Stefán Guðmundsson (um þingsköp) :
Virðulegur forseti. Ég vil aðeins staðfesta það sem hér kom fram hjá hv. 3. þm. Norðurl. e. og satt að segja blöskruðu mér þær umræður sem hér voru í gær. Þess vegna vakti ég athygli á því og gerði fyrirspurn í mínum þingflokki um þessi mál, hverju það sætti að umræður færu fram í deildinni á þennan hátt. Það er rétt sem kom hér fram hjá hv. 3. þm. Norðurl. e. að þær upplýsingar sem við fengum þar voru á þann veg að það var ekki ætlast til þess að þessi mál væru rædd samtímis. Og ég get sagt það að á þessum sama fundi í þingflokki Framsfl. kynnti ég einmitt þá tillögu sem ég hafði hugsað mér að flytja við þetta mál. Það er rétt málsmeðferð og eftir því ber forseta auðvitað að vinna og stjórna þinginu í samræmi við það.