Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) :
    Frú forseti. Þær umræður sem hér fara fram í dag um aðild okkar að samningum um Evrópska efnahagssvæðið eiga sér stað þegar þeir samningar eru komnir á lokastig og innan tíðar er ráð fyrir því gert að til úrslita dragi. Auðvitað var það sjálfstætt álitaefni fyrir okkur Íslendinga á sínum tíma hvort við ættum að taka þátt í samstarfi EFTA-þjóðanna. Þær kusu að þiggja tilboð Evrópubandalagsins um að ganga sameiginlega til slíkra viðræðna, hagsmunir þeirra voru augljósir. Evrópubandalagið hafði ákveðið með nýrri löggjöf um innri markað að stórauka frelsi í viðskiptum og efnahagslegri samvinnu. Atvinnufyrirtæki EFTA-þjóðanna voru að flytja í burtu, fjárfestingar þeirra voru að streyma út fyrir landamærin, inn til ríkja Evrópubandalagsins og hagsmunir þeirra af því að tengjast þessu nýja samstarfi voru augljósir. Okkar aðstaða var að nokkru leyti önnur fyrir þá sök að höfuðútflutningsatvinnuvegur okkar er sjávarútvegur en ekki almennur iðnaður og innri markaður Evrópubandalagsins tók ekki til þeirrar framleiðslu. Þess vegna hlutum við að meta alveg sérstaklega hvort okkar hagsmunir væru best tryggðir með samstarfi við EFTA-þjóðirnar. Niðurstaðan varð sú að hyggilegast væri að taka þátt í því samstarfi og um það mál hefur verið mjög víðtæk samstaða hér á Alþingi og meðal þjóðarinnar. A.m.k. fjórir stærstu flokkar þjóðarinnar, fjórir stærstu flokkar þingsins, hafa frá því að viðræðurnar fóru af stað verið sammála í meginatriðum um það hvernig standa skyldi að málum og meginmarkmið þessara viðræðna um meginskilyrði sem Íslendingar yrðu að setja.
    Ég lít svo á að í þessari umræðu hér í dag hafi þetta breiða samkomulag í öllum höfuðatriðum verið staðfest. Þó vekur það auðvitað athygli að ýmsir þeirra sem fram til þessa hafa borið ábyrgð á framgangi samningaviðræðna láta nú sem svo að ýmislegt komi þeim á óvart um stöðu samninganna. Það er þó mála sannast að í dag standa þessir samningar í öllum höfuðatriðum nákvæmlega í sömu sporum og eru í sama farvegi og hæstv. fyrrv. ríkisstjórn skildi við það mál. Það vekur því nokkra furðu þegar hv. 7. þm. Reykn. og reyndar einnig hv. 8. þm. Reykn. lýsa því hér yfir að það komi þeim á óvart að nú skuli vera rætt um sérstaka EFTA-stofnun
sem á takmörkuðu sviði, varðandi eftirlit með samkeppnisreglum, eigi að hafa sama vald og framkvæmdanefnd Evrópubandalagsins vegna þess að framkvæmdanefnd Evrópubandalagsins hefur yfirþjóðlegt vald.
    Sú ríkisstjórn sem þessir hv. þm. sátu í, og annar veitti reyndar forustu, tók þátt í þessum viðræðum og var aðili að sameiginlegri yfirlýsingu ráðherra EFTA og Evrópubandalagsins 19. des. sl. Í þeirri yfirlýsingu var með mjög skýrum hætti tekið fram að unnið yrði að áframhaldandi samningsgerð á þeim grundvelli að sett yrði upp sjálfstæð EFTA - stofnun til að beita samkeppnisreglum og slík stofnun ætti að hafa samsvarandi umboð og hlutverk og framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins. Þessi sameiginlega yfirlýsing, sem fyrrverandi ríkisstjórn átti aðild að, var prentuð í þingskjali sem hæstv. utanrrh. lagði fyrir í lok síðasta kjörtímabils. Nákvæmlega þetta ákvæði hennar kom til umræðu í sjónvarpsþætti sem hæstv. utanrrh. og hv. 8. þm. Reykn. hafa gert hér að umtalsefni í dag. Ég vakti athygli á því í þeim þætti að hér hefði ríkisstjórnin tekið mjög veigamiklar ákvarðanir með aðild að slíkri yfirlýsingu og með því að samþykkja hana. Þeir höfnuðu því allir að í slíkum texta fælist nokkurt ákvæði um yfirþjóðlegt vald. Ég hygg að hjá því verði á hinn bóginn ekki litið að slík stofnun hefur ákveðið yfirþjóðlegt vald. Dómstóll hefur ákveðið yfirþjóðlegt vald. Við erum nú þegar og höfum lengi verið aðilar að Evrópudómstólnum, að Mannréttindadómstóli Evrópu. Það má með nokkrum sanni segja að hann fari með yfirþjóðlegt vald. Við höfum m.a. tekið ákvarðanir um að breyta íslenskum lögum vegna ákvarðana sem teknar hafa verið í mannréttindanefnd og Mannréttindadómstól Evrópu.
    Sú stofnun sem hér um ræðir fer með vald á mjög afmörkuðu sviði varðandi framkvæmd samkeppnisreglna og það er deginum ljósara að það eru ekki síst hagsmunir hinna fámennari þjóða, eins og okkar Íslendinga, að slíkt samkomulag feli í sér mjög virkt eftirlit með samkeppnisreglum því að vitaskuld eiga hinar stærri þjóðir sem hýsa öflugustu fyrirtækin meiri möguleika á því að ganga á svig við samkeppnisreglurnar og knésetja hin minni fyrirtæki í samkeppninni með undirboðum. Ekki síst þess vegna er okkur Íslendingum styrkur að því að í slíku samkomulagi séu mjög virk ákvæði um eftirlit með samkeppnisreglum. Það er líka ljóst að þegar haldið var af stað í þessar viðræður var aðgöngumiðinn sá að Íslendingar gerðust aðilar að löggjöf Evrópubandalagsins um innri markað. Tilboð Evrópubandalagsins til EFTA - þjóðanna var að EFTA gerðist aðili að löggjöf Evrópubandalagsins um innri markað. Það er því svolítið kyndugt þegar ráðherrar úr fyrrv. ríkisstjórn undrast það og stuðningsmenn fyrri ríkisstjórnar undrast það nú að þessir samningar snúist um það að þessi löggjöf eigi að taka fram íslenskri löggjöf. Þegar samningaviðræðurnar fóru af stað lá þetta ljóst fyrir.
    Meginhagsmunir okkar Íslendinga liggja auðvitað í því að tryggja höfuðútflutningsgrein okkar stöðu á þessum nýja markaði. Sjávarafurðir eru okkur ekki aðeins jafnmikilvægar og iðnaðarframleiðsla annarra er þeim heldur má með rökum segja að sjávarafurðir Íslendinga séu okkur meira virði en iðnaðarframleiðsla hinna þjóðanna, bæði innan EFTA og Evrópubandalagsins, vegna þess að við erum háðari útflutningi en flestar aðrar þjóðir.
    Meginatriðið í öllum þessum samningum, hversu mikilvæg sem önnur atriði eru, er að tryggja að íslenskar sjávarafurðir njóti sömu stöðu á Evrópumarkaðinum, innan hins nýja Evrópska efnahagssvæðis, og iðnaðarvörur annarra þjóða. Ég hef aldrei leynt því að ég hafði af því nokkrar áhyggjur þegar haldið var af stað í þessar viðræður í samfloti við EFTA-þjóðirnar að það kynni að koma að því að í lok viðræðnanna

gætum við staðið frammi fyrir erfiðum ákvörðunum vegna þess að í upphafi var ákveðið að geyma umræður um höfuðatriðið að því er varðar íslenska hagsmuni þangað til síðast. Á móti var á það bent að í því kynni að felast allverulegur styrkur af okkar hálfu því að EFTA-þjóðirnar ætluðu að semja sameiginlega. EFTA-þjóðirnar mundu að hluta færa nauðsynlegan fórnarkostnað til þess að tryggja kröfu Íslands framgang um hindrunarlausan aðgang að þessum markaði fyrir sjávarafurðir. Nú er sem sagt að því komið að láta reyna á þennan styrk. Það er að sjálfsögðu rétt að samningarnir hafa fram til þessa litlu skilað að því er varðar höfuðmálefni Íslendinga en í upphafi var ráð fyrir því gert, þegar fyrri ríkisstjórn ákvað með hvaða hætti skyldi gengið til viðræðnanna, að þá fyrst kæmi að úrslitaátökum að því er varðaði okkar hagsmuni ef við stæðum frammi fyrir lokun samninganna. Það var ákvörðun sem var tekin í upphafi.
    Vissulega er það fagnaðarefni að í síðustu yfirlýsingu ráðherranna, sem hér hefur verið til umræðu, kemur fram að þjóðirnar fallast á að taka verður tillit til heildarhagsmuna. Eigi að síður er staðreyndin sú að enn vitum við ekki hver okkar staða er í þessu efni. Um grundvallaratriði hefur verið mjög breið samstaða á milli allra flokka í þinginu. Það hefur verið algjör samstaða um það að við mundum aldrei fallast á veiðiheimildir í skiptum fyrir tollfrjálsan aðgang að Evrópumarkaðinum. Að því er þessa afstöðu varðar hefur enginn brestur verið í íslenskri samstöðu. Það hefur verið mjög víðtæk og almenn samstaða um það að við ætluðum ekki að hleypa Evrópuþjóðunum bakdyramegin inn í íslenska fiskveiðilögsögu með því að heimila erlendar fjárfestingar í sjávarútvegi. Í þessu efni hafa engar breytingar orðið, hefur verið og er víðtæk samstaða. En stóra álitaefnið sem við stöndum nú frammi fyrir er þetta: Hver verður ásættanleg niðurstaða í þessum samningum?
    Við höfum fylgt því eftir að afnám tolla á sjávarafurðir sé lágmarkskrafa af okkar hálfu. Í fyrstu, eins og hér hefur komið fram, settum við fram þá kröfu sameiginlega með EFTA-þjóðunum að Evrópubandalagið mundi viðurkenna fríverslun með fisk. Þar kom í samningaviðræðunum að Evrópubandalagið hafnaði þessari kröfu. Við höfum ákveðið að halda fast við afnám tollanna, en við höfum sagt sem svo: Við sættum okkur við að keppa á Evrópumarkaðinum við sjávarútveg hinna ríkjanna innan væntanlegs Evrópsks efnahagssvæðis þrátt fyrir mjög umfangsmikið styrkjakerfi þeirra. Það er veruleg fórn af okkar hálfu. Og þegar af þeirri ástæðu hefur Evrópubandalagið engin rök til þess að ætlast til meira endurgjalds af okkur fyrir fullt afnám tolla. En ég hef heyrt því fleygt í umræðum nú að undanförnu að við þyrftum að velta því fyrir okkur hvort til greina gæti komið að við samþykktum væntanlega samninga þó svo að við fengjum þessari höfuðkröfu okkar ekki framgengt.
    Mér finnst full ástæða til að taka það mjög skýrt fram þannig að enginn velkist í vafa um að það er forsenda fyrir því að við gerumst aðilar að væntanlegum samningi um Evrópskt efnahagssvæði að við

fáum þessari kröfu um tollfrjálsan aðgang framgengt á þeim forsendum sem við höfum lagt fram. Það er ekkert til umræðu og getur ekki komið til álita að við gerumst aðilar að samningnum ef þetta mál hangir í lausu lofti eða er sett fram af Evrópubandalagsins hálfu með ófullnægjandi hætti. Það er mjög mikilvægt á þessu stigi að viðsemjendur okkar í Evrópubandalaginu viti það að frá þessu ætlum við ekki að víkja. Við höfum um allnokkurn tíma beðið eftir því að Evrópubandalagið legði fram nýjar tillögur í þessu efni. Menn áttu von á að slíkar hugmyndir kæmu fram frá Evrópubandalaginu á nýafstöðnum ráðherrafundi, sameiginlegum ráðherrafundi. Það gerðist ekki með formlegum hætti og við hljótum að kalla eftir afstöðu Evrópubandalagsins á þessu stigi málsins.
    Á þessum fundi náðist samkomulag um ýmis atriði sem ágreiningur hefur verið um fram til þessa þannig að nú eru fá mál eftir sem verulegum ágreiningi valda önnur en þetta atriði sem lýtur að höfuðhagsmunum Íslands og við erum að því leyti í nokkuð þröngri stöðu. Því meiri ástæða er til þess að viðsemjendur okkar viti að við ætlum ekki að hvika frá þessu sjónarmiði. Að afnám tollanna er það atriði sem skiptir okkur öllu máli. Ef við fáum því ekki framgengt gerumst við ekki aðilar að samningnum um Evrópskt efnahagssvæði. Ísland verður að þessu leyti að njóta sömu aðstöðu fyrir sínar útflutningsafurðir eins og hinar þjóðirnar í EFTA og Evrópubandalaginu njóta fyrir iðnaðarframleiðslu sína.
    Frú forseti. Ég hef hér gert af minni hálfu grein fyrir þeim höfuðsjónarmiðum sem mér finnst ástæða til að komi fram á þessu stigi málsins. Meginatriðin, höfuðhagsmunir Íslendinga, liggja í þeim þætti samninganna sem eftir er og lýtur að lausn á sjávarútvegsmálunum.