Valgerður Sverrisdóttir (um þingsköp) :
Hæstv. forseti. Vegna þess sem hér kom fram hjá hæstv. umhvrh. vil ég taka það fram að það var borin fram fyrirspurn um það í gær í þingflokki framsóknarmanna hvort um þetta hefði verið samið og virtist ekki svo vera. Enda tók hv. 1. þm. Norðurl. v. það sérstaklega fram þegar hann mælti fyrir frv. til þingskapa í Nd. að það væri ekki ætlunin að ræða annað frv. en það frv. í þeirri deild. Þess vegna er þetta mjög óljóst þó ekki sé meira sagt ef um þetta hefur verið samið.