tekið við þeim erindum og annast þau viðtöl sem fjárveitinganefnd hefur haft á sinni hendi. Jafnframt er gert ráð fyrir að áður en 2. umr. fer fram um fjárlagafrumvarpið skili fastanefndirnar, ef þær svo kjósa, fjárlaganefnd áliti og tillögum er skuli prenta með áliti hennar þegar hún hefur lokið afgreiðslu frv. fyrir 2. umr. Rétt er að taka fram að við athugun á fjárlagafrumvarpinu starfa fastanefndirnar í umboði fjárlaganefndar. Milli 2. og 3. umr. mun fjárlaganefndin fjalla ein um allt frumvarpið svo sem verið hefur. Í þessu sambandi er rétt að geta þess að svigrúm skapast til þess að flýta 2. umr. frá því sem verið hefur. Það tel ég að sé mjög mikilvægt, að 2. umr. geti farið fram ekki síðar en í byrjun desember, fyrstu daga desembermánaðar.
    4. Kveðið er skýrt á um hvenær hægt er að setja nefndarfund og hvenær nefndarfundur er ályktunarbær. Ekki hafa verið skýrar reglur um það hvenær formanni nefndar er heimilt að setja fund. Í greininni er lagt til að formaður geti sett fund ef til hans hefur verið boðað með dagskrá. Ekki er því tilskilinn neinn lágmarksfjöldi nefndarmanna þegar nefndarfundur er settur, aðeins að til fundarins hafi verið boðað með dagskrá. Jafnframt er þó í greininni kveðið skýrt á um að til þess að fundurinn sé ályktunarbær

þurfi meiri hluti nefndarmanna að vera staddur á fundi. Það er hins vegar mikilvægt að formaður geti sett fund þó að ekki sé meiri hluti viðstaddur því að stundum skapast sú staða að gestir hafa verið boðaðir til fundar við nefndina en meiri hluti nefndarmanna er fjarstaddur. Getur þá nefnd rætt við gesti þó að ekki yrðu teknar neinar ákvarðanir fyrr en tilskilinn fjöldi nefndarmanna er á fundi. Efnislega er grein þessi í samræmi við þær reglur sem gilda um fundi okkar hér í þinginu.
    5. Lagt er til að nefnd verði að eigin frumkvæði heimilt að fjalla um önnur mál en þau sem þingið vísar til hennar. Jafnframt er gert ráð fyrir að nefnd geti gefið þinginu skýrslu um slíka athugun, sbr. 31. gr. Hér er m.a. haft í huga að nefnd geti, þegar þing er ekki að störfum að sumri, unnið að athugun tiltekinna mála. Hér er m.a. haft í huga að nefnd geti unnið að athugun tiltekinna mála er gæti verið vísir að eftirliti fagnefnda með þeim stofnunum framkvæmdarvaldsins sem heyra undir málefnasvið nefndarinnar.
    6. Gert er ráð fyrir að nefnd geti þegar máli hefur verið vísað til hennar falið einum nefndarmanni (framsögumanni) að vinna sérstaklega að athugun málsins. Framsögumaðurinn geri síðan tillögu til nefndarinnar um afgreiðslu málsins og leggi fram drög að nefndaráliti. Þessi tilhögun gæti gert nefndarstarfið markvissara, umfjöllun um mál vandaðri og dreift vinnu í nefndinni betur niður á nefndarmenn en nú er.
    7. Lagt er til að nefnd geti látið uppi álit á tveimur eða fleiri málum saman ef þau fjalla um skyld efni. Hér er haft í huga að stundum fjalla nefndir samtímis um tvö eða fleiri mál, t.d. fylgifrumvörp með öðrum frumvörpum. Getur þá verið hagkvæmt að skila einu áliti um bæði eða öll málin saman.
    8. Lagt er til að nefnd geti með skýrslu gert þinginu grein fyrir athugun sinni á þingmáli sem hún hefur ekki lokið afgreiðslu á að fullu telji hún sérstaka ástæðu til þess. Heppilegt getur verið að nefnd hafi möguleika á að skila slíkri greinargerð til þingsins, t.d. þegar þrýst er á um að afgreiða mál en meiri hluti nefndarmanna er þó andvígur því að skila formlegu nefndaráliti. Eðlilegast er að slík skýrsla yrði lögð fram á þinginu en kæmi ekki á dagskrá. Þá er lagt til að nefnd geti á sama hátt gefið þinginu skýrslu um störf sín, t.d. ef komið hefur fram alvarleg gagnrýni á störf hennar og hún telur ástæðu til að svara slíkum aðfinnslum á formlegan hátt.
    9. Lagt er til að þingnefndir hafi almenna heimild til að afla sér aðkeyptrar sérfræðiþjónustu við afgreiðslu þingmála frá stofnunum og einstaklingum utan skrifstofu þingsins. Gert er ráð fyrir að forseti setji nánari reglur um þetta efni. Þar sem hér getur verið um nokkurn kostnað að ræða þarf í slíkum reglum að tilgreina nákvæmlega þau tilvik þegar nefnd getur leitað slíkrar aðstoðar.
 10. Sérstök ákvæði eru sett um alþjóðanefndir þingmanna. Tilgreindar eru þær nefndir er sinna alþjóðasamstarfi þingmanna. Um leið er veitt almenn heimild fyrir þingið til að koma á fót öðrum alþjóðanefndum og munu þá ákvæði þessarar greinar einnig

ná til þeirra. Kveðið er á um að til hverrar alþjóðanefndar skuli velja árlega samkvæmt starfsreglum sem um hana gilda. Alþingi hefur þegar samþykkt með þingsályktun starfsreglur fyrir Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins. Jafnframt er kveðið á um að hver alþjóðanefnd skuli hafa ritara sem er nefndinni til aðstoðar eins og verið hefur.
 11. Skýrari reglur eru settar um mannaskipti í nefndum og varamenn. Í fyrsta lagi er lagt til að heimiluð verði varanleg mannaskipti í nefndum óski þingflokkur eftir slíku. Heimild til mannaskipta er í 15. gr. gildandi þingskapa en rétt þykir að heimildin sé veitt að ósk þingflokks. Nauðsynlegt getur verið að koma slíkum mannaskiptum á, t.d. ef þingflokkur klofnar eða hættir stuðningi við ríkisstjórn, auk þess sem sú staða getur komið upp að þingflokkur telji heppilegt að einhverjir þingmenn hans skiptist á sætum í nefndum. Í öðru lagi er lagt til að þegar aðalmaður í nefnd er forfallaður sé þingflokki hans heimilt að tilnefna annan þingmann um stundarsakir til setu í nefnd í hans stað og skal formanni nefndar tilkynnt um það. Eðlilegt þykir að staðgengill njóti allra sömu réttinda og aðrir nefndarmenn.
    Þá kem ég að kafla um umræður.
    1. Heimilt verði að veita stutt andsvör við ræðum. Hér er um mikilvægt nýmæli að ræða. Eru fyrirmyndir að henni sóttar til þjóðþinga nágrannalanda okkar þar sem þetta umræðuform --- sem þeir kalla ,,replikker`` --- hefur þótt gefa góða raun. Er megintilgangur þessarar breytingar sá að gera umræður líflegri, skoðanaskipti hraðari og jafnframt að stytta umræður. Hefur oft borið við að þingmenn hafi ekki komið að andsvörum sínum við ræðum annarra þingmanna eða ráðherra fyrr en mörgum klukkustundum eftir að þær voru fluttar; hefur þá jafnframt þótt brenna við að menn flyttu lengra mál en í upphafi var ætlað. Samkvæmt ákvæðinu geta þingmenn með leyfi forseta veitt stutt andsvör, í allt að tvær mínútur, við ræðu strax og hún hefur verið flutt. Andsvari má einungis beina að máli ræðumanns en ekki öðru andsvari til að tryggt sé að þetta form umræðu njóti sín en ekki komi til orðaskipta milli annarra þingmanna en ræðumanns og þess eða þeirra sem veita andsvarið. Ræðumaður hefur tvær mínútur til að svara andsvari. Orðaskipti í andsvörum skulu ekki standa lengur en 15 mínútur í einu. Forseta er heimilt samkvæmt greininni að stytta ræðutíma hvers þingmanns ef margir biðja um orðið til andsvara.
    2. Við meðferð venjulegra þingmála gilda sömu reglur og verið hefur að öðru leyti en því að hinn ótakmarkaði réttur til þátttöku í umræðum er nú bundinn við þann ráðherra sem flytur mál eða ber ábyrgð á málaflokki sem til umræðu er.
    3. Ræðutími í þingskapaumræðu verður takmarkaðar og má enginn þingmaður tala lengur en fimm mínútur í senn um þingsköp.
    4. Umræður utan dagskrár verða takmarkaðar þannig að málshefjandi og ráðherrar mega ekki tala lengur en í 30 mínútur, aðrir þingmenn ekki lengur en í 15 mínútur en allir mega tala tvisvar. Er þetta gert

til þess að draga úr löngum umræðum utan dagskrár.
    5. Þátttaka annarra en fyrirspyrjenda og ráðherra í umræðum á fyrirspurnafundum verður nú leyfð formlega, ein mínúta hverju sinni fyrir hvern þingmann. Þá er réttur fyrirspyrjanda til að gera grein fyrir fyrirspurn rýmkaður úr tveimur mínútum í þrjár.
    6. Settar eru skýrari reglur um skráningu á mælendaskrá.
    7. Lagt er til að heimilt verði að ræða tvö skyld þingmál í einu. Hefur nokkuð borið á því á síðari árum að þingmenn eða ráðherrar hafi óskað eftir því að ræða í einu um tvö eða fleiri dagskrármál og hafa forsetar jafnan orðið við því.
    Um meðferð þingmála vil ég segja þetta:
    1. Lagt er til það nýmæli að skylt verði að vísa máli til nefndar hafi það breyst við 2. umr. á annan hátt en þann sem nefnd leggur til og einhver þingmaður eða ráðherra krefst slíks. Tilgangur þessarar nýbreytni er að tryggja sem vandaðasta málsmeðferð, nú þegar þingið starfar í einni málstofu. Ákvæðið tryggir því að ef samþykktar eru breytingartillögur frá öðrum en nefndinni gefst henni tækifæri til að fara á ný yfir málið eftir þær breytingar sem á því hafa orðið við 2. umr.
    2. Sérstakt ákvæði er um breytingartillögur á síðasta stigi við 3. umr. lagafrv. Hér er um að ræða nýmæli af sama tagi og rakið var hér á undan. Skapað sérstakt úrræði til þess að koma í veg fyrir vankanta á frumvarpi sem kunna að verða við samþykkt breytingartillögu á síðasta stigi afgreiðslu máls, þ.e. við 3. umr. um lagafrv. Samkvæmt öðrum ákvæðum þingskapa er heimilt að fresta umræðu á hvaða stigi sem er, jafnvel í miðri atkvæðagreiðslu, og vísa málinu til nefndar, en samkvæmt þessari grein verður ráðherra og nefndinni einnig heimilt að leggja fram nýjar breytingartillögur við frumvarpið er það kemur á ný til umræðu. Er þá gert ráð fyrir að umræður um málið fari á ný fram samkvæmt reglum um 3. umr. lagafrv. Í raun er gert ráð fyrir sérstakri aukaumræðu um málið ef nýjar breytingartillögur koma fram.
    Rétt er að taka fram til að fyrirbyggja allan misskilning að þegar talað er um umræðu í þessu sambandi er átt við bæði umræðuna og atkvæðagreiðsluna, 2. umr. stendur bæði meðan verið er að ræða málið og lýkur ekki fyrr en atkvæðagreiðsla hefur farið fram.
    3. Lögð eru til skýrari ákvæði um afturköllun breytingartillagna. Fest er í lög sú venja sem ríkt hefur á undanförnum þingum, eftir forsetaúrskurð þar um, að flutningsmanni breytingartillögu sé heimilt við 2. umr. að kalla aftur breytingartillögu sína til 3. umr. og óheimilt sé öðrum þingmönnum að taka hana þá upp aftur við 2. umr. Samkvæmt þessari málsgrein hefur tillögumaður forræði yfir tillögu sinni fram að 3. umr. Við þá umræðu er hins vegar heimilt að taka breytingartillögu upp aftur hafi tillögumaður afturkallað hana.
    4. Sett eru ný og ítarlegri ákvæði um atkvæðagreiðslu með rafeindabúnaði. Kveðið er á um að slík atkvæðagreiðsla jafngildi nafnakalli, þannig að þeir

þingmenn sem ekki greiða atkvæði teljast taka þátt í atkvæðagreiðslunni. Jafnframt eru ákvæði um að ekki sé skylt að skrá í þingtíðindum hvernig hver þingmaður greiðir atkvæði nema fram komi ósk um það. Eru þessi ákvæði í samræmi við hliðstæðar reglur í nágrannaþingum þar sem komið hefur verið upp svokölluðu atkvæðagreiðslukerfi. Gert er ráð fyrir að upplýsingar um það hvernig hver þingmaður greiðir atkvæði, sem ekki eru birtar í þingtíðindum, verði aðgengilegar í skjalasafni þingsins.
    5. Lagðar eru til skýrari reglur um hvað sé ályktunarbær fundur. Í fyrsta lagi þarf meiri hluti þingmanna að vera á fundi og taka þátt í atkvæðagreiðslu og eru þá taldir með þingmenn sem greiða ekki atkvæði við nafnakall, enda er hverjum þingmanni skylt skv. 3. mgr. 64. gr. frv. að taka þátt í atkvæðagreiðslu. Í öðru lagi þarf samþykkt Alþingis að hljóta meðatkvæði meiri hluta þeirra sem atkvæði greiða til að vera lögmæt.
    Þessar breytingar eru til samræmis við þá venju sem skapast hefur um skilning á henni og framkvæmd atkvæðagreiðslna. Við nafnakall er þá skylt að meira en helmingur þingmanna svari því, þ.e. að minnsta kosti 32 þingmenn segi ,,já``, ,,nei`` eða ,,greiði ekki atkvæði``, til þess að atkvæðagreiðslan sé lögmæt. Úrslit atkvæðagreiðslunnar velta svo á því hvort fleiri segja ,,já`` eða ,,nei``. Er þessi skilningur einnig í samræmi við framkvæmd atkvæðagreiðslu er kjörnir eru forsetar þingsins skv. 2. mgr. 3. gr. Auður seðill við þá kosningu jafngildir því að greiða ekki atkvæði svo að rétt kjörinn forseti skv. 3. gr. er sá sem hefur fengið fleiri atkvæði en samtals eru greidd öðrum þingmönnum, að því tilskildu að borist hafi a.m.k. 32 seðlar.
    Orðalag 45. gr. núgildandi þingskapa eru leifar frá gömlum tíma er þingmönnum var óheimilt að víkja sér undan því að greiða atkvæði, að viðlögðum missi þingfararkaups --- takið eftir --- nema fyrir því væru ,,lögmætar ástæður``. Er nú orðin löng hefð fyrir því að þingmenn sitji hjá við atkvæðagreiðslur án þess að færa fram skýringar á því. Er sú þróun í samræmi við það sem gerst hefur annars staðar þar sem hliðstæð ákvæði eru í þingsköpum. Ástæða þykir til að gera nú þessa breytingu á 45. gr. gildandi þingskapa vegna þess að orðalag hennar hefur valdið misskilningi enda framkvæmd hennar ekki nákvæmlega eftir orðanna hljóðan.
    6. Kveðið verði á um að óafgreidd mál falli niður við þinglok. Með lagagreininni er verið að festa í lög þann skilning að þingmál sem ekki hafa hlotið lokaafgreiðslu fyrir þinglok falli niður og að þau verði að endurflytja eigi þau að koma til frekari meðferðar þingsins.
    7. Krafist verður aukins meiri hluta til að veita afbrigði um öll þingmál. Samkvæmt gildandi þingsköpum er gert ráð fyrir að tillögu um afbrigði geti forseti gert eða tiltekinn hópur þingmanna. Samkvæmt frv. er nú lagt til að slíka uppástungu geti forseti gert, eins og áður, og formenn þingflokka. Er þessi breyting gerð til að einfalda framkvæmd þessa ákvæðis. Þá

er gert ráð fyrir að sama regla gildi um afbrigði fyrir stjórnarfrumvörpum og þingmannafrumvörpum og að jafnan þurfi samþykki tveggja þriðju hluta þingmanna til að bregða út af þingsköpum. Í gildandi þingskapalögum þurfti einungis einfaldan meiri hluta um stjórnarfrumvörp en samþykki þriggja fjórðu hluta þingmanna um önnur mál.
    Þá vil ég ræða um fyrirspurnir og skýrslur.
    1. Settar eru skorður við lengd skriflegra svara við fyrirspurnum og gert ráð fyrir að ítarlegri upplýsinga sé aflað með beiðni um skýrslu. Hefur þótt brenna við að skrifleg svör væru svo löng og ítarleg að þau jöfnuðust á við skýrslur og er það í andstöðu við upprunalegan tilgang þessa fyrirkomulags. Samkvæmt greininni skal miða við að skrifleg svör séu ekki lengri en svo að þau mætti lesa á fimm til tíu mínútum. Hér er vitaskuld um viðmiðunarreglu að ræða sem undantekningar gætu orðið á. Enn fremur er lengdur sá frestur sem ráðherrum er veittur til þess að undirbúa svörin. Er það gert í ljósi fenginnar reynslu. Með þessum breytingum er ekki verið að stemma stigu við því að þingmenn geti aflað upplýsinga frá framkvæmdarvaldinu heldur reynt að finna því eðlilegri búning, þ.e. að þingmenn biðji um skýrslur um þau mál sem þeir vilja fá ítarlegar upplýsingar um. Með því móti hafa þeir rétt til umræðna um málið þegar skýrsla berst, gagnstætt því sem er um skrifleg svör.
    2. Lagt er til það nýmæli að forseti geti heimilað þingmönnum á fyrir fram ákveðnum fundi, sem ætlað er að halda sem næst vikulega yfir þingtímann, að beina til ráðherra munnlegum fyrirspurnum án nokkurs sérstaks fyrirvara. Ekki má þessi umræða standa lengur en í hálftíma. Þetta fyrirspurnarform tíðkast víða annars staðar í þjóðþingum, t.d. í Bretlandi, þykir líflegt og hefur gefist vel.
    3. Lagt er til að tekin verði inn ákvæði um skýrslur alþjóðanefnda. Alþjóðanefndum verði skylt að gera þinginu grein fyrir störfum sínum árlega. Gert er ráð fyrir að sömu reglur gildi um skýrslur alþjóðanefnda og skýrslur frá ráðherrum, að þær séu því aðeins teknar á dagskrá að nefndin óski eftir því eða beiðni komi frá þingmönnum um það. Jafnframt gildi sömu reglur um ræðutíma.
    4. Samkvæmt frv. verður heimilt að vísa skýrslum til nefnda og álykta um þær. Er gert ráð fyrir að þingið hafi tækifæri til þess að lýsa efnislega afstöðu sinni til skýrslu með dagskrártillögu.
    Þá eru ákvæði um fundarsókn, varaþingmenn og ávarp þingmanna.
    Lagt er til að skylda til fundarsóknar í fyrirspurnatíma verði afnumin.
    Regla um lágmarkssetu varamanna, þ.e. tvær vikur, verði tekin í þingskapalög en slík ákvæði eru nú einungis í kosningalögum. Og það er lagt til að heimilt verði jafnan að nefna þingmann fullu nafni en ekki skylt að kenna hann við kjördæmi hans. Er þetta í samræmi við þá þróun sem orðið hefur á undanförnum árum, m.a. með brottfalli landskjörs og fjölgun þingmanna í stórum kjördæmum. Hafa forsetar átölulaust leyft ræðumönnum að nefna þingmenn fullu nafni án þess að kenna þá við kjördæmi.
    Um aldursforseta, rannsókn kjörbréfa og skrifara er þetta að segja:
    Lagt er til að breytt verði skilgreiningu aldursforseta og hann teljist sá þingmaður sem lengsta þingsetu hafi að baki. Áður var elsti þingmaðurinn kvaddur til þess að stjórna umræðum á þingsetningarfundi. Ákvæðið um að elsti þingmaður skuli stjórna þingsetningarfundi er komið úr dönsku þingskapalögunum. Þessu ákvæði breyttu Danir 1953, þegar þingið þar hóf störf í einni málstofu, með því að skilgreina ,,aldursforseta`` sem þann þingmann sem lengsta þingsetu hefur að baki. Skiptir þá ekki máli hvort hún er samfelld eða ekki, en ef tveir þingmenn hafa jafnlanga þingsetu, þá er talinn með sá tími þegar þeir sátu sem varamenn, ef því er að skipta, að öðrum kosti ræður aldur. Þetta verður að teljast eðlilegri skipan því að þá verða aldursforsetar aðeins þeir þingmenn sem hafa mikla reynslu af þingstörfum. Samkvæmt núverandi fyrirkomulagi er sá möguleiki fyrir hendi að elsti þingmaðurinn sé nýliði á þingi.
    Rannsókn kjörbréfa á þingsetningarfundi verði einfölduð. Lagt er til að þegar á þingsetningarfundi verði kosin sérstök kjörbréfanefnd sem rannsakar kjörbréf allra þingmanna, aðalmanna og varamanna. Rannsókn kjörbréfa á þingsetningarfundi er sömuleiðis eftir samsvarandi ákvæðum í dönsku þingskapalögunum. Í Danmörku breyttist hins vegar skipan þessara mála upp úr 1920 og síðan þá hefur sérnefnd, kosin á þingsetningarfundi, annast rannsókn kjörbréfa og farið yfir skýrslu innanríkisráðuneytisins um kosningaúrslit. Með þessu móti hafa þingmenn, þ.e. þeir sem sæti eiga í sérnefndinni, tekið þátt í að rannsaka kjörbréf sjálfra sín, en það hefur ekki þótt koma að sök því að þingmenn hafa hvort eð er rétt til að fjalla um kjörbréf sín við afgreiðslu þeirra á þingfundi og greiða atkvæði um þau.
    Núverandi skipan mála með skiptingu þingmanna í kjördeildir verður að teljast harla þunglamaleg og fyrirhafnarmikil miðað við þá afgreiðslu sem kjörbréf hafa yfirleitt fengið í þinginu. Því er lagt til að þegar á fyrsta fundi verði kosin kjörbréfanefnd sem rannsaki kjörbréf þingmanna og varaþingmanna og jafnframt er gert ráð fyrir því, andstætt því sem er í danska þinginu, að sú nefnd haldi áfram að starfa allt kjörtímabilið svipað og kjörbréfanefnd hefur gert fram að þessu.
    Lagt er til að embætti skrifara falli niður. Í þeirra stað komi starfsmenn skrifstofu þingsins er sinni þeim störfum sem hvílt hafa á skrifurum fram til þessa, þ.e. að gera drög að fundargerð, færa málaskrár og telja atkvæði. Skrifarastörf þingmanna í nálægum þingum hafa alls staðar verið lögð niður og þau verkefni fengin starfsmönnum. Verður að telja óeðlilegt að alþingismenn séu bundnir við þess háttar störf á þingfundum. Í breytingunni felst jafnframt sá ávinningur fyrir forseta að geta haft sér við hlið starfsmann með sérstaka þekkingu á þingsköpum.
    Herra forseti. Ég mun ekki orðlengja um þetta mikið meira. Ég tel að með þessum þingsköpum sé spor stigið til að gera störf okkar hér skilvirkari og markvissari en verið hefur og vænti ég þess að það verði öllum til góðs. Um frumvarpsdrög þessi sem ég hef mælt hér fyrir er allbreið samstaða í þinginu og vænti ég þess að málið fái þinglega og eðlilega meðferð hér og verði okkur, eins og ég sagði, og störfum okkar til farsældar.
    Ég óska eftir því að níu manna sérnefnd verði kosin að lokinni þessari umræðu og málinu vísað til hennar.