Ólafur Ragnar Grímsson :
    Virðulegi forseti. Ég vil í upphafi óska eftir því að hæstv. forsrh., hæstv. landbrh. og einnig hæstv. utanrrh. ásamt hv. þm. Birni Bjarnasyni verði hér viðstaddir umræðuna því það er óhjákvæmilegt að víkja að nokkrum orðum sem fram hafa komið í ræðum þessara manna.
    Ég vil þó segja það í upphafi við hæstv. utanrrh. að ég ætla að vona að skilningur hans á því sem gerðist á utanríkisráðherrafundinum sl. mánudag sé réttari og nákvæmari en frásagnir hans af því hér í umræðunum hvað gert var innan síðustu ríkisstjórnar eða umfjöllun hæstv. ráðherra um fyrirvara. Annars vegar hefur hæstv. utanrrh. haldið því fram hér í umræðunni að enginn munur sé á því sem samþykkt var 19. des. og því sem gert var sl. mánudag og hins vegar að miklir áfangar hafi náðst í samningunum um Evrópskt efnahagssvæði vegna þess að á fundinum sl. mánudag hafi verið fundin pólitísk lausn á nánast öllum þeim helstu vandamálum sem út af stóðu. Báðar frásagnirnar geta ekki verið réttar, önnur hvor hlýtur að vera röng, hæstv. utanrrh. (Gripið fram í.) Eða báðar, segir hæstv. landbrh. Ef það er rétt, hæstv. utanrrh., þá er nú illa komið fyrir hæstv. utanrrh. í þessari ríkisstjórn ef ráðherrar Sjálfstfl. telja að báðar fullyrðingar hæstv. ráðherra séu rangar.
    Á hinn bóginn hefur hæstv. utanrrh. sagt að allir fyrirvararnir sem voru settir fram innan síðustu ríkisstjórnar séu enn í fullu gildi og hins vegar hefur hann sagt að árangurinn af fundi hinnar nýju ríkisstjórnar 5. maí í Ráðherrabústaðnum sé að fyrirvararnir frá tíð síðustu ríkisstjórnar séu ekki lengur í gildi, eins og hæstv. utanrrh. tjáði sig við fjölmiðlana eftir þann fund ríkisstjórnarinnar. Báðar fullyrðingarnar geta ekki verið réttar. Það getur ekki verið rétt að segja hér í þingsalnum í dag: ,,Allir fyrirvararnir frá tíð síðustu ríkisstjórnar eru í fullu gildi``. Og segja svo við þjóðina 6. maí: ,,Stóri ávinningurinn af þessari nýju ríkisstjórn er að nú er ég sem utanrrh. ekki lengur bundinn af þeim fyrirvörum sem ég var bundinn af í tíð síðustu ríkisstjórnar`` --- hæstv. utanrrh.
    Þessi mál eru svo stór, þau eru svo alvarleg, hæstv. ráðherra, að það verður að tala skýrt og menn verða að vanda sig. Það duga ekki í þessu máli sömu vinnubrögðin og í samkomulaginu í Viðey. Það dugir ekki, hæstv. utanrrh., að segja eins og sagt er um samkomulagið í Viðey: Sjávarútvegsstefnan er skýr, landbúnaðarstefnan er skýr, verkefni umhvrn. eru skýr. --- En síðan kemur hæstv. núv. sjútvrh. og segir: Það er óbreytt stefna frá tíð síðustu ríkisstjórnar. Hæstv. landbrh. segir: Ég ætla ekki að breyta neinu í búvörusamningnum og hæstv. forsrh. kemur og segir að hæstv. utanrrh. hafi oftúlkað það sem var skýrt. Og hæstv. umhvrh. sagði: ,,Orð skulu standa.`` Hvaða orð skyldu standa? Það eru engin orð sem standa varðandi skógrækt og landgræðslu og landbrn. og umhvrn.
    Í þessu máli sem við erum að ræða hér, hæstv. utanrrh., duga ekki þeir pólitísku orðaleikir sem hæstv. ráðherra duga kannski til túlkunar á samkomulaginu í

Viðey vegna þess að samkomulagið í Viðey er bara eithvað sem kemur og fer með ríkisstjórn. En það sem við erum hér að tala um mun standa eða falla um langa framtíð. Þess vegna vænti ég þess, virðulegur utanrrh., að hann vandi vel hvað hann segir og tali nákvæmlega og skýrt en sé ekki í svona hrópandi mótsögn við sjálfan sig í höfuðatriðum málsins í sömu ræðunni eins og hæstv. ráðherra var hér áðan.
    Hv. þm. Björn Bjarnason flutti hér ræðu sem gekk aðallega út á það að rekja það að innan þessarar nýju ríkisstjórnar hefði nánast ekkert gerst sem ekki hefði gerst innan síðustu ríkisstjórnar. Nú er það í sjálfu sér þannig, áður en ég kem að þessari fullyrðingu, að það er ekki höfuðatriði málsins. Höfuðatriði málsins er afstaða okkar til þeirra efnisatriða sem hér eru á dagskrá. Ég tók eftir því að hv. þm. lýsti ekki afstöðu sinni til eins einasta af þeim efnisatriðum sem hér hafa verið til umfjöllunar í umræðunni. Hv. þm. Björn Bjarnason flutti hér snyrtilega ræðu og lauk henni án þess að lýsa afstöðu til eins einasta atriðis sem t.d. hæstv. utanrrh., hv. þm. Steingrímur Hermannsson eða ég röktum hér í löngu máli í umræðunum. Og það vekur auðvitað spurningar þegar um jafnvandaðan mann í meðferð utanríkismála er að ræða og hv. þm. Björn Bjarnason hvers vegna hv. þm. lýsti ekki neinni afstöðu. Í þessum efnum talaði hann eins og hæstv. forsrh. --- sem ég ítreka ósk mína um að sé hér í salnum --- vegna þess að hæstv. forsrh. hefur enn ekki í þessari umræðu lýst afstöðu til neins efnisatriðis sem hér er til umfjöllunar. Það er satt að segja mjög sérkennilegt þegar hér hefur staðið yfir umræða í senn tíu klukkustundir og hæstv. forsrh. hefur kvatt sér hljóðs tvisvar í þessari mikilvægu umræðu skuli hann ekki enn hafa lýst afstöðu í einu einasta efnisatriði.
    Innan síðustu ríkisstjórnar var mörkuð sú stefna að taka þátt í EFTA - viðræðunum við Evrópubandalagið, en það var ætíð innan þeirrar ríkisstjórnar hafður skýr fyrirvari um það að metið yrði í hverjum áfanga viðræðnanna hvort þær væru komnar á það stig að þeim bæri að hætta eður ei. Og í þeim sjónvarpsþætti sem nokkrum sinnum hefur verið nefndur hér í umræðunum lét ég það sjónarmið Alþb. koma fram að við mundum að sjálfsögðu á hverju stigi þessara viðræðna meta það hvort þeim ætti að halda áfram eða ekki. Það var auðvitað það sem hæstv. utanrrh. var að kvarta undan í síðustu ríkisstjórn, að hann var skuldbundinn þar til þess að gefa skýrslu í hverjum áfanga og setja sig undir faglegt mat eða umfjöllun í ríkisstjórninni um það hvað út úr þeim áfanga hefði komið og lyktaði svo með því, eins og ég mun koma að hér á eftir, að hæstv. utanrrh. treysti sér ekki til þess að biðja um afstöðu síðustu ríkisstjórnar til spurninga samningamanns Íslands um fyrirvara eða breytingar í fjölmörgum atriðum samninganna.
    Það sem gert var 19. des. og gerð var grein fyrir í skýrslu til Alþingis í marsmánuði sl. vísaði auðvitað veginn í ýmsum atriðum. Það leiddi einmitt til þess að samningamaður Íslands lagði fyrir ríkisstjórnina minnisblað þar sem samningamaður Íslands óskaði eftir því að ríkisstjórnin veitti honum umboð til þess að ganga áfram þá braut sem hugsanlega var mörkuð í samkomulaginu frá 19. des. og utanríkisráðherrarnir höfðu staðfest. En ríkisstjórnin veitti honum aldrei þetta umboð. Það er kjarni málsins, hv. þm. Björn Bjarnason. Utanrrh. kom með þennan texta tvisvar eða þrisvar inn í ríkisstjórnina, endurritaði hann a.m.k. tvisvar sinnum og fékk aldrei heimild frá ríkisstjórninni til þess að halda málinu áfram á grundvelli þess sem þar var lagt til.
    Eins og fram kom hér hjá hv. þm. Steingrími Hermannssyni áðan, fráfarandi forsrh., þá voru þessir fyrirvarar ræddir á löngum ítarlegum fundi í Ráðherrabústaðnum, m.a. fyrirvarinn varðandi rétt útlendinga til þess að kaupa jarðir og lönd á Íslandi. Og ráðherrar Alþb. m.a. voru ekki reiðubúnir að fallast á þær tillögur í málinu sem utanrrh. lýsti þá og lýsti aftur í dag. Hins vegar er það rangt hjá hæstv. landbrh. að við höfum farið eitthvað leynt með þá afstöðu okkar. Ég lýsti þeirri afstöðu minni t.d. í sjónvarpsþætti í janúarmánuði sl., og það vill svo til að ég er með afrit af því hér í ræðustólnum,
þar sem ég sagði m.a., með leyfi forseta: ,,Sú krafa hefur komið fram af hálfu Evrópubandalagsins að liður í Evrópsku efnahagssvæði verði það að útlendingar geti keypt fasteignir, þar með talið land, þar með taldar jarðir, þar með taldar ár, í EFTA-löndunum. Við í Alþb.`` og þá greip hæstv. utanrrh. fram í í þættinum og sagði: ,,Nú ert þú með hrollvekju, Ólafur.`` Það var þetta sem hæstv. ráðherra lýsti sjálfur hér áðan sem sjálfsögðum og eðlilegum hlut, kallað af honum í sjónvarpinu hrollvekja. Ég hélt áfram, með leyfi forseta: ,,Við þurfum líka, Jón, að tala alveg skýrt fyrir þjóðina. Þetta er eitt af því sem hefur komið fram og við í Alþb. höfum sagt alveg tvímælalaust að við viljum ekki samþykkja þessar kröfur.``
    Það var þess vegna, hæstv. landbrh., ekki farið leynt með þessa afstöðu. Hún kom fram í umfangsmesta umræðuþætti íslenskra fjölmiðla um þetta mál í janúarmánuði sl. þar sem þáv. formaður Sjálfstfl., núv. hæstv. sjútvrh., var meðal þátttakenda. (Gripið fram í.) Hæstv. landbrh. má alveg halda áfram þeirri taktík sem hann tamdi sér í stjórnarandstöðu. Hún var í lagi þá og oft skemmtileg, en nú hefur hv. alþm. Halldóri Blöndal verið fengið samkvæmt íslensku stjórnarskránni sjálfstætt ráðherravald, vegna þess að ríkisstjórn Íslands er ekki fjölskipað stjórnvald heldur fer hv. þm. Halldór Blöndal, hæstv. landbrh., einn með ráðherraábyrgð og ráðherravald í málefnum landbúnaðar og samgangna. Þess vegna verður hann auðvitað að temja sér alvarlegri umfjöllun um mál af þessu tagi en hann leyfði sér á meðan hann var ábyrgðarlaus hér í stjórnarandstöðu.
    Í öðru lagi kom þessi afstaða, hæstv. landbrh., fram í kynningarþætti Alþb. fyrir síðustu alþingiskosningar, sem sjónvarpað var þriðjudaginn eftir páska, þar sem enn á ný var ítrekuð sú afstaða okkar að við vildum ekki fallast á það að erlendir aðilar fengju sams konar rétt til kaupa á jörðum og löndum og landsins gæðum hér á Íslandi og Íslendingar. Við vildum að Íslendingar hefðu forgang, meiri rétt til slíkra kaupa en útlendir menn. En eins og hv. þm. Steingrímur Hermannsson lýsti hér mjög vel áðan þá byggir samningskrafa Evrópubandalagsins á því að um slíka mismunun sé ekki að ræða eða að útlendir menn hafi sama rétt og íslenskir ríkisborgarar í þessum efnum. Og það er eitt af því sem er algerlega ósvarað í þessari umræðu: Hver er afstaða hæstv. ríkisstjórnar í þessum efnum? Vegna þess að hæstv. landbrh. lýsti annarri afstöðu hér í umræðunni en fram kom hjá hæstv. utanrrh. Þess vegna er alveg nauðsynlegt að knýja á um það, hvort er það afstaða hæstv. utanrrh. sem gildir af hálfu Íslands í þessum samningaviðræðum eða er það sú afstaða sem hæstv. landbrh. lýsti hér áðan? Er nú rétt að spyrja hæstv. forsrh. formlega, sem samkvæmt embættisskyldu sinni á að skera úr um slíkan ágreining: Hvort er það afstaða hæstv. landbrh. eða afstaða hæstv. utanrrh. sem er afstaða ríkisstjórnarinnar í þessum efnum? Ég óska eftir því að hæstv. forsrh. svari því formlega hér á eftir.
    Þess vegna er það auðvitað alveg ljóst, hv. þm. Björn Bjarnason, að í fjölmörgum atriðum er yfirlýsing utanríkisráðherra Evrópubandalagsins og EFTA frá því síðasta mánudag svo afdráttarlaus í mörgum þeim höfuðatriðum sem efasemdir voru um innan síðustu ríkisstjórnar og voru þar tekin til umfjöllunar hvað eftir annað að sú niðurstaða hlýtur auðvitað að sæta verulegum tíðindum sem meginvegamót í þessu samningaferli. Vegna þess að yfirlýsingin frá 19. des. var ekki slík vegamót.
    Það er hins vegar athyglisvert og verður einhvern tímann skemmtilegt rannsóknarefni fyrir sagnfræðinga þessa máls að í tæpt ár hefur hæstv. utanrrh. nánast ávallt þegar þessi mál hefur borið á góma sagt: ,,Það er búið að semja um 98 -- 99% þess sem um þarf að semja í þessum viðræðum. Það eru bara þrjú atriði eftir.`` Þetta sagði m.a. hæstv. ráðherra í þessum fræga sjónvarpsþætti. Þetta sagði hann aftur hér í dag. Það vill hins vegar bara svo til ( Utanrrh.: Það eru þrjú atriði eftir.) að þau þrjú atriði sem hæstv. ráðherra taldi upp í sjónvarpsþættinum eru önnur en þau þrjú atriði sem hann taldi upp hér í dag. Prósenttalan er því alltaf eins en þessi þrjú atriði eru hins vegar alltaf að breytast. Það sýnir ásamt öðru að það er ekki alltaf alveg nákvæmt sem hæstv. utanrrh. segir um þetta mál. En það er hins vegar komið á það stig að það er alveg nauðsynlegt að hann tali alveg skýrt.
    Hæstv. forsrh. sagði það hér í sinni fyrri ræðu, ef ég fer rétt með, að ekkert hefði gerst í þessum samningum sem ekki hefði áður verið samið um. Ég vona satt að segja að mér hafi misheyrst þessi yfirlýsing hæstv. forsrh. því ég ætla nú ekki að leiða einu sinni hugann að því hvað liggur að baki ef það er virkilega skilningur hæstv. forsrh. að ekkert hafi gerst á þessum fundi utanríkisráðherra EFTA og EB sl. mánudag sem leiði til þess að hægt sé að segja að ekki sé búið að semja um neitt sem ekki hafi áður verið samið um. Ég hef skrifað það hér eftir hæstv. ráðherra og það má þá skoða það þegar afritið af ræðunni liggur fyrir. ( Forsrh.: Það var hæstv. sjútvrh.)

Nei, ég mun nú koma að hæstv. sjútvrh. hér á eftir. Það var satt að segja þannig að hann flutti merkustu ræðuna af hálfu Sjálfstfl. í þessum umræðum. Ef ég má leyfa mér það þá lá við að maður saknaði þess að hann væri ekki lengur formaður Sjálfstfl. og hélt ég nú að það ætti ekki eftir að koma fyrir mig. Ég mun koma að þeirri ræðu hér á eftir.
    Ég vil spyrja hæstv. forsrh. vegna þess að hann hefur ekki enn þá lýst því yfir í þessari umræðu: Er hann sammála því sem hæstv. utanrrh. hefur endurtekið hvað eftir annað, bæði innan síðustu ríkisstjórnar og einnig hér í þessum umræðum, að ekki komi til greina að semja um yfirþjóðlegt vald? Ekki komi til greina að framselja vald til yfirþjóðlegrar stofnunar? Ég tel mjög mikilvægt að hæstv. forsrh., bæði fyrir hönd síns embættis og fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og ekki síst Sjálfstfl., lýsi því yfir hvort hann er sammála þeirri forsendu samningsgerðarinnar að ekki eigi að semja um framsal á valdi til yfirþjóðlegra stofnana? Ef svarið er já, sem ég vona að það sé, þá auðvitað erum við hér komin með ákveðið fast land í forsendum málsins. Síðan verður það að vera matsatriði og túlkunaratriði hvort þeir samningar sem verið er að gera fela slíkt í sér eða ekki.
    Hæstv. sjútvrh. lýsti því yfir að staða málsins varðandi sjávarútveg væri því miður þannig að menn stæðu í nákvæmlega sömu sporum og áður og þetta er alveg rétt. En hann sagði hins vegar meira. Hann sagði að eftirlitsstofnunin, sem hér hefur verið til umræðu, fæli í sér ákveðna tegund af yfirþjóðlegu valdi. Hæstv. utanrrh., heyrir hann mál mitt? Ég vildi óska eftir því að hæstv. utanrrh. kæmi hér í salinn vegna þess að ég var að vitna til þeirra ummæla hæstv. sjútvrh. þar sem hann viðurkenndi einn ráðherra í þessum umræðum að það sem við fulltrúar stjórnarandstöðunnar höfum verið að segja, að með yfirlýsingu utanríkisráðherrafundarins frá síðasta mánudegi sé verið að játast undir það að stofnunin fái ákveðna tegund af yfirþjóðlegu valdi og þar með afneitar hæstv. sjútvrh. þeim fullyrðingum sem hæstv. utanrrh. hefur viðhaft hér í umræðunum. Það þýðir ekkert að velta vöngum yfir því, hæstv. utanrrh. Það er bara alveg skýrt. ( Utanrrh.: Ég hristi kollinn, velti ekki vöngum.) Já, þá er spurningin hvernig á að túlka þann kollhristing. En ég get skilið að það sé dálítið snúið mál fyrir hæstv. utanrrh. að sjútvrh., sem gegnir auðvitað lykilhlutverki í þessu máli, skuli formlega hafa lýst þessari skoðun sinni í umræðum.
    En hæstv. sjútvrh. sagði meira. Hæstv. sjútvrh. gaf út merkustu yfirlýsinguna sem fram hefur komið af hálfu ráðherranna í ríkisstjórninni í þessum umræðum. Og hann á vissulega hrós skilið fyrir það. Afdráttarlausustu, skýrustu og merkustu yfirlýsinguna sem fram hefur komið í þessum umræðum. Hæstv. sjútvrh. sagði að það væri ekki til umræðu, það kæmi ekki til álita að gerast aðili að samningnum um Evrópskt efnahagssvæði ef Íslendingar fengju ekki tollfrjálsan aðgang fyrir sjávarafurðir. Og nú vil ég spyrja formlega hæstv. forsrh., hæstv. utanrrh. og hæstv. viðskrh. og óska eftir því að hæstv. viðskrh. verði sóttur. ( Gripið fram í: Hann er farinn að sofa.) Hæstv. viðskrh. getur ekki leyft sér að sofa í þessari umræðu. Ef hann er farinn heim að sofa kl. 12, sem ég trúi nú ekki, því hann sofnar nú aldrei fyrr en nóttin er orðin mið og vaknar manna fyrstur, að hann verði sóttur því þetta er mikið alvörumál. ( Forseti : Það er ástæðulaust að gefa sér það að hæstv. viðskrh. sé farinn heim að sofa því hann er nú hér í húsinu og verður því beðinn um að koma hér inn.) Já, ég fagna því og óska eftir að hann sé sóttur. Ég vil formlega fara þess á leit við þessa þrjá ráðherra, hæstv. forsrh., hæstv. utanrrh. og hæstv. viðskrh., að þeir svari með einföldu jái eða neii, ekki með neinum málalengingum. ( Forseti: Tók forseti rétt eftir að hv. þm. bað um svar frá hæstv. sjútvrh.?) Nei, þá hef ég mismælt mig. Ég sagði hæstv. forsrh., hæstv. utanrrh. og hæstv. viðskrh., hvort þeir eru sammála þessari yfirlýsingu hæstv. sjútvrh., þessari merku yfirlýsingu. Satt að segja get ég tekið við jáinu hér í ræðustólnum, hæstv. forsrh. Málið er mjög einfalt. Er hæstv. forsrh. sammála yfirlýsingu hæstv. sjútvrh.? ( Forsrh.: Hæstv. forsrh. ætlar að svara á eftir.) Hæstv. forsrh. ætlar að svara á eftir, það er ágætt, en svarið er einfalt. Hæstv. utanrrh., er hann sammála? ( Utanrrh.: Sammála hverju aftur?) Sammála hverju aftur, segir hæstv. utanrrh. ( Forseti: Forseti biður um að það séu ekki samtöl í salnum.) Ég skal fara með þetta á ný. Ég var að segja það, hæstv. ( Utanrrh.: . . . að samningar komi ekki til greina ef . . . ) (Forseti hringir.) Ekki til, já þeirri yfirlýsingu. Þetta er allt í lagi, ég kem þessu alveg til skila. ( Utanrrh.: Svarið er nei.) Hann er ekki sammála henni. Nú jæja, nú jæja. Hæstv. utanrrh. sagði nei. Hvað segir hæstv. viðskrh.? ( Viðskrh.: Við hverju?) Spurningin var á þessa leið: Hæstv. sjútvrh. lýsti því yfir hér í umræðunum að það væri ekki til umræðu, kæmi ekki til álita að gerast aðili að samningnum um Evrópskt efnahagssvæði nema Íslendingar fengju tollfrjálsan aðgang, annars ættu Íslendingar ekki að gerast aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu nema full skilyrðislaus viðurkenning fengist fyrir tollfrjálsan aðgang fyrir sjávarafurðir. ( Viðskrh.: Athyglisvert.) Hvorki já eða nei. Er það svar hæstv. viðskrh.? Athyglisvert. ( Viðskrh.: Athyglisvert.) Já.
    Virðulegi forseti. Margt hefur nú gerst á þessum tveim vikum síðan þessi hæstv. ríkisstjórn var mynduð, en það sem gerðist á þessari mínútu er nú það merkilegasta og alvarlegasta. Því hér hefur komið í ljós grundvallarágreiningur milli hæstv. sjútvrh. annars vegar, sem talaði mjög skýrt hér í umræðunum, og hæstv. utanrrh., sem lýsti sig algjörlega andvígan þessari afdráttarlausu afstöðu hæstv. sjútvrh. Og hæstv. viðskrh. segir bara: ,,athyglisvert`` og vill hvorki svara með jái eða neii.
    Það er búið að segja hér mánuðum saman að þessar viðræður snúist um fisk. Það er búið að segja hér síðustu daga af hálfu hæstv. utanrrh. að það sé höfuðatriði að fá fram viðurkenningu á hagsmunum Íslands. Fyrrverandi formaður Sjálfstfl., hæstv. sjútvrh., talaði tæpitungulaust um það hér í umræðunum að Íslendingar ættu ekkert erindi, það væri ekki til umræðu, voru hans óbreytt orð, það kæmi ekki til álita að Íslendingar gerðust aðilar að samningnum um Evrópskt efnahagssvæði nema við fengjum skilyrðislausan aðgang, tollfrjálsan, fyrir sjávarafurðir. Og hæstv. utanrrh. sagði hér fyrir nokkrum mínútum síðan að hann væri ósammála þessu. Hann er tilbúinn að Ísland gerist aðili að Evrópsku efnahagssvæði þótt Íslendingar fái ekki tollfrjálsan aðgang fyrir fisk. Utanrrh. Íslands lýsir því yfir hér í þingsalnum að hann setur það ekki sem skilyrði að Íslendingar fái tollfrjálsan aðgang fyrir fisk. Það er ósköp eðlilegt að Evrópubandalagið sé ekki að láta undan. Það er ósköp eðlilegt að þeir séu ekki að koma með tilboð þegar maðurinn sem ber ábyrgð á samningunum fyrir hönd Íslands segir að það sé ekkert skilyrði af sinni hálfu.
    Og nú spyr ég hæstv. forsrh.: Hvort er hann sammála hæstv. sjútvrh., fyrrv. formanni Sjálfstfl., eða hæstv. utanrrh.? Vegna þess að hér fimm mínútum yfir miðnætti kom í ljós grundvallarágreiningur innan ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar um höfuðatriðið í samningunum um Evrópskt efnahagssvæði. Þar með veit þjóðin ekki lengur hver stefna ríkisstjórnarinnar er í þessu máli eða hvert er verið að fara með mikilvægustu hagsmunamál Íslands. Og þessari umræðu getur ekki lokið fyrr en hæstv. forsrh. hefur svarað því alveg skýrt, hvort stendur hann með ráðherrum Alþfl. í þessu máli eða stendur hann með ráðherra Sjálfstfl., sjútvrh., fyrrv. formanni Sjálfstfl. Þorsteini Pálssyni?
    Ég veit að ég þarf ekki að útskýra fyrir hv. þm. þau alvarlegu tíðindi sem hér hafa orðið á síðustu mínútum þessara umræðna í þessu máli. Það getur hver og einn þingmaður hugleitt hvað hér hefur afhjúpast. Hæstv. sjútvrh. sagði orðrétt: ,,Það er ástæða til þess að viðsemjendur okkar viti að við munum ekki hvika frá þessu." Hæstv. sjútvrh. telur sem sagt nauðsynlegt að Evrópubandalagið viti að það verður ekki hvikað frá þessari grundvallarafstöðu. En utanrrh. Íslands sagði hér áðan að það verði hvikað frá henni. ( Utanrrh.: Ónei, hann sagði það nú aldrei.) Hann sagði það víst, hæstv. utanrrh., og vertu ekki að reyna að klóra þig út úr þessu. Vegna þess að þú varst spurður mjög einfaldrar spurningar og þú svaraðir: Nei.
Það heyrði allur þingheimur þig segja nei. ( Utanrrh.: Já, ég sagði nei.) Já. --- Sagði nei við þeirri spurningu hvort hann væri sammála því sem sjútvrh. hefði hér sagt og það þýðir ekkert fyrir hæstv. utanrrh. að segja við mig: Hættu þessu. Það getur vel verið að honum finnist óþægilegt að það sé flett ofan af því fyrir hann inn í hvaða hús hann er kominn eða hvers konar sundrung ríkir innan þeirrar ríkisstjórnar sem átti að vera byggð á sérstökum heilindum og sérstöku heiðursmannasamkomulagi og hvað hann var ánægður fyrir viku síðan að fá nú fullt umboð og hvað hann hefur svo heyrt hér í kvöld frá hæstv. sjútvrh.
    Hæstv. landbrh. lýsti því hér yfir að það væri engin hugmynd uppi um að draga úr þeim heilbrigðiskröfum sem fyrrv. landbrh. hefði sett á oddinn varðandi samninga um Evrópskt efnahagssvæði. Ég fagna þessari yfirlýsingu. En ég vil spyrja hæstv. utanrrh.:

Hvernig samrýmist þessi afstaða hæstv. landbrh. því sem hæstv. utanrrh. hefur verið að semja um? Það er nauðsynlegt að fá alveg skýrt svar við því vegna þess að í síðustu ríkisstjórn kvartaði hæstv. utanrrh. undan þessari afstöðu og taldi að henni þyrfti að breyta ef samningar ættu að nást um Evrópskt efnahagssvæði. Nú er komið í ljós að hæstv. landbrh. er með óbreytta afstöðu frá tíð fyrri ríkisstjórnar í þessu máli og því ber að fagna. En þá spyr ég hæstv. utanrrh.: Er hann enn á þeirri skoðun, sem hann lýsti á fundum síðustu ríkisstjórnar, að þessari afstöðu þyrfti að breyta? Og hvað ætlar hann að gera ef hæstv. landbrh. breytir henni ekki? Líka í þessu máli hefur komið fram ágreiningur milli landbrh. Sjálfstfl. og utanrrh. Alþfl. í þessari umræðu.
    Hæstv. landbrh. sagði í öðru lagi að það yrði alger stöðvun á innflutningi erlendra landbúnaðarvara þegar íslensk framleiðsla gæti uppfyllt þarfir markaðarins. Ég fagna líka þessari yfirlýsingu hæstv. landbrh. En hún er líka í fullkominni andstöðu við það sem hæstv. utanrrh. hélt fram innan síðustu ríkisstjórnar og heldur fram nú. Þetta var m.a. sú afstaða fráfarandi landbrh. sem hæstv. utanrrh. taldi nauðsynlegt að breyta ef samningar ættu að takast um Evrópskt efnahagssvæði. Og nú spyr ég einnig um þetta atriði: Hver er stefna ríkisstjórnarinnar, hæstv. forsrh.? Ef hæstv. forsrh. má vera að því að gera smáhlé á að skrifa niður fyrirmæli utanrrh. um hvað hann eigi að segja í þessari umræðu, þá vil ég endurtaka spurningu mína: Hvort er hæstv. forsrh. sammála hæstv. landbrh. eða hæstv. utanrrh. varðandi það að það eigi að vera alger stöðvun á innflutningi á þeim erlendu landbúnaðarvörum sem framleiddar eru hér innan lands, m.a. í gróðurhúsum, ef íslensk framleiðsla fullnægir þörfum markaðarins á ákveðnu tímabili? Um þetta var fyrirvari í tíð síðustu ríkisstjórnar. Er hann enn í gildi? Hann er það hjá hæstv. landbrh. En hann er það ekki hjá hæstv. utanrrh.? ( Landbrh.: Auðvitað. Báðum.) Nú, hann er í gildi hjá báðum. Það eru merkileg tíðindi ef hann er í gildi í samningunum. ( Landbrh.: Prófessorinn er alveg kolfallinn í krossaprófi.) Það eru merkileg tíðindi, já. Þessi fyrirvari er enn þá í gildi. Og Evrópubandalagið hefur þá samþykkt það að þetta verði svona, eða hvað? ( Utanrrh.: Það er enginn ágreiningur um það.) Það er enginn ágreiningur um það. Það er mjög gott. En þetta með heilbrigðiskröfurnar? Er sá fyrirvari enn þá í gildi líka? (Gripið fram í.) Ég var ekki að spyrja um vandamál. Ég var að spyrja um hvort sá fyrirvari væri enn þá í gildi. Svara á eftir. Það er kannski pínulítið flóknara.
    Þannig er það alveg ljóst að hæstv. landbrh. lýsti því hér yfir varðandi þrjú af þessum atriðum að hann ætlaði sér að halda við þá fyrirvara sem settir höfðu verið fram áður. Ég vil að gefnu tilefni spyrja hæstv. landbrh. að því hvort hann ætli að ganga í það verk, sem fyrrv. landbrh. lýsti hér áðan að hann hefði ekki talið eðlilegt að vinna, að leggja til breytingar á íslenskum lögum þar sem erlendum mönnum er veittur sami réttur til þess að eignast jarðir og landsins

gæði á Íslandi og íslenskum mönnum. Um þetta var ágreiningur í síðustu ríkisstjórn, ágreiningur sem ég lýsti í sjónvarpsþætti í janúarmánuði og lýsti aftur í sjónvarpsþætti þriðjudaginn eftir páska. Og hæstv. landbrh. hefur ekki svarað því hér í þessum umræðum: Er hann reiðubúinn að beita sér fyrir því að breyta íslenskum lögum á þann veg eða ekki? Það er alveg nauðsynlegt að því sé svarað hér í umræðunum vegna þess að hæstv. utanrrh. hefur gert þá kröfu að það sé gert og hefur deilt á fyrirrennara hæstv. landbrh. fyrir að láta ekki verða af því verki.
    Hæstv. utanrrh. fór hér í nokkurn rökstuðning um það að ekki væri um framsal valds að ræða. M.a. ekki til þess dómstóls sem fjallað hefur verið um í þessum umræðum. Hæstv. utanrrh. tók sem líkingu að við sem vorum ráðherrar í síðustu ríkisstjórn hefðum verið kærðir af m.a. BHMR fyrir erlendum samtökum eða ,,structures``, svo að ég noti nú það orðalag sem er í enskum texta yfirlýsingarinnar þó að utanrrh. hafi nú að vísu notað orðið ,,dómstóll``. Þetta væri bara alveg eins. Hver væri á móti því? Verkalýðshreyfingin hefði beitt þessu, hvað væri þetta eiginlega? Þetta var málflutningurinn. Sá er munurinn, hæstv. utanrrh., að BHMR höfðaði mál fyrir borgardómi, tapaði málinu, áfrýjaði til Hæstaréttar. Segjum að BHMR tapi málinu fyrir Hæstarétti. Þá eru erlendir samningar Íslands á þann veg að það er alveg sama hvað hin erlenda stofnun segir. Það er úrskurður Hæstaréttar Íslands sem gildir. Og vegna þess að hæstv. utanrrh. sagði hér áðan að þetta væri alveg hliðstætt sem hann væri nú að semja um í hinu Evrópska efnahagssvæði, þá spyr ég: Er það þannig að hægt verði bæði að höfða mál fyrir borgardómi og Hæstarétti Íslands og áfrýja til EFTA -- EB - dómstólsins og það sé úrskurður Hæstaréttar sem gildir, hæstv. utanrrh.? Við þessari spurningu verður að fást alveg skýrt svar í þessari umræðu vegna þess að þetta er grundvallaratriði málsins. Hæstv. utanrrh. hefur haldið því fram hér í umræðunni með því að taka líkingu af BHMR - deilunni að þá mundi úrskurður Hæstaréttar Íslands gilda en ekki hins nýja dómstóls Evrópska efnahagssvæðisins. ( Utanrrh.: Viltu lesa á bls. 21, mgr. 4, svarið.) Já, já, ég get alveg lesið bls. 21, mgr. 4. En ég get líka lesið mgr. 3 á sömu blaðsíðu, hæstv. ráðherra. En ég kann hins vegar betur við að einföldum spurningum sé svarað með einföldum hætti, en ekki verið með einhverjar textatilvísanir út og suður. Verður það þannig að úrskurður Hæstaréttar Íslands gildi? Já, eða nei, hæstv. utanrrh.? Já eða nei. Ekkert svona handapat, bara já eða nei, hæstv. utanrrh. ( Forseti: Forseti vill vekja athygli hv. þm. á því að það er ekki ætlast til að það komi svör utan úr sal heldur mun hæstv. utanrrh. fá tækifæri til að svara úr ræðustóli.) Ég vil bara vekja athygli hæstv. forseta á því að hæstv. utanrrh. byrjaði að svara utan úr sal. Ég var ekki að ætlast til þess að hann svaraði hér úr salnum í þessu máli. En hæstv. utanrrh. kaus að gera það og þá óskaði ég eftir því að svarið væri skýrt. (Gripið fram í.) Hv. þm. Ingi Björn Albertsson ætti nú að tala varlega um nýja þingmenn. Þeir eru nú fleiri hér í salnum en ég. Nema þetta hafi verið sneið til þess sem situr hér alveg á endanum.
    Svarið er sem sagt ekki skýrt, hæstv. utanrrh. Það er sem sagt ekki þannig að Hæstiréttur Íslands gildi þá í þessu máli eins og í BHMR - málinu. Það er sem sagt þannig að það er Evrópudómstóllinn sem á að gilda í þessu máli. Eða er það þannig að ef ég vil gera ágreining þegar Evrópska efnahagssvæðið verður komið á samkvæmt því samkomulagi sem hæstv. utanrrh. undirritaði sl. mánudag, þá dugir mér að höfða málið fyrir Hæstarétti og vinni ég það við Hæstarétt Íslands þá skiptir engu máli hvað Evrópudómstóllinn segir eða gerir? Er það þannig, hæstv. utanrrh.? Nei, auðvitað er það ekki þannig. Það er þannig að Evrópudómstóllinn er æðri samkvæmt því sem undirritað var sl. mánudag og að því leyti er sú samlíking sem hæstv. utanrrh. tók hér í umræðunni algerlega út í hött og bendir annaðhvort til þess að hæstv. utanrrh. hafi ekki skilið hvað hann er að gera, og guð og við allir fyrirgefi honum þá vegna þess að hann veit ekki hvað hann er að gera, eða hann er vísvitandi að blekkja þingheim og þjóðina um það hvar hið endanlega dómsvald á að vera.
    Það segir á bls. 21 í skýrslunni frá í mars, hæstv. utanrrh.: ,,Fari landsdómstóll ekki eftir túlkun EES - dómstólsins í málinu, þá gildir niðurstaða landsdómstólsins gagnvart aðilum málsins.`` Ef þetta er enn í gildi, þá vil ég bara spyrja: Hvað merkir þá liður 22 í sameiginlegri yfirlýsingu utanríkisráðherra Evrópubandalagsins og EFTA sl. mánudag? Til hvers var þá verið að útfæra hana með svo ítarlegum og nýjum hætti eins og þar er gert ef það er bara dómstóllinn í hverju landi sem á að ráða en ekki hinn nýi Evrópudómstóll?
    Virðulegi forseti. Þegar hæstv. utanrrh. var að setja sig í stellingar hér áðan gagnvart hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni, fyrrv. landbrh., þá ávítaði hann hv. þm. fyrir það að hann hefði ekki sem landbrh. fylgt dæmi Íra varðandi löggjöf um eignarhald á jörðum. Það var líka óheppilegt dæmi, hæstv. utanrrh., vegna þess að Írland er í Evrópubandalaginu og ber þess vegna skylda til þess að breyta sínum lögum á þann veg að reglan sem bannar nokkra mismunun gildi líka í Írlandi. Er hæstv. utanrrh. að segja það að Ísland eigi að taka upp sams konar reglur um kaup á jörðum og gilda í Evrópubandalaginu og íslenski landbrh. eigi að gera það sama og írski landbrh. og það sé sérstakt ávítunarefni á íslenska landbrh. ef hann ekki hefur fylgt fordæmi Íra? Það er auðvitað alveg ljóst að Írland verður að breyta lögum sínum í þessum efnum vegna þess að það er búið að vera um nokkuð langt árabil fullgilt aðildarríki að Evrópubandalaginu.
    Ég vil svo ítreka það sem ég sagði hér áðan til skýringar fyrir fulltrúa Sjálfstfl. í þessum þingsal, sérstaklega núv. hæstv. ráðherra, að tillögur samningamanns Íslands um það hvernig fallið yrði frá fyrirvörum Íslands eftir fundinn í desember lágu óafgreiddar á borðum ríkisstjórnarinnar mánuðum saman og utanrrh. kallaði ekki eftir því, a.m.k. síðustu þrjá mánuði í setu síðustu ríkisstjórnar, að þær yrðu afgreiddar.

Hann kom aldrei með málið inn í ríkisstjórnina og bað um afgreiðslu á þeim. Það er mikilvæg staðreynd, sem er nauðsynlegt að ábyrgir ráðherrar í núv. ríkisstjórn átti sig á, að fyrirvaramálið hefur aldrei hlotið afgreiðslu í ríkisstjórn Íslands vegna þess að það var upplýst hér í umræðunni að það hefði ekki heldur verið afgreitt í núv. hæstv. ríkisstjórn. Hæstv. landbrh. lýsti því yfir hér áðan að fyrirvaramálið hefði aldrei komið til umfjöllunar, hvað þá heldur verið afgreitt í núv. hæstv. ríkisstjórn. Þar með hefur engin ríkisstjórn á Íslandi afgreitt það tillöguskjal um fráhvarf frá fyrirvörum sem samningamaður Íslands sendi til ríkisstjórnarinnar fyrir alllöngu síðan. Einstakir þingflokkar gátu haft til þess afstöðu, þingflokkur Alþfl., þingflokkur Framsfl., þingflokkur Alþb. En ríkisstjórn Íslands sem stjórnvald afgreiddi málið aldrei og hefur ekki afgreitt það enn, hæstv. forsrh.
    Það er auðvitað ábyrgðarhluti að Ísland skuli vera komið að lokamánuði þessara samningaviðræðna án þess að hæstv. utanrrh. Íslands hafi beðið um formlega afstöðu ríkisstjórnar Íslands til þessara lykilatriða í samningaferlinu. Ekki hefði ég viljað vera í sporum ráðherra eða samningamanns Íslands umboðslaus hvað þetta lykilatriði snertir. En það hefur verið upplýst hér í kvöld að á þessum fundi ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar í Ráðherrabústaðnum 5. maí voru fyrirvararnir ekki afgreiddir. Þeir komu ekki á dagskrá samkvæmt frásögn hæstv. landbrh. hér áðan. Ég hélt satt að segja að þeir hefðu verið þar til afgreiðslu og það hefði verið þess vegna sem hæstv. utanrrh. sagði við fjölmiðlana eftir fundinn að nú væri hann ekki bundinn lengur af fyrirvörunum frá tíð síðustu ríkisstjórnar. En nú upplýsti hæstv. landbrh. að þeir hefðu ekki einu sinni verið ræddir. Og skjalið frá samningamanni Íslands var auðvitað alveg jafngilt hver svo sem ríkisstjórnin var. Það skjal var ekkert háð því hvaða ríkisstjórn sat í landinu. Það varð auðvitað að afgreiða hver svo sem ríkisstjórnin var.
    Það kallar þess vegna auðvitað á það að núv. hæstv. ríkisstjórn afgreiði með einum eða öðrum hætti þetta skjal, nema þá að það sé afstaða ríkisstjórnarinnar að veita samningamanni Íslands og hæstv. utanrrh. algert sjálfdæmi í málinu. En ræða hæstv. landbrh. hér í kvöld gaf ekki tilefni til þess að ætla það vegna þess að hann ítrekaði enn á ný ýmsa þá fyrirvara sem í gildi voru áður.
    Ég var að vísu fjarri hér úr þingsalnum áðan þegar hæstv. utanrrh. vék að skýrslunni Evrópa 1992 og ríkisfjármálin. Mér skilst að hann hafi eignað mér þessa skýrslu og notað orðalag af því tagi. Ég hélt nú að fyrrv. fjmrh. vandaði orðfæri sitt betur í þessum efnum en það er kannski eins með það og ýmislegt annað hér í umræðunni að það er ekkert höfuðatriði fyrir utanrrh. hvort hann fari nákvæmt með eða ekki, það sé bara svona og svona.
    Ég skal upplýsa hæstv. ráðherra um það að þessi skýrsla er unnin af embættismönnum fjmrn. samkvæmt beiðni forsrh. Íslands og kom aldrei til afgreiðslu í minni tíð í fjmrn. og mér heldur aldrei sýndur textinn að þessari skýrslu, enda hún gefin út

eftir að ég var farinn úr ráðuneytinu, þannig að ég hvorki sá, fjallaði um né afgreiddi þessa skýrslu, hæstv. ráðherra. Og svo að ég upplýsi það hér og vona að mér verði fyrirgefið, þá er ég ekki enn búinn að lesa hana en ætla mér að gera það næstu daga. Ég las hins vegar innganginn eða fyrsta kaflann, helstu niðurstöður, sem mér skilst að hæstv. utanrrh. hafi verið að vitna í hér í áðan og fagna sérstaklega og það er, hæstv. utanrrh., dálítið skemmtileg lesning. Hún er
sérstaklega skemmtileg í ljósi þess að Sjálfstfl., hæstv. utanrrh., Sjálfstfl. hefur lýst sig andvígan ýmsu því helsta sem hér er tilgreint sem helstu niðurstöður. Þar er efst á blaði afnám aðstöðugjaldsins, hæstv. utanrrh. --- Var eitthvað rætt um það í Viðey, afnám aðstöðugjaldsins? Það er kannski rétt að segja frá því hér að það var rík samstaða um það í síðustu ríkisstjórn að það væri nauðsynlegt að afnema aðstöðugjaldið og flytja frá Reykjavíkurborg einn til tvo milljarða vegna þess að hún væri með fullkomlega óeðlilegar tekjur og það væri lykilþáttur í lausn ríkisfjármálanna að afnema aðstöðugjaldið. Ég tek eftir því að það er ekkert í þessari stefnuyfirlýsingu núv. ríkisstjórnar um aðstöðugjaldið. En það er hins vegar alveg sagt skýrt hér að eitt af því sem þarf að gera til að aðlagast Evrópska efnahagssvæðinu er að afnema aðstöðugjaldið. Nú vil ég spyrja hæstv. forsrh., borgarfulltrúa í Reykjavík og borgarstjóra í fríi: Er hann allt í einu orðinn svo sammála því að það eigi að afnema aðstöðugjaldið?
    Í þessum niðurstöðum, hæstv. utanrrh., er líka talað um að afnema skattfríðindi atvinnufyrirtækja. Það vill nú svo til að helsta baráttumál núv. hæstv. fjmrh. hér á síðasta þingi var að auka skattfríðindi fyrirtækja, var að auka skattaafsláttinn vegna hlutafjárkaupa, sem stangast algjörlega á við Evrópskt efnahagssvæði. Þannig að ef þessar niðurstöður hér í innganginum eru lesnar kemur nú í ljós að það sem embættismenn fjmrn. telja að helst þurfi að gera á þessu þingi og því næsta, ef til slíkrar aðlögunar kemur, gengur þvert á það sem forustumenn Sjálfstfl. hafa haldið fram í ríkisfjármálum. Það verður satt að segja mjög gaman að fylgjast með því hvernig núv. hæstv. ríkisstjórn gengur að ná saman í þeim efnum.
    Virðulegi forseti. Ég hef vikið að nokkru því sem fram hefur komið í þessum umræðum. Ég vil taka undir að þessi umræða hefur verið mjög gagnleg og mjög merkileg. Hún hefur verið mjög upplýsandi um þann ágreining sem ríkir innan núv. hæstv. ríkisstjórnar í þessu máli. Hún hefur afhjúpað grundvallarágreining í mikilvægasta atriði þessara samninga milli hæstv. sjútvrh. annars vegar og hæstv. utanrrh. og viðskrh. hins vegar. Ég satt að segja skil ekki hvernig núv. hæstv. ríkisstjórn ætlar að halda áfram þessari samningavinnu þegar ljóst er að slíkur grundvallarágreiningur um höfuðatriði samningavinnunnar er innan ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin er satt að segja gjörsamlega óstarfhæf til þess að sinna þessum samningum í ljósi þess grundvallarágreinings sem hér hefur komið fram.

    Virðulegi forseti. Það væri vissulega tilefni til þess að taka hér til umfjöllunar á ný það sem hæstv. utanrrh. sagði um sambland varnarsamstarfs og samninga við Evrópubandalagið um fisk. Ég ætla ekki að gera það en ég tók eftir því að hann lýsti því yfir hér í sinni seinni ræðu að þessi orð væru enn þá í fullu gildi og þessi stefna ráðherrans væri enn þá jafngóð og hún var þegar hún var upphaflega sett fram. Nú vill svo til að sá maður sem helst gagnrýndi þá stefnu þegar hún var sett hér fram er núna sendiherra Íslands í þessum efnum sérstaklega. Fyrir utan Hannes Hafstein er það Kjartan Jóhannsson, sendiherra í Genf, sem er sérstakur túlkandi á afstöðu Íslands og utanrrh. í þessum málum. Og það væri svona fróðlegt til gamans að fá það upplýst nú eða síðar hvort sendiherranum í Genf, Kjartani Jóhannssyni, hefur verið ætlað að túlka sérstaklega við fulltrúa erlendra ríkja þau orð hæstv. utanrrh., sem væntanlega verða þýdd og fjalla um þetta samspil varnarsamstarfs og samninga um fisk, sem hann hafði hér á Alþingi í dag og í fjölmiðlum síðustu tvo daga.
    Virðulegi forseti. Ég vil biðja forláts á því að hafa verið hér lengur í ræðustólnum en ég ætlaði mér, en tilefnið var það að þær ræður sem hér hafa verið fluttar af hæstv. ráðherrum hafa afhjúpað svo slíkan nýjan veruleika í þessu máli að það hefur fengið algjörlega nýja stöðu í þessum umræðum. Ágreiningurinn innan ríkisstjórnarinnar er orðinn ljós öllum. Afstöðuleysi forsrh. er hrópandi og stefnuleysi Sjálfstfl. sem flokks í þessum málum virðist enn þá vera jafnskýrt og það var fyrir nokkrum mánuðum síðan. Ég tel hins vegar nauðsynlegt að formaður Sjálfstfl., núv. hæstv. forsrh., komi hér enn á ný í ræðustólinn og skýri afstöðu sína og afstöðu Sjálfstfl. vegna þess að þessi mál eru svo mikilvæg að við sem eigum að vinna að þeim, m.a. kjörnir til þess í hv. utanrmn., þurfum auðvitað að fá að vita hvernig hæstv. forsrh. ætlar að greiða úr þeim grundvallarágreiningi sem hefur afhjúpast í þessum umræðum að ríkir innan hans ríkisstjórnar um mikilvægasta atriði þessara samninga.