Vaxta- og kjaramál
Fimmtudaginn 16. maí 1991


     Ólafur Ragnar Grímsson :
    Virðulegi forseti. Vegna ummæla hæstv. fjmrh. tel ég nauðsynlegt að það komi hér fram að í nóvember sl. áttu samtök launafólks opinberra starfsmanna rétt á því að segja upp þjóðarsáttarsamningunum. BSRB og Kennarasamband Íslands notfærðu sér ekki þennan rétt sinn vegna þess að gert var viðbótarsamkomulag við BSRB og Kennarasamband Íslands um að launafólk fengi að njóta viðskiptakjarabatans. Þar með var gefið skuldbindandi fyrirheit, sem ekki er sjálfstætt mat eins og hæstv. fjmrh. sagði hér, heldur gefið skuldbindandi fyrirheit um það og þjóðarsáttarsamningarnir voru af hálfu opinberra starfsmanna framlengdir í trausti þess að staðið yrði við það viðbótarsamkomulag sem fulltrúar fjmrn. undirrituðu þegar ákveðið var að framlengja þjóðarsáttarsamningana. Það er þess vegna bæði samningsleg og siðferðileg skylda núv. hæstv. fjmrh. að standa við þetta samkomulag og hækka laun opinberra starfsmanna nú í samræmi við þann bata sem orðið hefur í viðskiptakjörum.
    Í öðru lagi vildi ég í góðri vinsemd við hæstv. forsrh. biðja hann að rugla ekki saman spám um þróun mála á næstu sex til átta mánuðum í ríkisfjármálum og hins vegar veruleikanum. Hæstv. forsrh. sagði hér: Hallinn er 10 -- 11 milljarðar. Það er rangt. Það hafa verið settar fram þrjár spár um það hver hallinn kynni að verða á árinu. Spá Ríkisendurskoðunar miðast við það að engar nýjar ákvarðanir séu teknar og ekkert aðhald sé sýnt í ríkisfjármálum, stjórnin sitji aðgerðarlaus allt árið. Spá embættismanna fjmrn. miðaði við fullt aðhald en engar nýjar ákvarðanir. Sú spá sem ég setti fram miðaðist hins vegar við það að það væri fullverkhæf ríkisstjórn í landinu sem væri reiðubúin til að taka nauðsynlegar ákvarðanir og ég vona að hún geri það.