Eyjólfur Konráð Jónsson :
    Hæstv. forseti. Við höfum verið hér um það bil tíu klukkutíma að rabba saman og ég held að ég hafi hlustað á svo til hvert orð sem sagt hefur verið í dag og núna í kvöld og nótt. Ég ætla að taka mér það bessaleyfi að líta svolítið yfir sviðið því að ég held að mjög merkilegir hluti séu hér að gerast sem maður hafði ekki séð fyrir, kannski bara þegar þessi dagur rann upp, sá sem nýliðinn er.
    Það er ekkert óeðlilegt að menn hafi hér á kvöldfundinum sérstaklega rætt um yfirlýsingar sem gefnar hafa verið af helstu ráðamönnum og þær ekki ómerkilegar. Er þá fyrst til að taka það sem sjútvrh. sagði og getið hefur verið um hér af öðrum ræðumönnum, tveimur ráðherrum a.m.k. Ég skrifaði þetta að vísu ekki hjá mér en mergurinn málsins er sá að ráðherrann segir að við höfum lítið í Evrópusamtök að gera ef við fáum ekki frjálsa verslun með okkar meginútflutningsafurð, þá eigum við ekkert að gera með að vera að ívilna Evrópumönnum með því að láta þá hafa skattfrelsi á allan sinn varning hingað til okkar. Það er svo augljóst að það ætti hver maður að sjá.
    Hæstv. sjútvrh. gaf aðra mjög merkilega og ágæta yfirlýsingu þar sem hann segir að aldrei komi til greina að útlendingar, Evrópubandalagsmenn, fái að fiska svo mikið sem einn fisk innan okkar 200 mílna. Þetta opnaði umræðuna og hún hélt svo áfram í þessum dúrnum. Fleiri merkar yfirlýsingar voru gefnar og aðrir tóku undir, því undir þessa síðari yfirlýsingu tók mjög eindregið hæstv. utanrrh. margsinnis, að engar fiskveiðar mundu nokkurn tíma verða leyfðar innan 200 mílna markanna, það væri útilokað að til þess gæti komið. Þetta er mjög drengilega mælt af ráðherranum, margendurtekið, og fyrst var það sagt af hæstv. sjútvrh. Þetta setur málið auðvitað í allt annað samhengi en við höfum verið í áður og fyrri yfirlýsingin er mjög mikilvæg líka vegna þess að hún gerir mönnum grein fyrir því sem hefur raunar verið augljóst allan tímann að Evrópubandalagið hefur verið að græða á okkur en ekki við á því og það er náttúrlega það sem það hugsar sér að gera áfram. Vaxandi skilningur er á því eftir þessa fimm ára hrifningaröldu sem greip um sig að Evrópubandalagið græðir miklu meira á okkur en við á því. Það skuldar okkur, það hefur ekki leiðrétt bókun 6 þó að merkir menn í bandalaginu, þar á meðal Henning Christophersen, varaforseti framkvæmdastjórnar EB, hafi sagt við okkur í Evrópustefnunefnd þann 18. sept. 1990 orðrétt: ,,Vissulega hafa Íslendingar opnað markaði sína fyrir iðnvarning frá EB og án þess að fá fríverslun með fisk og fiskafurðir. Jafnvægi þyrfti að nást á þessu sviði.``
    Hann viðurkennir það beint út, þessi ágæti maður, að Evrópubandalagið skuldi okkur en við ekki því og hafi gert það í mörg herrans ár og ekki verið gengið eftir því af nægilegri festu að láta það borga það sem það samdi um með bókun 6 sem umtöluð er. Við fluttum að vísu tillögu hér, fulltrúar Sjálfstfl., auk mín Ragnhildur Helgadóttir, og Kristín Einarsdóttir frá Kvennalista, þar sem lögð er áhersla á breytingu á

bókun 6. Við fluttum þessa tillögu 15. nóv. 1989. Það var ekki samþykkt að fara í tvíhliða viðræður þá til þess að heimta þennan rétt okkar, því miður, en það er auðvitað kominn tími til þess að þetta verði nú gert.
    Fyrrv. forsrh. tók einnig mjög drengilega undir öll þessi sjónarmið og þar með eru helstu ráðamenn í þessu þjóðfélagi búnir að lýsa yfir sínum skoðunum. En síðan kemur ekki ómerkilegasta yfirlýsingin sem hæstv. forsrh. gaf, algerlega afdráttarlausa og ég hygg að það sé orðrétt á þennan veg: Umsóknaraðild að EB er ekki á dagskrá, hvorki í bráð né lengd. --- Hvorki í bráð né lengd. Þá höfum við það. Við förum auðvitað aldrei í þetta Evrópubandalag, við skulum hafa það á hreinu. Við erum ekki svo skyni skroppin að við förum að fórna þessum gífurlegu hafsvæðum sem við sjálfir eigum, ýmist einir eða í sameign með öðrum, alveg frá Noregs - og Skotlandsströndum og yfir til Kanada og við erum miðsvæðis á öllu þessu svæði, miklu, miklu stærra svæði yfirborðs jarðar en Mið - Evrópa er og með miklu, miklu meiri auðlindir. Hér á þessu kvöldi hefur þetta allt í einu opnast fyrir fólki og svo segja menn að þetta sé ekki merkilegur dagur. Allt í einu taka allir undir það. Þetta er tóm della sem við höfum verið að gera. Og það verður auðvitað ekki gengið í neitt Evrópubandalag eftir svona skorinorðar yfirlýsingar. Það er alveg ljóst.
    Ég veit ekki hvort ég ætti nokkuð að vera að hafa þetta meira. Ég held að þetta sé svo augljóst að það bæti það ekki neitt að vera að þreyta menn á að tala mikið meira um þetta. Þetta er komið í þennan farveg eftir þessi fimm ár sem við höfum verið að böðlast í þessu, meira og minna í erindisleysu, út og suður og skamma hvert annað og erum svo öll sammála þegar til stykkisins kemur. (Gripið fram í.) Jú, það er rétt að ég verði við þeirri ósk. En ég ætla þó að geta þess að utanrmn. ætlaði að koma saman í kvöld og ræða lítillega saman en hún gerir það nú ekki fyrr en á þriðjudag. Það er búið að gera ráðstafanir til þess því það sem stendur nú eftir er auðvitað að við þurfum að kynna okkur betur þessi lögfræðilegu málefni um allt sem heyrir til fræðimannanna. Við erum búnir að gera ráðstafanir til þess að fá Gunnar G. Schram og Stefán Má Stefánsson til funda í næstu viku eftir ósk hv. þm. Ólafs Ragnars Grímssonar og við munum þá gera gangskör að þessu.
    Ég get ekki stillt mig um samt aðeins að monta af þessari bók okkar sem ég held hér á. Þess vegna náðist í fyrra, fyrir réttu ári, heildarsamkomulag um alla mikilvægustu þætti þar sem níu skapstórir alþingismenn voru að kljást um þetta í nokkrar vikur eða mánuði og þar var nú raunar getið um öll þessi helstu atriði sem við erum sammála um, þ.e. um að aðild að Evrópubandalaginu komi ekki til greina, sé ekki á dagskrá og enginn aðgangur skuli nokkru sinni fást að okkar fiskimiðum. Þetta kom þá og eftir heilmikla barninga sættumst við nú, gátum komist að niðurstöðu og vorum ótrúlega ánægð með það á eftir þó að við værum búnir að skrifa þetta eitthvað 100 sinnum sameiginlega af því að við vorum nú að skrifa og

skrifa. Þetta gekk nokkrar vikur, þá byrjuðu augu fólks að opnast. En þetta er ekki nýtt því að þegar byrjað var að ræða við Evrópubandalagið á árinu 1971 var Íslendingum þetta algerlega ljóst þá þegar. Og í þessari góðu bók okkar er saga þessara umræðna við bandalagið og þar segir, og það er í desember 1971, orðrétt:
    ,,Einnig var því lýst yfir af hálfu Íslands að útilokað væri að semja um skipti á fiskveiðiréttindum fyrir lönd bandalagsins gegn viðskiptafríðindum fyrir íslenskar sjávarafurðir þar eð um algerlega óskyld mál væri að ræða.``
    Og við höfum auðvitað haldið því fram og eigum að gera alltaf að við munum aldrei ræða við bandalagið um sjávarútvegsmál. Við ræðum við það um allt annað. Ef rætt er um sjávarútvegsmál, þá fer það í stjórnardeild 14 í staðinn fyrir stjórnardeild 1, þar sem pólitíska nefndin er og þar sem hinir raunverulegu ráðamenn eru, og við sem höfum farið í þessi ferðalög Evrópustefnunefndar og utanrmn. og komið nálægt þessum æðstu ráðamönnum í einkaviðræðum o.s.frv. vitum að þessir menn gera sér fulla grein fyrir því að þeir mega ekki missa Ísland út úr sínu korti. Það er þeim verðmætara en svo.
    Við erum útvörður Evrópu í vestri og við erum komnir í beina samninga við Breta núna um gífurlega mikið hafsbotnssvæði og þá auðlind sem þar er. Við erum að loka þessum hring öllum saman og við höfum allt sem við þörfnumst og getum fengið í samningum við Evrópubandalagið nánast hvað sem við viljum. Þeir vilja ekki sleppa af okkur hendinni, þeir vilja ekki hrekja okkur í vesturátt, það er alveg ljóst og við eigum þess vegna ekki að vera með neinn betlistaf og höfum ekki verið það í þessum umræðum í kvöld. Við höfum verið sammála um stórkostlegar yfirlýsingar hæstv. forsrh., hæstv. sjútvrh. og undirtektir annarra þingmanna og við eigum að ljúka þessari umræðu glöð og kát.