Ingibjörg Sólrún Gísladóttir :
    Virðulegi forseti. Viðræður um myndun Evrópsks efnahagssvæðis hafa nú staðið yfir í rúm tvö ár eða allt frá því í mars 1989 þegar stofnuð var stjórnarnefnd embættismanna til að hefja könnunarviðræður um myndun Evrópsks efnahagssvæðis. Síðan þetta gerðist hafa margsinnis farið fram umræður hér á þingi um þetta mál. Margar skýrslur hafa verið gefnar út, bæði á vegum Alþingis og annarra aðila. En samt ætla ég að halda því fram að þessi umræða fljóti utan og ofan við þorra fólks í þessu landi. Ég ætla að halda því fram að þorri fólks í þessu landi viti ekki um innihald þess sem við erum að ræða hér. Og fyrir því eru auðvitað ýmsar ástæður. Ein þeirra er sú að segja má að þetta mál hafi fyrst og fremst verið rætt á hinum tæknilegu nótum.
    Umræðan hér í dag hefur kannski líka verið svolítið á þeim nótum. En ég ímynda mér að hjá því fari varla með mál eins og þetta. Hér hafa fyrirvarar Íslendinga verið teknir til umræðu og sagt frá því og sýnt fram á að þeir hafa ávallt verið mjög takmarkaðir og umboð utanrrh. í þessum viðræðum um Evrópskt efnahagssvæði hefur verið mjög vítt eftir því sem best verður séð. Ég hélt að menn hefðu verið nokkuð ásáttir í fyrrv. ríkisstjórn um þá fyrirvara sem Íslendingar gerðu, enda mátti ekki minna vera eins takmarkaðir og þeir voru. Þannig lýstu utanrrh. og fyrrv. forsrh. því yfir, oftar en einu sinni og oftar en tvisvar í kosningabaráttunni, að ekki gengi hnífurinn á milli þeirra í þeim viðræðum sem þá voru uppi þó svo að ýmsir kutar hefðu verið á lofti bæði í kosningabaráttunni og aftur hér í dag.
    Nú hefur hins vegar komið í ljós að það var afskaplega lítið hald í þessum fyrirvörum og þeir voru alls ekki öllum jafnljúfir. Það sést best á því að í síðustu samningalotu fór utanrrh. með það nesti í farangrinum til Brussel að honum væri heimilt að gera þessa fáu fyrirvara sem til staðar voru að skiptimynt. Það eina sem undan var skilið voru veiðiheimildir. En þannig vill utanrrh. greinilega hafa þetta. Hann vill að valdi sínu og umboði séu sem minnst takmörk sett. Hann er ekki einn um þetta. Þess hefur orðið vart að ýmsum alþýðuflokksmönnum finnst að sér sé nú dillað og þungu fargi af þeim létt. Þannig kom það fram í leiðara í Alþýðublaðinu þriðjudaginn 7. maí að þeir voru afskaplega sáttir við að vera lausir við allt fyrirvarafarganið. Í leiðara Alþýðublaðsins segir, með leyfi forseta: ,,Jón Baldvin Hannibalsson utanrrh. hefur nú fengið fullt umboð nýrrar ríkisstjórnar til að ljúka samningagerð um Evrópska efnahagssvæðið.`` Það er tekið hér fram að þetta sé háð því skilyrði eins og áður að ekki komi til greina að heimila ríkjum EB aðgang að íslenskri fiskveiðilögsögu í stað tollalækkana á sjávarafurðum. ,,Eru það umskipti frá því sem var í fyrri ríkisstjórn þegar menn og flokkar voru með fyrirvara út og suður``, eins og segir í leiðaranum. Þessir fyrirvarar ,,út og suður`` voru afskaplega fáir. Þeir tóku til fjárfestinga erlendra aðila tengdra náttúruauðlindum. Þeir tóku til varnaglaákvæða varðandi

frjálsan atvinnurétt og þeir tóku til þess að ekki yrði slakað á settum kröfum um öryggi, hollustuhætti og umhverfisvernd. Nú kann vel að vera að innan ríkisstjórnarinnar hafi verið einhverjir leynilegir fyrirvarar en þeir hafa þá ekki komið fram opinberlega og til lítils að vitna í þá í leiðurum blaða.
    Utanrrh. sagði fyrir þessar kosningar, og hann sagði það líka oftar en einu sinni og oftar en tvisvar og til þess hefur verið vitnað hér í þessum ræðustól fyrr í dag, að búið væri að semja um 98% af því sem semja þarf um varðandi Evrópska efnahagssvæðið. Hér í dag byrjaði hæstv. utanrrh. á því að kynna fyrir okkur hvernig þau 2% standa sem ekki hafði fengist niðurstaða um fyrir kosningar og enn er að ýmsu leyti ósamið um. Ég skal viðurkenna að ég skil ekki alveg hlutfallsreikning utanrrh., en það er kannski ekki nema von því ég hef orðið vör við það undanfarna daga að alþýðuflokksmenn nota einhverja aðferð sem gefur þeim hagstæðari niðurstöðu en öðrum sem spreyta sig á slíkum dæmum.
    Slíkar reikningskúnstir breyta þó ekki raunveruleikanum. En raunveruleikinn í þessu máli sem hér er til umfjöllunar er sá að það sem verið er að semja um varðandi Evrópska efnahagssvæðið einmitt núna eru þau mál sem mestu skipta í bráð og lengd. Þetta eru málin sem ósamið var um vegna þess hversu stór og þýðingarmikil þau eru.
Menn hafa smátt og smátt verið að einangra erfiðustu deiluatriðin. Vægi þessara mála er því miklu meira en 2% í heildarpakkanum, enda ráða þau mestu um það hvort af Evrópska efnahagssvæðinu verður eða ekki. Þau skilja því milli feigs og ófeigs ef svo má að orði komast.
    Sjálfstæðismenn hafa hér í dag tekið undir þau orð utanrrh. að búið sé að semja um 98% af því sem samið verður um og það gera þeir auðvitað af því að það hentar þeim afskaplega vel að segja það. Það hentar þeim afskaplega vel að segja: Fráfarandi ríkisstjórn gekk frá þessu máli. Við komum að borðinu svona.
    Fyrrv. stjórnarliðar hafa hins vegar haldið því fram að nú séu straumhvörf vegna þess að það hentar þeim að halda því fram. Það hentar þeim að halda því á lofti að nú eigi að semja um allt sem máli skiptir, það hafi ekki verið búið að því. Hér tala menn því dálítið eins og hverjum hentar. Mér er í sjálfu sér sama þó þeir tali þannig vegna þess að ég veit að valda þeir sem á halda og þeir hafa verið margir sem hafa haldið á þessu máli á undanförnum mánuðum og árum.
    En lítum þá aðeins á það hvaða mál eru uppi á borðinu núna. Hver eru þau 2% sem utanrrh. gerði að umtalsefni í kosningabaráttunni? Í fyrsta lagi virðist ljóst að komið verði upp EFTA - stofnun sem hafi samsvarandi umboð og svipað hlutverk og framkvæmdastjórn Efnahagsbandalagsins. Þessu er reyndar lýst í skýrslu utanrrh. frá því í mars 1991 sem var dreift hér á fundinum en eftir því sem mér skilst hefur hún ekki komið til umræðu hér á þingi áður. Þess vegna vil ég, með leyfi forseta, vitna hér til þess sem segir um

hlutverk og umboð þessarar stofnunar í skýrslunni frá mars 1991. Þar segir:
    ,,Sjálfstætt eftirlit með aðildarríkjum EB er í höndum framkvæmdastjórnar EB. Framkvæmdastjórnin hefur almennt eftirlit með fullnustu aðildarríkjanna á Rómarsáttmálanum, t.d. hvort lög hafa verið sett á grundvelli EB - tilskipunar á réttum tíma. Uppfylli aðildarríki ekki samningsskyldur sínar skorar framkvæmdastjórnin á aðildarríkið að bæta úr.`` --- Og nú vil ég biðja menn að hlusta á þetta með tilliti til þess að það á að koma upp EFTA - stofnun sem hefur samsvarandi hlutverk. --- ,,Geri aðildarríkið það ekki getur framkvæmdastjórnin höfðað mál á hendur aðildarríkinu fyrir dómstóli EB. Aðildarríkinu ber að hlíta dómi EB - dómstólsins þó engar þvingunarleiðir séu fyrir hendi til að fullnusta dómnum.
    Á sviði ríkisstyrkja hefur framkvæmdastjórnin sérstakt eftirlitsvald þar sem hún getur m.a. farið fram á stöðvun ríkisstyrkja sem hún telur ekki samræmast reglum bandalagsins.
    Á sviði samkeppnisreglna er eftirlitsvald framkvæmdastjórnarinnar sérstakt að því leyti að það beinist beint að einstaklingum og fyrirtækjum. Framkvæmdastjórnin hefur m.a. heimild til að rannsaka bókhald fyrirtækja í samvinnu við viðkomandi stjórnvöld, gefa undanþágur frá samkeppnisreglunum og kveða á um sektir sem eru aðfararhæfar í aðildarríkjunum.``
    Þannig á valdsvið þessarar EFTA - stofnunar að vera sem á að hafa eftirlit með því að EFTA - ríkin hagi sér í samræmi við EES - samkomulagið. Það er því greinilegt að það er verið að fela þessari eftirlitsstofnun mjög víðtækt vald og þeir sem í henni sitja verða algerlega óháðir fyrirmælum frá ríkisstjórnum síns heimalands. Það sem helst virðist þó vefjast fyrir samningamönnum er hvernig verkaskiptingu og samstarfi þessarar eftirlitsstofnunar og framkvæmdastjórnar EB verði háttað. Þessi þáttur er alveg jafnóljós og hann var í desember sl. Hann hefur ekki skýrst á síðasta fundi sem ráðherrarnir héldu.
    Annað mál sem er uppi á borðinu núna og er hluti af þessum 2% er að niðurstaða virðist nú fengin um hindrunarlausa fjármagnsflutninga og þjónustuviðskipti. Það þýðir einfaldlega að EFTA - ríkin taka upp þær samþykktir EB sem gilda á þessu sviði og það er ekki gert ráð fyrir neinum undanþágum, aðeins aðlögunartíma. Engar undanþágur.
    Þriðja málið sem er uppi á borðinu er að engin niðurstaða virðist fengin varðandi fyrirvara Íslendinga um að erlendum aðilum sé óheimilt að fjárfesta í fiskveiðum og fiskvinnslu eða fyrirtækjum sem tengjast okkar helstu orkulindum. Samkvæmt skýrslu utanrrh. frá því í mars sl. er skilningur EFTA - ríkjanna sá, og þann skilning ítrekaði utanrrh. hér fyrr í dag, að fjárfesting í sjávarútvegi og landbúnaði sé undanskilin því frelsi manna til að fjárfesta sem er eitt af grundvallaratriðunum á Evrópska efnahagssvæðinu. Það kemur hins vegar hvergi fram í þessum skýrslum utanrrh. og það kom heldur ekki fram í máli hans hér í dag að skilningur Efnahagsbandalagsins væri sá sami.

    Í skýrslunni frá því í mars 1991 sem dreift var hér á fundinum er þvert á móti tekið fram varðandi þetta atriði að umræður um það séu mjög skammt á veg komnar. Það hefur ekki verið upplýst hér á þessum fundi að þær umræður séu eitthvað lengra komnar en þá var. Og nú vil ég fá svör við því frá hæstv. utanrrh. hvort fyrir liggi sameiginlegur skilningur EFTA og EB á þessu atriði og ef svo er, hvort hann sé þá til í skriflegu formi. Ef hann er ekki til og ef þessi sameiginlegi skilningur liggur ekki fyrir, eru þá einhverjar líkur til að hann fáist og eru þá einhverjar líkur til þess að Íslendingar geti staðið á þessu ákvæði gagnvart EES - dómstólnum ef upp kemur? ( Utanrrh.: Skilningur á hvaða ákvæði?) Á því ákvæði að erlendum aðilum sé óheimilt að fjárfesta í fiskveiðum og fiskvinnslu vegna þess að þau svið séu undanþegin á Evrópska efnahagssvæðinu.
    Fjórða atriðið sem er uppi á borðinu núna er deilan um tollafríðindi Íslendinga á markaði Efnahagsbandalagsins og það hefur enn ekki verið tekið á því máli þannig að viðunandi niðurstaða fáist. Kröfur EB um veiðiheimildir eru enn til staðar.
    Í fimmta lagi er talað um það í yfirlýsingu ráðherrafundarins núna 13. maí að setja þurfi á laggirnar sérstaka fjárhagsstofnun sem á að vinna að því að draga úr svæðisbundnu efnahagslegu og félagslegu misræmi innan Evrópska efnahagssvæðisins. Það er tekið fram að öll framkvæmdaatriði varðandi þessa fjárhagsstofnun séu óleyst. Og ekkert hefur enn sést á blaði um það hvað Íslendingar þurfi t.d. að greiða til þessarar stofnunar, hvort sem það er tímabundið framlag eða framlag til frambúðar. Ég er reyndar þeirrar skoðunar að Íslendingar séu vel aflögufærir og geti látið meira af hendi rakna til vanþróaðri svæða heldur en nú er, en hvort það sem út undan stendur hjá okkur á að fara til Evrópuríkja eða einhverra annarra ríkja er allt önnur saga.
    Sjötta atriðið sem er uppi á borðinu núna er að það er talsvert starf enn óunnið varðandi búsetu- og atvinnuréttindi og það er sérstaklega tekið fram í yfirlýsingu ráðherranna.
    Í sjöunda lagi er ýmislegt enn óleyst varðandi upprunareglur vöru.
    Í áttunda lagi fæst væntanlega niðurstaða í það mál núna að Íslendingar eins og önnur aðildarríki EFTA hafa lýst sig reiðubúna til að setja í íslensk lög ákvæði þess efnis að reglur samningsins um Evrópska efnahagssvæðið skuli hafa forgang gagnvart íslenskum lögum. Þessar reglur byggja á viðeigandi samþykktum og lagagjörningum Efnahagsbandalagsins eins og margsinnis hefur komið fram hér í dag og þeir eru alls 1400 talsins. Þar að auki byggja þessar reglur á viðeigandi innihaldi Rómarsáttmálans. Þessir lagagjörningar, sem við höfum ekki átt neinn þátt í að semja eða haft nokkur áhrif á, munu verða æðri íslenskum lögum. Ef að líkum lætur hlýtur þetta að kalla á miklar breytingar á íslenskum lögum á næstu missirum. Það eitt getur ekki dugað að gefa reglum samningsins forgang gagnvart íslenskum lögum. Það hlýtur að þurfa að taka þær með einum eða öðrum

hætti inn í íslenskt lagasafn vegna þess að fólk verður að vita hvaða lög gilda í landinu. Allt annað er aðför að réttaröryggi. Það verða að vera ein lög og það verða allir að vita hvaða lög gilda. En ef við eigum að taka öll þessi lög inn í íslenska lagasafnið, þá held ég að menn sjái nú sína sæng upp reidda hér á Alþingi. Það hefur verið talað um hið háa Alþingi sem stimpilstofnun. Hvernig mun þá fara fyrir þessu þingi þegar öll þau lög eiga að komast inn í íslenskt lagasafn?
    Í níunda lagi er eitt af því sem liggur á borðinu að dómstóll EES mun starfa innan EB - dómstólsins. Þessi EES - dómstóll verður hæstiréttur okkar Íslendinga í flestu sem lýtur að viðskiptum. Við verðum að undirgangast þá dóma sem hann fellir hvort sem okkur er það ljúft eða leitt.
    Í tengslum við þetta má geta þess að dómar EB - dómstólsins, þeir dómar sem EB - dómstóllinn fellir og við munum ekki eiga neina aðild að, eru hluti af reglum EB og þar af leiðandi hluti af EES - samningi. Á þessa dóma, þessa EB - dóma sem eru sjálfkrafa hluti af reglum EB, getum við engin áhrif haft enda eigum við ekki aðild að EB - dómstólnum. Í þessu felst óumdeilanlega framsal á fullveldi. Utanrrh. vék að því hér í ræðu sinni í dag að allar fullyrðingar um framsal á fullveldi styddust ekki við rök. Ég fæ ekki séð hvernig hæstv. utanrrh. getur haldið þessu fram því að það er óumdeilanlega um framsal á dómsvaldi að ræða og það má færa mjög sterk rök fyrir því að það sé líka um framsal á löggjafarvaldi að ræða með inngöngu í Evrópska efnahagssvæðið.
    Sú mótsagnakennda skoðun hefur oft heyrst í umræðunni um Evrópska efnahagssvæðið að besta leiðin til að varðveita fullveldi sé að framselja það. Ég held að allir hugsandi menn sjái að þessi fullyrðing stenst enga röklega meðhöndlun.
    Sú skoðun hefur reyndar líka heyrst að hagstjórn okkar sé best borgið með því að koma hagstjórnartækjunum í hendur annarra, að koma hagstjórnartækjunum úr landi. Það má reyndar skilja ástæður þess að þessi skoðun á sér nokkurt fylgi en það breytir ekki því að þetta eru skoðanir þeirra sem setja öryggið ofar öllu öðru, skoðanir sem byggja á forsjárhyggju en ekki sjálfstjórn.
    Í tíunda lagi vil ég benda á að á samningaborðinu núna er hinn félagslegi þáttur Evrópska efnahagssvæðisins og satt að segja er hinn félagslegi þáttur mjög rýr. Það mun eiga sér stað mikil uppstokkun í atvinnu - og efnahagslífi aðildarríkja EB og EFTA með tilkomu Evrópska efnahagssvæðisins og með tilkomu innri markaðar 1. jan. 1993. Þetta er óumdeilt. Það er óumdeilt að það á sér stað mikil breyting og það er óumdeilt að atvinnuleysi mun að öllum líkindum aukast. Ástæðan fyrir því er kannski fyrst og fremst sú að meðan fyrirtæki með slæma samkeppnisaðstöðu eru að leggja upp laupana og ný að verða til, þá kemst mikið rót á vinnumarkaðinn sem kostar óumflýjanlega atvinnuleysi til að byrja með. Það er sagt að á innri markaðnum, og það mun líka gilda á Evrópska efnahagssvæðinu, eigi kostir stórfyrirtækja að fá

að njóta sín. Smáfyrirtækin og millistór fyrirtæki sem eiga í erfiðri samkeppnisaðstöðu munu væntanlega mörg hver leggja upp laupana og þjóðríkin munu ekki halda þessum fyrirtækjum á floti með séraðgerðum eða ívilnunum sem hafa áhrif á markaðinn. Þeim er það ekki heimilt. Þetta skiptir því launafólk verulegu máli. Atvinnuleysi skiptir launafólk verulegu máli. Þess vegna varð það niðurstaða af ráðstefnu verkalýðssamtaka EFTA - ríkjanna í Stokkhólmi í janúar 1990 að hin félagslega framþróun yrði að skipa stóran sess í umræðunum um Evrópskt efnahagssvæði. Og með leyfi forseta segir svo í þessari samþykkt:
    ,,Fyrir verkalýðssamtök EFTA - ríkjanna með 8 milljónir félagsmanna hafa kröfur launafólks um fulla atvinnu, aukin áhrif, gott vinnuumhverfi, félagslegt öryggi og jafnrétti grundvallarþýðingu. Það verður að fjalla sameiginlega um þessar kröfur innan ramma EFTA - samvinnunnar og þær verða að mynda grunn að Evrópsku efnahagssvæði framtíðarinnar. Markmiðið með Evrópsku efnahagssvæði hlýtur að vera bæði efnahagsleg og félagsleg framþróun.``
    Ég vil taka það fram að ég hef ekki orðið vör við að hinn félagslegi þáttur væri rúmfrekur í viðræðunum um Evrópskt efnahagssvæði né heldur í íslenskum skýrslum um þetta mál. Þar eru örfáar línur sem þetta mál varða og er afskaplega erfitt að skilja á þeim línum hvernig þessi þáttur kemur inn í myndina. Utanrrh. sagði reyndar hér í dag að á Evrópska efnahagssvæðinu væri ekki sameiginleg félagsmálastefna og þetta er mér vissulega ljóst. Það breytir þó ekki því að aðgerðirnar sem tengjast Evrópska efnahagssvæðinu hafa félagsleg áhrif og þessum félagslegu áhrifum verður að mæta, það verður að takast á við þau.
    Menn hafa hér vitnað í félagsmálasamning Efnahagsbandalagsins frá 1989 og velt því fyrir sér hvort hann eigi að gilda á Evrópska efnahagssvæðinu. Sé það svo, þá held ég að það hafi afskaplega takmarkaða þýðingu fyrir Íslendinga vegna þess að hann er rýr að innihaldi, hann hefur ekki lagagildi og það er lítið á honum að græða fyrir okkur.
    Mig langar til þess að segja það svona undir lokin að ég hef miklar efasemdir um þá samninga sem nú standa yfir. Og af hverju hef ég miklar efasemdir? Er ekki sjálfsagt að gera alþjóðlega viðskiptasamninga? Er ekki á ferðinni óumflýjanleg þróun iðnríkjanna í þessu samstarfi? Er þetta ekki bara liður í iðnbyltingu eins og einhver hélt fram? Er þetta ekki vörn gegn einangrun? Er þetta ekki allt af hinu góða? Þeir sem halda slíku fram eru að mínu mati slegnir nauðhyggju. Þeir eru slegnir nauðhyggju vegna þess að þróunin er ekki dæmd til að fara í eina átt. Menn geta haft áhrif á þróun. Því miður óttast ég að þeir sem hafi mest áhrif á þróunina um þessar mundir séu fámennur hópur karla og þeir séu að ákvarða framtíð okkar allra. Og ástæðan fyrir því að ég segi þetta er sú að þeir sem hafa lagt grunninn að innri markaði, þeir sem eru hugmyndafræðingar þess sem er að gerast á Evrópska efnahagssvæðinu og í EB eru karlar sem eru stjórnendur fyrirtækja og stjórnendur fjármagns.
    Innri markaðurinn byggir m.a. á hinni svokölluðu Checchini - skýrslu. Í þeirri skýrslu voru nokkur þúsund fyrirtækjastjórnendur spurðir hvað væri að í Evrópu, hvernig ætti að haga málum í Evrópu. Ég er sannfærð um það að svörin hefðu verið allt öðruvísi ef annað fólk hefði verið spurt. En það var bara aldrei spurt.
    Það sem ég sé í þessu máli, það sem ég sé í Efnahagsbandalaginu og Evrópska efnahagssvæðinu er nafnlaust, ópersónulegt vald sem lýtur eigin lögmálum fjarri öllu venjulegu fólki. Fæstir átta sig á því sem í samningum um Evrópskt efnahagssvæði felst og fæstir munu átta sig á því hvernig þeir eiga að ná til þessa valds þegar það er komið á. Það er heldur ekki nema eðlilegt þó fólk átti sig ekki á því vegna þess að valdið verður í formi vélgengs lögmáls. Valdið verður í líki hinnar ósýnilegu handar markaðarins.
    Ég óttast viðhorf þeirra sem ráða för í samningsgerðinni um Evrópskt efnahagssvæði. Utanrrh. stóð hér í pontu fyrr í dag og sagði um Evrópskt efnahagssvæði: ,,Allt þetta mun ég gefa ykkur.`` Ég ætla að undanskilja seinni hluta þessarar setningar. Ég efast um að Evrópska efnahagssvæðið muni færa okkur eitthvað allt annað og meira heldur en almenn þróun samfélagsins utan eða innan Evrópska efnahagssvæðisins mundi færa okkur. Þróunin mun færa okkur bæði gott og illt. Þróun er ekki bara gjöful, við verðum líka að huga að því sem glatast eða getur glatast í þróuninni. Við verðum að huga að sérstöðu okkar, við verðum að huga að arfi okkar og eiginleikum sem mótast hafa af menningu okkar, lífsháttum og náttúru. Við verðum að huga að því hvernig við viljum og ætlum að ná innihaldsríku lífi hér á landi, hvernig við ætlum að vernda það og hvernig við ætlum að þjóna því. Gerum við það best innan Evrópska efnahagssvæðisins eða utan? Það er sú spurning sem við hljótum öll að standa andspænis. Við verðum að hefja okkur af hinu tæknilega plani, hinni tæknilegu umræðu þó að hún sé vissulega mikilvæg, og reyna að byggja þessa umræðu á framtíðarsýn. Hver er framtíðarsýn okkar?
    Virðulegi forseti. Ég hef efasemdir sem lúta að þeim grunni sem Efnahagsbandalagið og Evrópska efnahagssvæðið byggja á. Ég hef efasemdir um þá framtíðarsýn miðstýringar neyslu og fjármagns sem birtist í því sem nú er unnið að innan Evrópska efnahagssvæðisins. Ég held að þessi framtíðarsýn sé í grundvallaratriðum í andstöðu við það sem gera þarf til að tryggja hag íbúa heimsins, ekki bara Evrópu.
    Fyrir skömmu var stödd hér á landi kona að nafni Maria Antonetta Maccocchi. Hún var í fylgdarliði Cossiga Ítalíuforseta þegar hann kom hingað til lands. Þessi kona er fyrrum þingkona á ítalska þinginu og á Evrópuþinginu. Hún er þar að auki doktor í stjórnmálafræði og hefur fylgst mjög vel með þróun mála í Evrópu á undanförnum áratugum. Við kvennalistakonur ræddum m.a. við hana og hún kom með dálítið skemmtilega samlíkingu. Hún sagði: ,,Staða smáríkja innan stórra ríkjaheilda eins og Efnahagsbandalagsins`` --- og ég ætla að bæta við Evrópska efnahagssvæðisins --- ,,er sambærileg við stöðu kvenna í stjórn- og félagskerfum sem búin eru til og mótuð af körlum.`` Ég held að við konur tölum því af nokkurri reynslu og þekkingu þegar við vörum við því að Ísland undirgangist sjálfviljugt slíkt hlutskipti.