Ólafur Þ. Þórðarson (um þingsköp) :
    Herra forseti. Hér kom fram hjá hæstv. forseta mjög löng lýsing á því hvað gert hefði verið hér í hliðarsölum, en mín spurning var mjög einföld, samkvæmt hvaða ákvæðum þingskapa væri starfað og það kom hér fram í svari forseta að það sé vitnað í 38. gr. þingskapa sem ég hygg að, með leyfi forseta, megi þá túlka sem það sé byggt á eftirtöldum atriðum ef ég fengi að lesa þau upp, með leyfi forseta:
    ,,Forseti getur stungið upp á að umræðum sé hætt og einnig getur forseti lagt til, hvort heldur í byrjun umræðu eða síðar, að umræðum um mál skuli lokið að liðnum ákveðnum tíma.``
    Í báðum tilfellum er gert ráð fyrir því að umræða hefjist eftir reglum þingskapa og þegar umræða er hafin, þá geti forseti gert tillögur, stungið upp á því eins og hér er sagt. Þessu virðist alveg hafa verið snúið við, þ.e. að forseti telur sig hafa vald til þess að semja um það hvernig hér sé staðið að málum í þinginu án þess að það sé nokkur stoð í þingsköpum fyrir þeim samningum og virðist nú nokkuð prjónað af fingrum fram svo ekki sé meira sagt.
    Ég er nú ekki að bera á hæstv. forseta að hann hafi algjörlega yfirgefið það að starfa samkvæmt þessum þingsköpum sem eru í gildi, en ( Gripið fram í: Hefurðu nefnt þetta við Pál Pétursson nokkuð?) Það er nú svo að ég hef nokkuð hreinar línur á því hvort ég tala við Pál Pétursson eða hæstv. forseta, skil þar mjög á milli og hef ekki hugsað mér að gera breytingar þar á og vil minna hv. þm. á það að hér hef ég heimildir til að tala um þingsköp og þá ber mér að beina orðum mínum til forseta.
    Ég vil þess vegna undirstrika það að ég biðst nú undan því að svona þingsköp, eins og hér hefur verið lýst af hæstv. forseta, séu látin gilda heldur verði farið eftir þeim þingsköpum sem eru í gildi og umræðum hagað samkvæmt því þannig að hérna verði alveg skýrt tekið fram hvort menn eru að tala um hálftíma umræðu eða ótakmarkaða umræðu samkvæmt þingsköpum, það verði alveg skilið þar skýrt á milli. Jafnframt hefur forseti að sjálfsögðu vald til þess að koma með uppástungur samkvæmt 38. gr. og ég hef ekkert við það að athuga að forseti komi með tillögur, en að sjálfsögðu eru það tillögur sem á að leggja fyrir þingheim, með fullri virðingu bæði fyrir Páli Péturssyni og öðrum sem forseti hefur vafalaust átt ánægjulegar samræður við.