Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
Herra forseti. Ég vil svara fyrirspurn frá hv. 8. þm. Reykn. Það háttar svo til við samningana um Evrópska efnahagssvæðið að samningsefninu hefur verið skipt í fjögur meginsvið. Fyrsti hópurinn hefur fjallað um vöruviðskipti. Annar hópurinn um fjármagns- og þjónustuviðskipti. Sá þriðji um atvinnu- og búseturéttindi og sá fjórði um svokölluð jaðarmálefni.
Eftir þeim upplýsingum sem ég hef sönnust þá hefur landbrn. komið að samningahópnum um vöruviðskipti og um atvinnu- og búseturéttindi, en á hinn bóginn hefur landbrn. ekki komið að samningahópnum um fjármagns- og þjónustuviðskipti, heldur hafa umsjónarmenn þeirra mála verið dóms- og kirkjumrn., sjútvrn., viðskrn. og Seðlabanki Íslands.
Það hefur komið fram hér í umræðunum að ráðherrum í fyrrv. ríkisstjórn ber ekki saman um það hvaða fyrirvarar hafa verið gerðir í ýmsum þýðingarmiklum þáttum samninganna um Evrópska efnahagssvæðið og læt ég þá eina eigast við um það hvað rétt kunni að vera í því, minni þó á ummæli fyrrv. forsrh. hér áðan. Hitt virðist alveg ljóst af ummælum hv. 8. þm. Reykn. hér áðan og hv. 4. þm. Norðurl. e. að eitthvað er óljóst um þá fyrirvara sem þeir vilja vera láta að gerðir hafi verið og það a.m.k. alveg ljóst að eftir þeim upplýsingum sem fyrir liggja í landbrn. er ekki hægt að minni hyggju að líta svo á að fyrirvarar hafi komið fram af hálfu Íslands í samningana um að útlendingar fái sama rétt og Íslendingar til að eignast hér lönd, jarðir og önnur náttúrugæði að öðru leyti en því sem lýtur að jarðhitaréttindum eins og hér hefur áður komið fram.
Ég hef gert ráðstafanir til þess að þeir menn sem fara með þessi málefni í landbrn. setji sig í samband við utanrrn. og væri að sjálfsögðu kominn með fyllri upplýsingar nú ef ekki hefði komið til ráðherrafundarins nú í vikunni, en mun eftir að upplýsingar liggja fyrir svara bréfi formanns Alþb. og þá mun koma fram hvernig nánar fer um þessi atriði. En aðalatriðið er þetta að forveri minn í landbrn. sá ekki ástæðu til þess að landbrn. kæmi að þeim samningshóp sem fjallaði um fjármagns- og þjónustuviðskipti. Þetta er kjarni málsins.