Þingsköp Alþingis
Miðvikudaginn 15. maí 1991


     Forseti (Matthías Bjarnason) :
    Ég gerði strax ráðstafanir til þess að reyna að finna hæstv. landbrh. en hann fer nú oft vítt yfir og hratt svo að það hefur ekki tekist á þessum skamma tíma. Hins vegar fæ ég ekki séð annað en það sé hægt að ljúka 1. umr. um þingskapafrv. jafnvel þó hæstv. landbrh. sjáist ekki á þessum fundi og 66. gr. líka.