Stjórnarskipunarlög
Fimmtudaginn 16. maí 1991


     Stefán Guðmundsson (um þingsköp) :
    Herra forseti. Ef það er misskilningur hjá forseta, þá vil ég undirstrika það enn og aftur að ég gagnrýni þessa málsmeðferð. Ég skil menn í því að þessi mál eru samtvinnuð og kannski ekkert óeðlilegt að það grípi inn á hitt málið. En ég gagnrýni það ef menn ætla að fara að fjalla um það mál sem ekki er hér á dagskrá í þingdeild, það gagnrýni ég, og það eru ekki þau vinnubrögð sem eiga að viðgangast.