Vaxta- og kjaramál
Fimmtudaginn 16. maí 1991


     Steingrímur Hermannsson :
    Virðulegi forseti. Á þeim skamma tíma sem ég hef verður þetta mikilvæga mál varla rætt. Þó er óhjákvæmilegt að fara um það nokkrum orðum svo ég noti nú orð sem hæstv. landbrh. notaði títt hér í fundarsal, þó hann sjáist nú sjaldan.
    Jú, það er alveg rétt að fyrri ríkisstjórn hafði miklar áhyggjur af háum vöxtum í landinu. Fyrri ríkisstjórn tók mjög virkan þátt í því með verkalýðshreyfingunni að knýja niður vexti. Það var eitt af meginatriðum þess samkomulags sem gert var og kallað er þjóðarsátt og það tókst vel. Vextir fengust lækkaðir úr u.þ.b. 9,5% 1988 raunvextir í u.þ.b. 8%. Það er hins vegar alveg hárrétt sem kom fram hjá hæstv. ráðherrum að það hefur verið þrýstingur á hækkun vaxta. Það er þess vegna sem ríkisstjórnin kvaddi Seðlabankann aftur og aftur til ráðgjafar um þetta mál en fékk heldur lítið frá Seðlabankanum, því miður. Þó er það athyglisvert að í skýrslu Seðlabankans um peningamarkaðinn 1990 kemur fram ein mjög mikilvæg ábending. Þar er gerður samanburður á vöxtum á ríkisskuldabréfum hér á landi og erlendis og talin ein af meginástæðum hárra vaxta hér að ríkisskuldabréfavextir hér á landi séu töluvert hærri en almennt gerist í öðrum löndum. Því þykir mér það einkennilegt ef það eru nú ráðin til að halda niðri vöxtum að byrja á því að hækka vexti á ríkisskuldabréfum. Og ég leyfi mér að fullyrða að með því að gera það mun ekkert annað gerast en gerðist 1988 þegar vextir hér voru hækkaðir á ríkisskuldabréfum og á eftir fylgdu almennir raunvextir í landinu sem voru 9,5%. Það er ekki nokkur vafi á því að með því er skuldsettum íslenskum fyrirtækjum stefnt í voða.
    Ég vil einnig vekja athygli á því að eftir að húsbréfin voru upp tekin þá jukust útlán til húsnæðismála frá árinu 1988 til ársins 1989, reiknað á verðlagi ársins 1991, úr rúmum 9 milljörðum kr. í yfir 16 milljarða kr. Enginn vafi er á því að sú ábending Seðlabankans að draga úr þessum útlánum er skynsamleg og ég vona að hæstv. ríkisstjórn beri gæfu til að fara þá leið frekar en að hækka vexti af ríkisskuldabréfum.