Vaxta- og kjaramál
Fimmtudaginn 16. maí 1991


     Svavar Gestsson :
     Virðulegi forseti. Nú næstu sólarhringa munu launanefndir samkvæmt kjarasamningum þjóðarsáttarsamninganna taka ákvarðanir sem skipta sköpum um framhaldið í þróun efnahags - og atvinnulífs hér í landinu, kjara - og launamála. Jafnframt er ljóst að ríkisstjórnin hlýtur núna á allra næstu sólarhringum að ákveða hverjir verða vextir á spariskírteinum ríkissjóðs og þess vegna er nauðsynlegt að strax hér á þinginu í dag komi þessi mál til meðferðar. Þess vegna hef ég farið fram á þessa utandagskrárumræðu um launa - og vaxtamál og ég vil þakka hæstv. forseta fyrir að heimila það að umræðan skuli fara hér fram.
    Einn meginvandinn í þessum efnum á undanförnum vikum hefur verið sá að forráðamenn ríkisstjórnarinnar, einkum hæstv. forsrh. og hæstv. fjmrh., hafa með yfirlýsingum sínum breytt sjálfum sér í alvarleg efnahagsvandamál. Þeir hafa gert það með því að lýsa því yfir að hallinn á ríkissjóði væri gífurlega mikill og það væri þess vegna óhjákvæmilegt að hækka vexti mjög mikið. Þeir hafa boðað 8% raunvexti á sama tíma og raunvextir á almennum markaði eru í kringum 7,6%. Þeir hafa í rauninni skapað verulegar vaxtahækkunarvæntingar og sett vaxtahækkunarskrúfu af stað hér í þjóðfélaginu. Fari það svo að raunvextir á spariskírteinum ríkissjóðs fari í 8%, þá þýðir það að þeir eru að boða 10 -- 12% raunvexti í bankakerfinu eins og það leggur sig.
    Um áhrifin af þessum hækkunum ætla ég ekki að fjölyrða hér, enda enginn tími til þess, hvorki á fjárhag heimila né atvinnuvega né heldur á húsbyggjendur, en það liggur í augum uppi að áhrifin gætu orðið mjög alvarleg og háskaleg. Það er nauðsynlegt að minnast þess í þessu sambandi, virðulegi forseti, að þegar þjóðarsáttarsamningarnir voru gerðir byggðust þeir á þremur meginforsendum: í fyrsta lagi launum, í öðru lagi verðlagi og í þriðja lagi vöxtum. Það er þar af leiðandi ljóst að með því að hækka vextina einhliða eins og ríkisstjórnin hefur ákveðið að beita sér fyrir, þá er hún í raun og veru að brjóta gegn forsendum þjóðarsáttarinnar.
    Í þessu sambandi minni ég á samþykkt Verkamannasambands Íslands sem birtist í fjölmiðlum í dag þar sem það kemur skýrt fram að Verkamannasambandið telur að vaxtahækkanirnar brjóti gegn forsendum þjóðarsáttarinnar og Verkamannasambandið talar um það í sinni samþykkt að hér sé í rauninni að fara af stað vaxtahækkun sem þýði auknar tekjur fjármagnseigenda í landinu um u.þ.b. 30%. Það má kannski minna á það í þessu sambandi sem er skýring á áhyggjum Verkamannasambandsins að 1% raunvaxtahækkun yfir línuna jafngildir um 1,6% launahækkun yfir línuna þannig að hér er greinilega um það að ræða að tvær meginstærðir þjóðfélagsins eru að takast á, annars vegar fjármagnskostnaður og hins vegar laun.
    Þegar þjóðarsáttarsamningarnir voru framlengdir í nóvember sl. var gengið út frá þeirri forsendu að viðskiptakjarabati ætti að skila kauphækkunum og á þeirri forsendu tók fyrrv. hæstv. fjmrh. þá ákvörðun að laun skyldu breytast fyrr á þessu ári. Ég vil þess vegna núna benda á það að viðskiptakjörin hafa haldið áfram að batna og fjmrh. hlýtur að hafa gert það upp við sig nú þegar hvort hann ætlar að standa við bókanirnar og niðurstöðurnar frá í nóvember sl. með því að láta viðskiptakjarabatann koma til launafólks eða hvort hann ætlar að hlýða Vinnuveitendasambandi Íslands en afstaða þess er eins og kunnugt er sú að launin megi ekki hækka neitt þrátt fyrir gífurlegan viðskiptakjarabata. Meginspurningarnar eru því þessar, virðulegi forseti:
    Í fyrsta lagi: Hverjir verða vextirnir á ríkisskuldabréfunum? Og ef ríkisstjórnin hefur ekki þegar tekið ákvörðun um það, hvenær verður ákvörðun tekin?
    Í öðru lagi: Hver verður afstaða hæstv. fjmrh. í launanefndum með opinberum starfsmönnum? Ætlar hann að hlýða VSÍ eða ætlar hann að standa við samningana?
    Í þriðja lagi spyr ég hæstv. forsrh.: Hver er skoðun hans á þeirri niðurstöðu Verkamannasambands Íslands að með vaxtahækkunum sé ríkisstjórnin að brjóta gegn þjóðarsáttinni? En hæstv. forsrh. er, eins og alþjóð veit, meginábyrgðaraðili þess að staðið sé við þjóðarsáttina af hálfu stjórnvalda.
    Verði niðurstaðan sú að ríkisstjórnin haldi áfram vaxtahækkunarstefnu sinni annars vegar og hins vegar að viðskiptakjörin fái ekki að koma til launafólks, þá er augljóslega um það að ræða að hin nýja ríkisstjórn Íslands er að brjóta gegn forsendum þjóðarsáttarinnar. Hún er af sinni hálfu að segja þjóðarsáttinni upp.