Þingsköp Alþingis
Miðvikudaginn 15. maí 1991


     Pálmi Jónsson :
    Herra forseti. Frv. þetta til þingskapalaga hefur verið undirbúið af fulltrúum allra stjórnmálaflokka og um það hefur skapast allgóð samstaða og er æskilegt að svo geti verið. Hér er í eðli sínu ekki um pólitískt mál að tefla, heldur er hér verið að fjalla um þær vinnureglur sem Alþingi skuli starfa eftir. Það er tímabært að mínum dómi að endurskoða þessi lög og nauðsynlegt með tilliti til þeirra breytinga sem fyrirhugað er að gera á stjórnskipaninni.
    Nú er það svo að þingflokkar eða einstakir þingmenn hafa séð drög að þessu frv. á ýmsum stigum og ég tek eftir því að í lokaútgáfu þessa frv., eins og það liggur hér fyrir og nú hefur verið mælt fyrir af hv. 1. flm., hafa verið gerðar nokkrar breytingar frá þeim drögum sem ég hafði áður séð sem mér sýnist í sumum tilvikum orka tvímælis. Ég segi þetta aðeins til að vekja á því athygli að þarna kann að þurfa að athuga einstök atriði nánar í þingnefnd þrátt fyrir það mikla starf sem fulltrúar stjórnmálaflokkanna hafa lagt af mörkum við undirbúning þessa frv.
    Ég skal ekki fara í mörg þau atriði sem hér kunna að vera álitamál, vil aðeins líta á það sem segir í 25. gr. frv., þar sem fjallað er um fjárlaganefnd. Ég tel að það sé tímabært að gera breytingar á fjvn. í þá átt sem hér er lagt til. Ég tel eðlilegt að sú nefnd hafi einnig með höndum, til viðbótar við það starf sem hún hefur leyst af hendi til þessa, meðferð lánsfjárlaga. Þó ekki sé annað en það þá tryggir það að fylgt sé lagareglu um að fjárlög og lánsfjárlög séu afgreidd nokkurn veginn samtímis sem því miður hefur iðulega verið brotið, síðast á síðasta Alþingi, með þeim afleiðingum sem allir þekkja að það upphefjast margs konar tilraunir og jafnvel kaup um það að koma því fram í lánsfjárlögum sem ekki tókst að koma fram í fjárlögum. Þetta þekkja allir eldri þingmenn.
    En það sem ég rek augun í í þessari grein er að mér sýnist nokkuð fortakslaust að orði kveðið þar sem segir, með leyfi hæstv. forseta: ,,Fjárlaganefnd skal að jafnaði vísa til fastanefnda þeim þáttum fjárlagafrv. sem fjalla um málefnasvið þeirra. Til efnahags- og viðskiptanefndar vísar fjárlaganefnd þeim köflum frv. til lánsfjárlaga er fjalla um skatta- og efnahagsmál, tekjuhlið fjárlagafrumvarpsins. Nefndirnar skulu áður en 2. umr. fer fram um frumvarpið skila fjárlaganefnd, ef þær svo kjósa, áliti og tillögum er skal prenta með áliti hennar þegar hún hefur lokið afgreiðslu frumvarpsins.``
    Ég held að það sé rétt stefna að fikra sig inn á þá braut að fjárlaganefnd, sem hér er kölluð, fjvn., vísi einhverjum hlutum fjárlagafrv. til meðferðar í fastanefndum þingsins, þ.e. því sem málefnasvið þeirra segir til um. Ég tel hins vegar að hér sé það fortakslaust að orði kveðið þar sem segir ,,skal að jafnaði`` að miðað við þetta orðalag mætti jafnvel segja að meginhluta fjárlagafrv. væri vísað til meðferðar fastanefnda þingsins eftir málefnasviðum og skyldi þar verða til meðferðar allt til 2. umr. þegar þessar fastanefndir skiluðu síðan áliti eða drögum að tillögum til

fjárlaganefndar. Síðan þyrfti þá fjárlaganefnd að taka þau álit öll og samræma um leið og hún dregur þau saman er hún skilar sínum tillögum til Alþingis fyrir 2. umr. Eftir þessum tillögum væri það síðan algjörlega á hendi fjárlaganefndar að fjalla um lokaafgreiðslu frv. og meðferð þess á milli 2. og 3. umr.
    Ég óttast að þessi meðferð mála muni flækja um of störf að undirbúningi fjárlaga og ég held að það væri hyggilegra að öðlast reynslu á þessu sviði með því að fikra sig nokkuð hægar inn á þessa braut heldur en hér er gert ráð fyrir samkvæmt orðanna hljóðan. Miðað við þetta er gert ráð fyrir því líka hér í athugasemdum að þá tækju fastanefndir þingsins að sér viðtöl og erindi, að því er varðar þeirra málasvið, og væntanlega þyrftu þá einnig að koma samrit af þeim erindum og e.t.v. endurtaka viðtöl við fjvn. sem bæri ábyrgð á tillögum sem að lokum eru gerðar til Alþingis. Ef þetta væri með þeim hætti að þessi þáttur úr starfi fjvn., síðar fjárlaganefndar, færðist yfir til annarra fastanefnda, þá gæfist auðvitað mikið tóm til annarrar vinnu í fjárlaganefnd á meðan. En ég þarf mjög að skoða hug minn um hvort það sé ráðlegt að stíga þetta skref svo sem hér greinir í einni svipan. Ég segi þessi orð ekki til þess að halda því fram að fjárlaganefnd sé endilega betur í stakk búin eða hæfari til þess að fjalla um öll þessi mál heldur en aðrar nefndir þingsins, enda væri það náttúrlega eins og hver önnur fjarstæða, en það hefur mikið að segja að ekki sé verið að flækja starf að þessum þýðingarmikla og viðamikla málaflokki meira en menn sjá út yfir að muni leiða til góðs.
    Í þessum texta segir að tekjuhlið fjárlagafrv. skuli vísað til efnahags- og viðskiptanefndar, eins og hún er kölluð í frv. Það er auðvitað sjálfgefið að öll þau álitamál sem eru í fjárlagafrv. hverju sinni og varða breytingar á skattalögum hljóta að fara til efnahags- og viðskiptanefndar þingsins. En til þess að sýna aðeins fram á það hvaða gildi þetta hefur að öðru leyti þá hefur það tíðkast, oftast nær, að gefið er í fjvn. afar gróft yfirlit um tekjuhorfur ríkissjóðs á næsta fjárlagaári fyrir 2. umr. Það yfirlit hefur verið afar gróft og varast af hálfu starfsmanna ríkisins að fara þar nákvæmlega í saumana. Síðan hefur verið gefin nákvæmari áætlun og í raun endanleg áætlun af hálfu fjmrn., eins og það hefur verið tíðkað nú að undanförnu, og áður Þjóðhagsstofnunar um tekjuhorfur samkvæmt einstökum tekjupóstum fjárlaganna á næsta ári, venjulega einum til tveimur dögum áður en 3. umr. fer fram. Það þarf þá mikið að breytast það vinnulag á vegum fjmrn. og áður á vegum Þjóðhagsstofnunar sem lagt hefur fram þessar áætlanir og þessa vinnu til að þessar áætlanir geti verið langtímum saman til meðferðar hjá efnahags- og viðskiptanefnd fyrir 2. umr. og sé þaðan hægt að skila um það áliti fyrir 2. umr. til fjvn. svo að eitthvert gagn sé að. Þetta er nú aðeins til að sýna það hvað þetta hefur í raun lítið gildi að því er þetta snertir.
    Herra forseti. Ég skal ekkert lengja þetta, ég held að það sé sameiginlegt markmið okkar allra hér, án tillits til pólitískra flokka, að ná saman um starfsreglur Alþingis sem geti gefið líkur á sem greiðastri meðferð mála og skilvirkni í störfum Alþingis eins og hér var lýst af hv. 1. flm. þessa máls. Um það eru allir hv. alþm. sammála og að því vil ég einnig stuðla. En ég taldi rétt að vekja athygli á þessum efasemdum mínum hér við 1. umr. vegna þess að ég tel ástæðu til að athuga þau frekar í þingnefnd.